Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1954, Side 31

Æskan - 01.11.1954, Side 31
Jólablað Æskunnar 1954 Huglestur. ÞafS er minni vandi en margur hygg- ur að vera „huglesari“. — Það er að segja, ef hentug aðferð er notuð. Taktu pappirsblað, um það bil 20 cm á hvern veg og ferhyrnt. Brjóttu það þannig, að fram komi níu jafn- stórir ferliyrningar. Láttu svo einlivern leikfélaga fá blaðið, og segðu honum að skrifa kvenmannsnafn á ferninginn, sem er i miðju, en karlmannanöfn á alla hina. Segðu honum svo að rífa blaðið gæti- lega eftir öllum brotunum, svo að úr þvi verði níu miðar jafnstórir og hver með einu nafni á. Síðan á hann að brjóta hvern miða tvöfaldan, svo að nafnið sjáist ekki. Miðarnir eru svo látnir ofan í öskju eða hatt. Þú tekur nú miða upp úr hattinum eða lætur rétta þér hann, lítur ekki á hann, en leggur hann á ennið. —• Karlmannsnafn, segir þú. Það reynist rétt. Þannig heldur leik- urinn áfram. Þegar þú færð t. d. 5. mið- ann, segir þú: —• Kvenmannsnafn. Þetta reynist rétt, og allir eru stein- hissa. — Ja, þetta er dularfullt — nema ef það er athugað, að kvenmannsnafn er aðeins á einum miða, og það er sá i miðið. Enn fremur að blaðið var rifið eftir brotum í niu seðla. Þess vegna er rifinn jaðar á alla vegu á aðeins einum miðanum. Á öllum hinum er ýmist einn jaðar skorinn eða tveir. Og þetta finn- ur þú greinilega með fingrunum, þegar þú leggur miðann á ennið. Töfluþrautir. Töfluþrautir eru góð dægradvöl. Mest gaman er að smiða sjálfur bæði borðið og töflurnar, og það er ósköp vandalítið. Borðið sjálft má vera kross- viðarspjald, og meðfram brúnum eru grannir listar, gerðir til þess eins að töflurnar fari ekki út af og skrölti ekki né renni til. Töflurnar sjálfar mega líka vera úr krossviði. Stærðin á töfl- um og borði fer eftir því, fyrir hvaða tegund töfluþrautar það er ætlað. Leikreglurnar eru einfaldar. í raun og veru er reglan aðeins ein: Meðan á leik stendur, má aldrei lyfta töflu til þess að færa hana, heldur aðeins renna henni cftir horðinu. Tilgangur- inn er sá að þoka töflunum, sem lagðar eru af handahófi á borðið í upphafi leiks, í einliverja ákveðna röð i eins fáum leikjum og unnt er. Það er mikill kostur á töfluþraut- um, að þær eru gerðar fyrir einn. Það er hægt að spreyta sig á þeim, þegar engan félaga er að hafa til þess að skemmta sér við. I. Fimm töflu þraut. / /7utt 3 y s Hér er það viðfangsefnið að þoka töflunum þannig til, að 3 og 6 skipti um bás. Töflurnar eru 5. Góð stærð er að hafa þær 3x3 em úr 5 mm kross- viði. Má líka hafa stifan pappa. Gott er að strika reiti á borðið eftir töfl- unum og skrifa númer á þá og töfl- urnar líka eins og sýnt er á mynd- inni. Gaman er að lita 3. og 6. töflu, aðra t. d. græna og hina rauða, svo að þær séu frábrugðnar hinum. Þessa þraut á að vera hægt að leysa í 17 leikjum. Tíu töflu þraut. 1 ^ 2 3 V I fíidt lo B s 9 /Q Hér eru 10 töflur af þrem stærðum. Hinar stærstu tvær, merktar A og B, mættu vera 6x6 cm, 4. og 8. 3 X 6 cm, og 2., 3., 5., 6., 9. og 10. 3x3 cm. Stærð borðsins verður þá 12x15 cm innan lista. A töflu skal lita eða mála rauða, en B töflu bláa. Eins skal mála listana í liornunum með sama lit og er á töfl- unum. Viðfangsefnið er að skáka töflunum þannig til, að hausavixl verði á A og B. A komi í bláa hornið og B í hið rauða. Þetta á að takast i 55 leikjum. Hvað mundiráu gera? Ef þú fyndir á götunni einhvern verð- mætan hlut, sem þú átt ekki? Ef þú brytir i ógáti fallegt leirker eða postulínsbolla án þess að nokkur sæi? Ef þú rekst á einhvern eða stjakar við einhverjum óviljandi? Ef þú sæir strák, álika stóran og þú ert, hrekkja annan, mildu minni? Ef þú sæir kisu vera i þann veginn að ná i fuglsunga? Ef þú yrðir votur í fæturna á leið- inni heim úr skólanum? Ef mamma skyldi biðja þig að skreppa eitthvað fyrir sig, rétt i þvi að skemmtileg saga er að byrja i barna- tímanum? Svaraðu nú þessum spurningum með sjálfum þér, alveg hreinskilnislega! Geturðu ráðið gátuna. Geiri var starfsinaður i stórri verk- smiðju. Einn góðan veðurdag vildi svo til, að hann varð samferða verksmiðju- eigandanum í lyftunni, og tóku þeir tal saman. Verksmiðjueigandinn var kumpánlegur og hafði oft áður spjallað við Geira. —• Jæja, hvað segirðu gott? spurði verksmiðjueigandinn. —• Allt sæmilega gott, sagði Geiri. Það er bara þetta, sem nagar mig, að þú verður bráðlega fyrir einhverju slysi. — Ég? Af hverju heldurðu það? — Ég skal segja þér, að mig dreymdi fyrir þvi. Og ég er svo berdreyminn. — Og hvað dreymdi þig? Og hvenær dreymdi þig þetta? — Mig dreymdi í nótt, að ég sá þig fara upp í flugvél. og ég sá flugvélina leggja af stað. Eftir fáeinar minútur sá ég hana steypast logandi til jarðar. Það var ægilegt. — Ja, einmitt það. Mér þykir fyrir þvi, Geiri, að ég verð að segja þér upp vinnunni. Þú hefur gert þig sekan um trúnaðarbrot. Þetta var þungt áfall fyrir Geira. En hvernig stóð á þessu? Hvað var það, sem Geiri hafði gert ? Og hvernig komst verksmiðjueigandinn að því? Geturðu ráðið ])á gátu? 131

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.