Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.11.1954, Qupperneq 5

Æskan - 01.11.1954, Qupperneq 5
Jólablað Æskunnar 1954 gustinn í hvíta og hreina vetrar- ríkinu mínu. (Ris hátíðlega á fætur og fer. Hópur skólabarna lcemur inn, og þau sgngja einhverjar vísur, sem vel eiga við veturinn. Þau fara út. Vetur konungur kemur inn). VETUR: Dásamlegt! Stórkost- legt! En hvað mér líSur vel. Snjór, is og kaldur svali. Svona á það að vera! Nú ætla ég að kalla á þjóna mína. (Slær sprotanum i borðið). Komið inn, allir þjónar mínir! (Þau koma inn öll þrjú og hneigja sig). Þið hafið öll framkvæmt sldp- anir mínar alveg prýðilega. Nú vil ég vita, hvernig mönnunum líkar lífið í ríki mínu. FROSTI: Margir kvarta undan því, að það sé alltof kalt. VETUR: Nú, þeir hafa hús og föt og eldsneyti. Hvers vegna þurfa þeir að kvarta? FROSTI: Það eru ekki nærri allir, sem eiga hlý föt og eldivið. VETUR: Þeir ættu að vera eins hyggnir og björninn. Hann leggst í híði, og þar er nógu hlýtt. Þeir ættu að vera eins forsjálir og hérinn. Hann fær sér loðnari feld. Þeir ættu að vera eins út undir sig og farfuglarnir. Þeir fara til suðrænna landa, þar sem þeir hafa nóg að éta. NÁTTSVARTUR: Margir lcvarta undan því, hve dagurinn er stuttur. Þeir þrá að dagarnir lengist og birti í lofti. VETUR: Ótal stjörnur lýsa og loga um allan himin (Bendir upp). Sjáið þið, þarna tindrar Vetrar- brautin og ljómar í allri sinni dýrð. Og þarna brunar Karlsvagn- inn gegnum bláan geiminn. En kannski hefur fólkið gleymt að stjörnur eru til. O jæja (andvarp- ar). Nú-nú, frú Mjöll, hvað hefur þú að segja? MJÖLL: Bændurnir eru ánægð- ir, því að snjórinn skýlir jörðinni og vetrarlaulcurinn mun koma grænn og lifandi undan honum. En fuglarnir eiga erfitt um að finna korn í nef. VETUR: Ég vona mennirnir gleymi ekki að gefa fuglunum mola af allsnægtum sínum. Já, þið hafið rækt störf ykkar vel, þjónar mínir, og ég er ánægður. Unaðslegt er út að líta. Snjórinn breiðist mjúkur og hvítur yfir holt og hæðir, fjöll og dali. Bara að------. (Norðan- garri rgðst inn með asa og gaura- gangi). NORÐANGARRI: Ohæ — ohó, ohæ — ohó, gaman, gaman! Ég er búinn að sópa snjónum saman í stóra skafla! Hahæ ■—- hoho, liíhí —■ húhú! Ég þeyti snjónum í háa- loft og hræri í honum, svo að hann verður eins og rjómafroða, þeyttur rjómi sko — nam nam. Nú stöðv- ast allar samgöngur og mannræfl- arnir verða að kúra inni í húsum. Hæ, gaman, gaman. (Hann hring- sngst eins og skopparakringla og æðir aftur og fram meðan liann talar). VETUR: Æææ, hvaða gaura- gangur er í þér, órabelgurinn þinn? Stilltu þig nú og hagaðu þér eins og maður. Annars verð ég að láta lumbra á þér eða stinga þér í stein- inn! NORÐANGARRI: Hahahæ, gam- an, gaman! Þá þýt ég burt til ann- arra landa. Ég æði svo liart, að enginn getur náð mér. Sæl — sæl! (Ilann þýtur út). VETUR: Það var svei mér gott að hann fór, þorparinn sá arna. — Jæja, þjónar mínir, nú skuluð þið hvíla ykkur andartak. Við erum öll þreytt eftir þetta umstang. FROSTI, MJÖLL og NÁTTSV.: Þakka yður fyrir, herra konungur! (Þau hneigja sig tvivegis og fara). VETUR (geispar): Ég er hálf- syfjaður. (Geispar aftnr). Alveg grútsyfjaður o-o-ho-ha. (Sofnar og hrýtur). VORDÍSIRNAR (þrjár eða fl. tritla léttstígar inn, tipla og læðast og líla smegkar og undrandi í kringum sig, hvíslast á.) 1. DÍS: Þei, Vetur konungur er sofandi! 2. DÍS: En livað hann er þreytu- legur og ellilegur. 3. DÍS: Haldið þið hann vakni, ef við dönsum goluþyt og lækja- hopp? VETUR (valmar, litur sgfjulega i kringum sig). Er einhver hér? (Kemur auga á disurnar, sem eru að regna að fela sig). Nei, sjáum til. Hverjar eru þið, stelpur? 1. DÍS (feimin): Við erum vor- dísirnar. 2. DÍS: Það erum við, sem kom- um með sólskin og fuglasöng. 3. DÍS: Það erum við, sem strá- um jörðina fegurstu blómum. VETUR: Jæja, einmitt það. Svo þessir sunnangestir eru svona snemma á ferð. En varið yltkur, að ég láti ekki Frosta þjón minn ldípa í nebbana á ykkur. Út með ykkur allar saman. Út, segi ég. (Hann ris upp og rekur dísirnar út, og þær taka til fótanna i ofboði). Að maður skuli ekki hafa frið til að hvíla sig. Ég er svo syfjaður að ég get ekki lialdið opnum augun- um. (Geispar, sezt, sofnar. Meðan Vetur sefur, koma nokkur börn inn og sgngja.) VETUR (slær sprota sínum í borðið): Komið hingað þjónar mínir! (Enginn kemur). Komið hingað þjónar! — — (Hærra): Þjónar, komið undir eins! — — Hvar geta þeir verið? Hvers vegna koma þeir ekki? (geispar) a-ah, ég er svo óttalega syfjaður -—■ al- veg grútsyfjaður. (Sofnar aftur. Vordisirnar koma trítlandi og dansandi inn). 1. DÍS: Nú er Vetur konungur sofnaður aftur og sefur nú fast. Hann vaknar varla aftur. 2. DÍS: Allir þjónar hans hafa yfirgefið hann. Lækirnir hoppa og hjala. Allir skaflar eru horfnir. 3. DÍS: Og blessuð sólin vermir allt og þíðir. ALLAR: Og nú kemur vorið. Við skulum láta blómin spretta í brekkunum og ljóma um engi og tún. Við skulum syngja í kapp við fuglana. Við skulum dansa og vera kát. (Þær sgngja eitthvert vorlcvæði, t. d. „Vorvindar glaðir“ og stiga dans. Fleiri börn koma inn og slJn9ja og dansa líka.) Bregtt úr sænsku. G. ☆ 105

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.