Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1954, Page 27

Æskan - 01.11.1954, Page 27
Jólablað Æskunnar 1954 Sauðanesgrani. Hann var Ilúnvetningur að ætt og uppruna þessi slólpagripur og eftirlætis goð allra, sem kynntust honum. Keyptur frá Sauðanesi í Húnavatnssýslu vorið 1942. f haust, 18. nóvember 1953, var hann að velli lagður á heimili eiganda síns, Tungumúla á Barðaströnd. Svo var Grani vel látinn á heimili sínu, að mörg tár féllu með honum þar. Hann var vel i meðallagi stór, bleikur á lit, en dölckur á fax og tagl, hófastór mjög. Skapið var ákaflega þýtt, en þó mikið, og tók hann venjulega rösklega á móti, ef aðrir hestar réðust á hann, og vissi ég engan hest svo slægan, að hann færi sigur- för til Grana. En að fyrra bragði réðist liann aldrei til atlögu. 5rið menn var liann svo góður, að ungbörn gátu skriðið við fætur lians. Enda virtist hann þekkja börnin og var þeirra eftirlæti, eins og sjá má af myndinni. En venjulega réði hann liraðanum og leiðinni, ef börn sátu á baki. Þrekliestur var hann með afbrigðum, og var liann fyrst tilkominn að hlaupa, er liann hafði farið svona einn eða tvo fjallvegi áður. Gangur hans var brokk og skeið, og gat hann farið greitt á skeiði, þegar hann var orðinn heitur, en á vondum vegum beitti hann brokkinu. Hann var hafður til allrar ferðum út í Rásir, og alltaf var Kolur, sem komst nú í æ hetri þjálfun, með i förinni og var ávallt aðallietjan. En misjafnlega lauk stundum áflogum þeirra ferfætlinganna, því oft var við erfiðar að- stæður að glíma, og hvorir um-sig notuðu hæfileika sína, meðfædda og þjálfaða, út í æsar. Jóhann Sveinsson. Jölasaga. Það var aðfangadagur jóla. Börnin á Nesi eru á þönum úti og inni, allir verða að keppast við að undirbúa fyrir jólin — hina mildu hátíð, sem haldin er í minningu um fæðingu frelsarans. Axel, sem er tólf ára gamall dugmikill drengur, er úti við gegningar, þvi að pabbi er í kaupstaðnum að ná í jólavarninginn, sem varla verður mikill, vegna efnaleysis, og svo er færðin svo þung, að erfitt er að koma miklu þennan langa veg út Nes- tangana. Elsa er að þvo bæinn. Hún er nú líka orðin svo feikna dugleg vinnustúlka, bráðum 14 ára heima- sæta. Yngri systkinin hjálpa henni til eða dunda við jólaföt brúðubarnanna sinna, og í eldhúsinu stend- ur mamma og steikir laufabrauðið. Allir flýla sér og keppast við, svo að öllu verði brúkunar og dugði ekki síður fyrir vagninum en öðru, enda kom þá hið mikla þrek hans sér vel. Það er fremur fátítt að ritaðar séu minningar um fallna gripi, ég vil segja allt of fátítt. Þeir verðskulda venjulega, að vel sé eftir þá mælt, ekki sízt hestarnir, sem mér virðast skynugri en margar aðrar skepnur. Þeir menn, sem vilja kynnast hest- inum, verða snortnir af þeirri tilfinningu, sem aðrir skilja ekki, sem aldrei hafa komizt í það samband. Kynningin við hestinn hefur stórlega mannbætandi áhrif. Viðmót hestsins er fölskvalaust og hreint, þar er ekkert yfirborðsflaður, sem hjaðnar eins og sápukúlur, ef á er blásið. Eigandi Grana og aðrir, sem kynntust honum, munu eiga að veganesti áhrifin frá samverustundunum og þakka honum þau sem horfnum vini. Hann var fluttur frá æskustöðvum sinum og átthögum og varð að sætta sig við nýjan stað, en þann stað þráði hann til dauðadags, þvi að honum var tryggð- in í hlóð borin. Margur maðurinn mætti þakka fyrir, ef hann liefði jafn sterka átthagatryggð og þessar svokölluðu skynlausu skepnur. Að lokum vil ég þakka Æskunni fyrir að flytja þessi fátæklegu orð mín, sem ég tel þó að orðið gætu þeim til íhugunar, sem enn hafa ekki komizt i snertingu við áhrifin af því að lifa í samfélagi við skepnurnar. Ó. K. Þ. 127

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.