Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1999, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.01.1999, Blaðsíða 30
Eftir að búseta hófst á þessum slóðum, mun nafnið Reyðarmúli hafa fœrstyfir á hellabýlið, en fjalllendið að baki nefht Reyðarbarmur. Grösugt er framan við hellana og ennþá getur ferðafólk séð móta fyrir vegghleðslu utan um kálgarð, sem þama bar uppskeru, fyrir um átta áratugum. Sunnlenskir hellisbúar á 20. öld Mörgum þykja eyðibyggðir og dulúðin sem þeim fylgir, kapítuli út af fyrir sig, þegar fótatak liðinna kynslóða er þar löngu hljóðnað, þá getur verið undar- legt œvintýri að rýna í söguna, sem að baki býr, hvort heldur er íföllnum bœj- artóftum eða jafnvel í smíði sjálfrar náttúrunnar, hellunum. eir, sem leggja leið sína fró Gjóbakka í Þing- vallasveit til Laugarvatns eða öfugt, komast varla hjó því að sjó slíka nóttúrusmíð, hellana við rætur Reyðarfellsmúla, norðan Laugarvatns- hella, gróðurvinjar sunnan múlans og í skjóli hans. Upphaflega notuðu Laugarvatnsbændur hella þessa, sem eru tveir, fyrir beitarhús, en þeir rúmuðu 4-5 hund- ruð fjúr, að talið er. Vegna þess lúgu fjúrmennimir stundum þama við næturlangt, þó að sú ókostur fylgdi að þeir töldu sig verða fyrir ósóknum duldra afla og hefðu stundum þungar svefnfarir þar af lútandi, vöknuðu iðulega út við dyr, þó að þeir legðust fyrir innst í hellinum. Kvað svo rammt að þessu að stundum höfðu þeir haglabyssu meðferðis, bæði til þess að verjast draugunum og 22 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.