Heima er bezt - 01.01.1999, Blaðsíða 21
Einar Vilhjálmsson:
á islandi
Hvítabjarna er fyrst getið hér á landi í Landnámu Ara
fróða. Þar segir að Ingimundur gamli hafí. fundið beru
og tvo húna á vatni einu og kallað það Húnavatn.
Eftir það fór hann utan og gafHaraldi konungi
lúfu, dýrin. Ekki höfðu menn í Noregi áður séð
hvítabjörnu.
Þá gaf Haraldur konungur Ingimundi skipið Stíganda
með viðarfarmi. Sigldi Ingimundur tveim skipum fyrir
norðan land, fyrstur manna fyrir Skaga.
(Landnáma).
Auðunn vestfirzki „ . , , .
fór sumar eitt til 11 hlUtl
Grænlands og keypti
þar bjarndýr, gersemi mikla og gaf
fyrir það aleigu sína. Sumarið eftir
fór hann til Noregs, hafði dýr
sitt með sér og ætlaði að færa
það Sveini Úlfssyni Dana-
konungi. Gekk hann á land,
leiddi dýrið eftir sér og leigði sér
herbergi. Haraldur konungur frétti
af birninum, sendi eftir Auðuni og
vildi kaupa dýrið eða þiggja að gjöf.
Auðunn neitaði því og sagðist ætla
að gefa Sveini Úlfssyni Danakon-
ungi dýrið. Ófriður var með þeim
konungunum og undraðist Harald-
ur dræði Auðuns, hefti ekki ferð
hanns en bað hann finna sig í
bakaleið.
Auðunn kom fram ferð sinni
með dýrið, þrdtt fyrir mikla erf-
iðleika og gaf Sveini konungi dýr-
ið og þdði laun fyrir.
Auðunn fór síðan í suðurgöngu.
Þegar hann kom tilbaka gaf Sveinn
konungur honum skip með farmi og
fleiri gjafir. Á heimleið
kom Auðunn við Noreg
og hlaut góðar gjaflr úr
hendi Haraldar konurigs. Hafði
hann virðing beggja konunganna.
(Auðunar þáttur vestfirzka).
ísleifur Gizurarson síðar biskup í
Skdlaholti, fór utan til Saxlands og
sótti heim Heinrek keisara Konróðs-
son. Gaf ísleifur honum hvítabjörn
er kominn var af Grænlandi. Var
það dýr hin mesta gersemi. í þess-
ari ferð fór ísleifur ó fund Leonems
pdfa. Pdfi sendi bréf Aðalberto erki-
biskupi í Brimum, að hann skyldi
gefa fsleifi biskupsvígslu d hvíta-
drottinsdag, hinn fýrsta biskup yfir
íslandi.
(Biskupasögur).
í Grænlendinga þætti segir frd því
er Einar Sokkason hafði með sér
bjamdýr af Grænlandi og gaf það
Sigurði konungi Jórsalafara í Nor-
egi. Hlaut hann í mót sæmdir og
metorð af konungi.
Heimaerbezt 17