Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1999, Blaðsíða 47

Heima er bezt - 01.01.1999, Blaðsíða 47
fríður mín. Alltaf var ég að vona að hún ætti eftir að koma með mér á fjall og upplifa frelsið og þennan sérstaka anda sem ríkir hér. Það verður víst ekki. Gangna-Siggi varð dapur á svip. - Það gleður mig að hafa þig hér, það bætur mér dálítið að Hólmfríð- ur er farin. Ég vona að þú verðir í sveitinni hjá okkur áfram. Mér sýn- ist það á svipnum á honum Árna mínum í Árdal að honum þætti það ekki verra. Heiða roðnaði. - Maður veit aldrei hvað verður. Ég kann afar vel við mig í sveitinni og fólkið er einstaklega hlýtt í við- móti. - Hvernig ætti annað að vera. Þegar ung og indæl stúlka kemur í sveitina þá er ekki rétta aðferðin að sýna henni hornin. Heiða hló. - Æ, ég veit ekki. Mamma mín er í Reykjavík og ég verð að drífa mig heim til hennar þegar réttirnar eru búnar. Hún er sjálfsagt farin að bíða eftir að fá mig heim. Veistu, þegar ég fór að heiman með rút- unni þá kveið ég svo hræðilega mik- ið fýrir. Ég hélt að þetta sumar myndi aldrei líða, en það hefúr liðið eins og örskotsstund. - Þannig er lífið. Ef manni líður vel þá flýgur tíminn frá manni en í sorg og einsemd er hver mínúta sem heil eilífð. Ég var að segja þér af henni Hólmffíði minni. Hún er svona ljúf og góð stúlka eins og þú. Nú er hún í vist í henni Reykjavík. Einu sinni vonaði ég að ég fengi að hafa hana í föðurhúsum sem lengst, en nú vona ég að hún hitti einhvern góðan mann sem hún get- ur elskað. Þá get ég sofið rólegur. Þegar hún fór þá var hún enn með hug og hjarta hjá honum Sigurjóni. En það gleður hana hve stúlkan fékk gott heimili. Þannig er lífið. Það er alltaf eitthvað gott við alla hluti. Maður þarf bara að finna það og horfa á þá hlið en ekki hinar. - Litla stúlkan er sérstaklega geð- þekk og góð. Gangna-Siggi brosti. - Það er atlætinu að þakka. Ég vona að hún líkist kjörforeldrum sínum sem mest og verði þeim til sem mestrar gleði. Það er oft þannig, uppeldið mótar manninn. En nú verðum við að halda áfram. Ég sé að Halldór og Jón eru að stíga á bak. Við verðum að vera samstíga og ég má ekki kjafta frá mér allt vit, þó að ég sé í góðum félagsskap. Þú fýlgir kindagötunni hér út, alveg út að þessu felli, þá beygir gatan en þú heldur áfram út móana, beina línu. Þú sérð svo alltaf til mín. Þau stóðu á fætur og nú var allur kvíði horfinn úr Heiðu. Gangna- Siggi brosti kankvís. - Ertu nokkuð að hugsa um að skipta um hest? Heiða hristi höfuðið. - Það er rétt hjá þér. Leyfðu hon- um að bera þig það sem eftir er í dag. Þú sveikst hann um sprettinn í gær. Hann Stóri Jarpur kann betur við að fá að ráða. Um kvöldið voru allir glaðir og ánægðir. Smölunin hafði gengið vel þennan dag, ekkert þurfti að reiða og engin veik kind hafði fundist. Þau voru komin fremur snemma að skála. Eftir að hafa gefið hestunum, strokið þeim og skammtað hund- um, fóru allir inn í skálann. Hann var mun vistlegri en hinn fýrri, rúmbetri og þægilegri. Þarna voru kojur með heydýnum, en tveir urðu að deila hverri koju. Gangna-Siggi sýndi stúlkunum hvar þær ættu að sofa. Hann réði hér sem fyrr, og allir voru ánægðir með það. Heiða var fegin að fá að vera hjá Jóhönnu. Hún kunni afar vel við hana og þær voru orðnar hinir mestu mátar. Að vísu var Jóhanna alltaf að laumast til að bregða sér frá með Andrési og feður þeirra létu það óátalið. Það fór ekki framhjá neinum hvaða unga fólk var að skjóta sér saman. Ámi hafði varla augun af Heiðu, en hún reyndi að láta ekki á því bera, þegar hún var að gjóa til hans augunum. Þegar fólkið hafði matast fór Heiða út að læk, sem var þar skammt frá. Hana langaði til að lauga á sér andlit og hendur. Nú var hún ekki lengur þreytt, enda gat hún alveg eins setið heima í stofu eins og að sitja á Stóra Jarpi. Þvílík- ur hestur. Heiða var strax farin að elska þennan hest og líka Smala, þennan trygglynda hvolp sem treysti á hana í einu og öllu. Hvolp- urinn sýndi sosum engin sérstök til- þrif en hann var betri en enginn. Árni kom í humátt á eftir henni og settist hjá henni. - Gott að hitta þig eina. Heiða brosti. - Þetta var yndislegur dagur. Stóri Jarpur er sá besti hestur sem ég hef sest á. Hann er stórkostlegur. Það var líka ómetanlegt að vera með Gangna-Sigga. hann sagði mér svo vel til að ég gat ekki gert neina vit- leysu. Árni brosti ánægjulega. - Ég heyri að þú ert orðin ástfang- in af heiðinni hérna og öllu sem henni fýlgir. - Já, ég held það. - Það er gott. Þú getur farið hér í göngur eins oft og þig lystir þegar þú ert gift mér. Heiða glotti stríðin á svip. - Þú átt engan Stóra Jarp. - Nei, en ég fékk að halda undir hann á meðan hann var graður og á undan honum fimm vetra fola sem ekki virðist ætla að vera eftir- bátur föður síns. - Nú fórstu alveg með það. Þau göntuðust dálitla stund en síðan varð Ámi alvarlegur. - Sigurveig sleit trúlofuninni við Pál bróður. - Ég veit það. Hún skrifaði mér. Það er leiðinlegt hvernig það fór. Ámi yppti öxlum. - Kannski áttu þau aldrei saman. Páll fór suður strax á eftir. hann ætl- aði að reyna að telja henni hug- hvarf en komst þá að því að hún er trúlofuð honum Lámsi og á von á bami með honum. Heiða kinkaði kolli en Árni hélt áfram. - Páll er að fara utan. Hann hefur ákveðið að stunda nám sitt í Dan- mörku. Kannski grær hjartasorgin þar. Framhald í næsta blaði Heima er bezt 39

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.