Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1954, Side 12

Æskan - 01.11.1954, Side 12
Jólablað Æskunnar 1954 Ragnheiður ]ónsdóttir: Stjarnan. PERSÓNUR: Jósef, Maria, vitrinqarnir, gestgjafinn, húsfregja, Miriam, dóttir þeirra, ferðamaður, kaupmaður, kona hans, ferðafólk, hvitldæddar verur. 1. ÞÁTTUR Sviðið er vin i eyðimörku. Vitr- ingarnir þrír, Balthasar, Kaspar og Melkior, koma þreyttir og göngu- móðir. BALTHASAR: Hér skulum við hvilast, bræður. Guð hefur af náð sinni látið þennan gróðurblett verða á vegi okkar, svo að við skyldum ekki örmagnast áður en markinu er náð. KASPAR: Ég verð sannarlega hvíldinni feginn, því að fótsár er ég orðinn og kverkar mínar þurrar af langvarandi þorsta. MELKIOR: Hér er tærasta upp- sprettulind send úr djúpum jarð- ar okkur til svölunar. BALTHASAR: Og sjá. Hér liggja döðluklasar á jörðinni, eins og manna af himnuin sent, svo að við megum nærast. (Vitringarnir eta döðlur og drekka lindarvatn og setjast svo niður og hvíla sig.) KASPAR: Hvar er nú stjarnan, sem visaði okkur veginn. Hví byrg- ir hún auglit sitt og skilur okkur eftir villuráfandi? MELKIOR: Óttastu ekki, bróðir. Sannarlega mun stjarnan birtast okkur á ný. BALTHASAR: Já, hún mun birtast á ný og leiða okkur að lok- um á fund hins nýfædda konungs, svo að við megum veita honum lotningu og færa honum gjafir. KASPAR: Ó, mig auman. Allar 112 Leikur í þrem þáttum. eigur mínar hef ég selt fyrir gullið, sem ég ber í pyngju minni, og kraftar mínir eru að þrotum komnir. BALTHASAR: Ég átti sölubúð fulla af viðsmjöri og víni, og menn komu hvaðanæva að til þess að verzla við mig. Ég seldi búðina í hendur nágranna mínum, svo að ég mætti eignast reykelsi og myrru og færa konunginum. MELKIOR: Þið vitið, bræður mínir, að ég hef aldrei eignazt neitt af þessa heims auðæfum, og því færi ég konunginum aðeins ást mína og lotningu. KASPAR (við Melkior): Það auðgast enginn á því að stara stöð- ugt á stjörnurnar. Ég veitti mér ekki þann munað nema á hvíldar- stundum, sem oftast voru stopular. BALTHASAR: Við sáum allir stjörnuna, hver í sinu landi, og hún heindi leiðum okkar að einu og sama marki. (við Melkior): Þitt trúnaðartraust hefur aldrei brugð- izt, og það hefur verið leiðarljósið, þegar óveðursskýin hafa hulið stjörnuna sjónum okkar. MELKIOR: Ljómi stjörnunnar er svo skær, að hann lýsir i gegn- um dimmustu ský. KASPAR: Ég sé hvergi bjarma af stjörnunni. Ef til vill höfum við farið villir vegar. MELKIOR: Hræðumst ekki, bræður. Stjarnan vakir yfir okkur. (Hefur upp rödd sína.) Skín þú, stjarna, öllum stjörn- um fegurri, svo að myrkrið grúfi ekki lengur yfir jörðinni, og sort- anum létti af þjóðunum. Sjá, Ijós þitt er mikið, og það mun lýsa öllum mönnum i austri og vestri, allt til endimarka ver- aldar. Fyrir Ijóma þínum munu kon- ungar krjúpa, því að hvert það ríki, sem ekki vill lúta þér, mun líða undir lok. Skín þú, árborna morgunstjarna, svo að þreyttir vegfarendur fái fleygt sér í duftið fyrir fótskör hans, sem mun ríkja um eilífð. (Vitringarnir hglja andlit sin og leggjast iil svefns. Stjarnan birtist d himninum. Hvitktæddar verur koma fram á sviðið og stíga dans eftir jólalagi.) 2. ÞÁTTUR Sviðið er gata í Betlehem. Til vinstri er stórt gistihús, til hægri lítill gripakofi. Gestgjafinn situr úti fyrir dyrum. Þár eru einnig smá- borð og stólar fyrir gesti. GÉSTGJAFI (telur peninga i liálfum hljóðum): Þá er þessi kassi að verða fullur. Það var mikil guðs- blessun, að keisaranum skyldi hug- kvæmast að láta taka þetta mann- tal. Þetta eru sannkallaðir dýrðar- dagar. (Heldur áfram að telja peningana.) HÚSFREYJA (kemur fram i dgrnar): Hvað á að matbúa handa mörgum í kvöld? GÍESTGJAFI: Það get ég ekki sagt um með vissu, kona. Við hýs- um á meðan húsrúm leyfir, þrengj- um að okkur, troðum i hverja smugu, tökum á móti öllum, sem geta borgað tilskilið gjald. HÚSFREYJA: Ég set þá upp stærstu pottana og fylli ofninn af brauðum. (Fer inn.) GESTGJAFI: Gerðu það, kona. Ekki mun af veita. (Telur enn peninqa.) MIRIAM (með hægri höndina i fatla): Má ég sjá, hvort kistillinn er orðinn fullur af peningum, faðir minn. GESTGJAFI: Ert þú þarna, Ijós augna minna. Hvernig líður hend- inni í dag? MIRIAM: Hún er alveg eins. GESTGJAFI: Ekki agnarlítið betri, rétt að það votti fyrir, að máttur sé að færast i hana? MIRIAM: Það get ég ekki fundið. Hún er alltaf jafn köld og tilfinn- ingalaus. GÉSTGJAFINN (fórnar hönd- um): Hvers á ég að gjalda, aumur maður, að drottinn skuli leggja á mig þessa þungu byi-ði. FERÐAMAÐUR (fátæklcga bú- inn): Guð sé með ykkur, góða

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.