Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1999, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.01.1999, Blaðsíða 8
Agætu lesendur. Löngum hefur flugið heillað manninn og sumir draumar hans hafa snúist um það að geta svifið um loftin bld, líkt og fuglar himinsins hafa gert um aldir alda. Og um langan tíma höfðu menn velt því undri fyrir sér hvemig fuglunum væri þetta kleift. Þrdtt fyrir margítrekaðar tilraunir og ýmis konar tækjasmíð, þó varð það ekki fyrr en rétt upp úr síðustu aldamótum sem menn duttu niður á lausnina, og það, hvernig yfirvinna mætti þyngdarafl jarðarinnar og verða fuglunum samferða um víddir himinsins. Og lausnina, sem menn duttu niður ú, var einmitt að finna í flugi fuglanna. Athugulir menn höfðu dttað sig ú því, að vængir þeirra voru með sértakri lögun, svolít- ið íhvolfir, og þegar tilraunir vom gerðar með vængi sem líktu eftir þeirri lögun, þd skeði undrið. Farartækið hófst ú loft. Fyrstir til að fljúga með þessum hætti teljast vera Wright-bræður, sem tókst að fljúga frumstæðri flugvél sinni skamma vegalengd úrið 1903. Og þú varð ekki aftur snúið. Þróun flugsins á þeim tæpu 96 árum sem síðan em liðin er vægast sagt með fádæmum og tæknin því sam- fara orðin stórbrotin og mikilvirk í dag. Hver hefði, á þessum árdögum flugsins, getað gert sér það í hugarlund að einungis 50-60 ámm síðar væru farin að hefja sig á loft flugför, sem væm fleiri hundmð tonn á þyngd og flyttu nokkur hundmð farþega í meira en 30.000 feta hæð yfir jörðu? Ekki margir, hygg ég, en sú varð raunin og enn stækka flugvélamar. Gmnnurinn að þessu öllu er hinn merkilegi lyftikraft- ur, sem svo er nefndur, kraftur, sem verður til við það að loft streymir hraðar um efra borð vængs en það neðra, vegna sérstakrar lögunar hans, en flugvélar- vængur er örlítið kúptur að ofan, sem lengir leið lofts- ins og eykur hraða þess. Við það verður hálfgert loft- tæmi ofan vængsins, sem orsakar það að hann leitar upp á við. Nákvæmlega sama lögmál og á sér stað þegar fugl flýgur. Svo öflugur er þessi kraftur að það mun vera stað- reynd að vængur, sem ekki væri stærri um sig en venju- legt spil, gæti lyft, hvorki meira né minna en 3 kílóum. Það gerir manni auðskiljanlegra hvers vegna vængir risaþotanna em ekki stærri en raun ber vitni. Ekki er ýkja langt síðan að manninum tókst að skapa sér farartæki til þess að hraða för sinni um yfir- borð jarðarinnar. Nú er fjöldi þeirra og umfang orðið með þeim hætti að í óefni stefnir. Umferðaröngþveiti og hægagangur er að verða sífellt stærra vandamál í stöðugt hraðvirkari heimi. Og hvað gera menn þá? Jú, þeir færa umferðina upp í loftið. Nú hallast menn æ meira að því að loftið sé eini möguleikinn til lausnar á umferðaröngþveiti framtíðarinnar. í stað bílanna á vegunum muni koma flugbílar eða þyrlur, sem bera menn á milli heimila og vinnustaða t.d. Þá vaknar auðvitað spurningin um það hvort ekki verði allt í eintómu öngþveiti þar líka fljótlega. En menn telja sig hafa lausn á því. Þar kemur tölvutæknin að sjálfsögðu til sögunnar. Stefnan er sem sagt sú, að þyrlumar verði sjálfvirkar á þann hátt, að þegar einsk- lingur leggur af stað heiman frá sér, þá stimplar hann inn í tölvu flugfarsins hvert hann ætlar, kemur sér síð- an þægilega fýrir og „apparatið" sér um restina. Tölv- an er í stöðugu sambandi við stjómstöð flugtækjanna og velur alltaf rétta hæð, stefnu og leið, í samræmi við umferðarþungann í hverri hæðarlínu. Og hægt er auð- vitað að fljúga ansi hátt upp, ef menn (eða tölvur) kjósa og þurfa. Umferðarfluglögin geta því verið býsna mörg og rýmið opnara en á jörðu niðri. Væntanlega yrði þetta með þeim hætti að þeir, sem lengra ætluðu, yrði stýrt á hærri flugleið en þeim sem skemmra fæm, o.s.frv. Þetta kann að hljóma nokkuð fjarstæðukennt nú um stundir, en vísir menn fullyrða að þessi þróun og lausn, sé skemmra undan en margan manninn renni gmn í. Þarna er verið að ræða um ósýnilegar brautir um loftin blá, sem aðeins eru mældar, séðar og flognar af tölvum. Dýr og fyrirferðarmikil umferðarmannvirki á jörðu niðri yrðu væntanlega að mestu úr sögunni. Að- eins farartæki og tölvur. Tölvan er sem óðast að yfir- taka flesta hluti í daglegu lífi okkar. Og svo langt em menn komnir í því, að þeir em farnir að vinna að tækj- um sem stjórnað er með huganum og er t.d. talið að innan áratugar verði slíkur möguleiki kominn í herþot- ur fýrir flugmiðun og tundurskeytaárásir t.d. Unnið er líka að vélum sem bregðast við tilfinning- um fólks og hugsunum, og það án víra og tenginga. Ótrúlegt, en satt. Og nú nýlega t.d., var frá því greint að hafin væri framleiðsla jámbrautarlesta í Evrópu, sem einungis Framhald á bls. 32 4 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.