Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.11.1954, Qupperneq 10

Æskan - 01.11.1954, Qupperneq 10
JólablaS Æskunnar 1954 Fyrsti snjór í Japan. Fjöldi fólks þyrptist að úr öllum áttum. — Sjáið þið þennan peyja, sagði einhver úr hópnum og benti á Bjarna. — Hvernig datt þér annað eins og þetta í liug drengur, að kasta grjóti? spurði lögregluþjónn- inn. Bjarni hékk þarna í greip lögreglumannsins lítill og hræddur. Hann leit á föður sinn og fór að kjökra. Nú fékk hann sjálfur ekki að fara heim til móður sinnar. Honum var nú farið að skiljast, livílíka fásinnu hann hafði lagt út í. — Þeir drukku, sagði hann loksins — og það eru jólin á morgun — og svo hugsaði ég — það verður enginn matur — og ekkert til handa okkur, ef pabbi drelckur fyrir alla peningana. Það síðasta æpti hann hágrátandi. Lund lögregluþjónn sleppti takinu af hálsi drengsins og tók í hönd honum. 110 — Svona, svona, sagði hann sefandi. — Beyndu að vera rólegur. Þetta lagast allt. Þá stóð faðir lians við hlið lians. Það var alveg runnið af lionum — og ekki leit út fyrir, að hann væri neitt reiður. — Það er auðvitað ég, sem á að svara liér til sakar, svo langt sem það nær, sagði faðir Bjarna. —« Má Bjarni ekki koma heim með mér núna. — Jæja, svaraði Lund. — Allt í lagi Johansen. En gættu drengsins þins og gættu að sjálfum þér. Bjarni er of góður drengur til þess að þurfa oftar að grípa til slíkra örþrifaráða. Við tölumst svo við seinna. Pabbi þakkaði fyrir, og svo fór Bjarni heim með honum. Hann gekk þarna þögull og alvar- legur, og Bjarni leit oft framan í hann og vissi ekki, hvort hann var reiður eða ekki. —- En — hugsaði hann. — Það er sama. Ég kastaði grjóti og réðist á knæpuna. Þeir urðu að fara út. Hann snölcti nokkrum sinnum og þá tók faðir lians hann í faðm sér og hvíslaði: — Aumingja drengurinn minn! Kvöldið eftir, þegar kirkjuldukkurnar hringdu inn jólahelgina, sátu þau öll, mamma og pabhi og systkinin þrjú, umhverfis fallega dúlcað borð með margs konar góðgæti á. Úti í liorni stóð litla jólatréð frá Pedersen fagurlega skreylt með ljósum og flöggum og myndum og undir því voru nokkrir smábögglar. Það ljómaði af andliti Bjarna litla. En er hann hugsaði um daginn í gær og grjót- lcastið, þá fór um hann lirollur. Ilann gat varla trúað því, að það liefði verið liann sjálfur, sem liefði gert þetta og gengið berseksgang og æst hina upp. Og vissulega var það gott, að þetta þurfti hann vonandi aldrei að gera oftar. Því að í morgun, þegar Lund lögregluþjónn lcom til að yfirheyra liann, þá sagði pabbi, að hann væri húinn að láta skrá sig og ætlaði að ganga í góðtemplarafélagið og hefði lofað að bragða ekki áfengi framar. — Nú skyldi lcoma nýtt liljóð i strokkinn, sagði pabbi. Yfirheyrslan gelclc vel og var ekkert erfið. Lund var bara góðlátlegur og skrifaði niður það, sem Bjarni sagði, og stundum kinkaði hann kolli. — Við hefðum auðvitað átt að vera búnir að koma knæpunni liennar frú Hansen fyrir kattar- nef fyrir langa löngu, en það er hægara sagt en gert, bætti liann við og andvarpaði. — Já, það er hægara sagt en gert, hugsaði Bjarni. En nú átti allt að verða gott. Nú mundi pabbi elcki liggja í rennusteinum framar eða sitja inni hjá frú Hansen — og mamma yrði ekki útgrátin dag eftir dag. Og nú voru jól, og pabbi var heima! Margrét Jónsdóttir þýddi.

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.