Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1954, Side 30

Æskan - 01.11.1954, Side 30
Jólablað Æskunnar 1954 Verðlaunaþraut. Að þessu sinni hefur Æskan ákveðið að bjóða kaupendum sínum og lesendum til skemmtilegrar samkeppni. Hún heitir 150 króna verðlaunum fvrir beztu frumsamda sögu, sem henni berst fyrir 1. febrúar 1955. Aðeins þau skilyrði eru sett, að sagan sé að minnsta kosti 50 orð, helzt meira, — en öll orðin verða að byrja á sama staf. Og auðvitað verður að vera samhengi í sögunni, eða frásögninni. Og svo verður bezta sagan birt i Æskunni! Hver verður snjallastur? „Farðu út og leiktu þér, Bokki, gerðu það fyrir mig,“ sagði mamma, og nú gætti óánægjuhreims i röddinni. „Pabbi var önnum kafinn, og hann hafði ekki tima til að spjalla við þig núna. Kannski hefur hann meira næði á morgun.“ Hann fór út og stanzaði til að líta á Nönnu. Hún var hressileg, lítil og rjóð innan í sænginni sinni, það er að segja það, sem hann sá af henni. Það gæti orðið gaman að henni, ef liún stækkaði einhvern tima og hætti að vera sísofandi. Ef Tonnni leyfði honum ekki að eiga í húsinu þeirra félaganna, þá gætu hann og Nanna byggt annað handa sér. Hann heyrði, að Tommi var að koma með Nikka og Gumma í hornhúsinu. Hann beið, þangað til þeir létu hjólin sin undir benzínstöðvar tréð hans. Þegar Tommi var farinn inn til að heilsa mömmu, sagði Bokki: „Heyrið þið, ég hef náð i dauðan fugl.“ Nikki og Gummi litu á hann og svo hvor á annan. Um stund virtust þeir ekki vita, livað þeir ættu að segja. „Fugl?“ sagði Nikki. „Dauðan fugl?“ sagði Gummi. „Hvað með það?“ spurði Nikki. „Já, hvað um það?“ hafði Gunnni eftir. „Mér datt í hug, að ykkur langaði til að sjá hann, og ég gæti . . . Ég ælla að spyrja Tomma,“ sagði Bokki. Hann beið, þangað til Tonnni kom út, og var áhyggjufullur, en Nikki og Gummi hvísluðust á. Ilann sagði: „Heyrðu, Tommi, ég hef hérna dauðan fugl, og mig langaði til ...“ Augnablik virtist áhugi Tomma vakna, en Nikki 130 sagði: „Dauðan fugl, Tommi. Hvað getum við gert við dauðan fugl?“ „Ekkert,“ sagði Tommi. Bokki var nú í öngum sínum. Hann hafði haldið, að þá langaði til að sjá hann að minnsta kosti. „Hann er þarna úti í skýlinu, í hrúgunni ...“ „Þú verður að taka hann þaðan, Bokki.“ Tommi var hastur, af því að hinir strákarnir heyrðu. „Þú verður að vera á burt með hann þaðan. Við viljUm ekki hafa dauða og gamla fugla í því skýli.“ „Auðvitað," sagði Nikki. „Þú verður að taka hann þaðan strax.“ Þeir fóru með honum að skýlinu. Hann lyfti fuglinum varlega úr felustaðnum, sem hann hafði valið honum. Þó að liann færi sér hægt og gæfi þeim nægan tíma, spurðu þeir engra spurninga og gáfu honum engan gaurn. Hann horfði á, meðan þeir tóku út fjalirnar sínar, minni fjalirnar, sem þeir ætluðu að nota í liúsið. Hann byrjaði: „Ef þið viljið lofa mér að vera með í húsinu, megið þið eiga fuglinn minn með mér.“ En Tommi urraði: „Við viljum ekkert hafa með dauða og gamla fugla, er það ekki, piltar? Nikki sagði: „Nei, það er alveg rétt.“ Og Gummi bætti við: „Og við viljum ekki heldur nein smábörn í húsið okkar.“ Bokki sagði: „Hver vill líka nýta gamla og ljóta húsið ykkar?“ En þeir voru á leið burtu með spýt- urnar, í áttina til staðai'ins í garði Nikka og Gumma, þar sem þeir voru að byggja húsið, og þeir voru að tala saman á leiðinni, án þess að veita honum minnstu athygli. Þegar þeir voru farnir, tók hann eftir því, að hann hélt enn þá á dauða fuglinum í liendinni. Ilann horfði á hann um stund og vara í vafa um, hvað liann ætti að gera. Þá varð liann skyndilega að einu brosi. Hann bar fuglinn varlega upp að anddyrinu og lagði hann með hægð inni í vagninn til Nönnu, við fætur henni. Hún svaf enn þá. En ef til vill gæti hann, þegar hún vaknaði, talað við hana um fugl- inn, og þau gætu byrjað að ráðslaga um að byggja bús bara fyrir þau ein. Þýtt úr ensku.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.