Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1969, Qupperneq 6

Æskan - 01.01.1969, Qupperneq 6
niiiiiiiiiiniiiiiiiniiiiiii.nl ■iniiiininiiiiiiiiiiniiiiiiininininininininininininiiiiiiiniiiiniiiinniinnijniniiiiniiliniiiininjniniiiuiiiiiiiimiiiiiininiiiinniininininiiiiniiiiiiininiiiiiiiiiiiiiiiininiiiiii.iiiii ESKBH ...................................................................................................................................................imiiiiii.............................................................. 70. árg. 1. tbl. Ritstjóri: GRÍMUR ENGILBERTS, rltstjórn: Lækjargötu 10A, simi 17336, heimasimi 12042. Framkvæmdastjóri: KRISTJÁN GUÐMUNDSSON, skrifstofa: Lækjargötu 10A, heimasfmi 23230. Auglýsingar: Hörður Árnason, skrifstofa: Lækjargötu 10A, sfmi 17336. Útbreiöslustjóri: Finnbogi JúlIus6on, skrifstofa: Lækjargötu 10A, sími 17336. Árgangur kr. 250,00 innan- lands. GJalddagi: 1. aprll. f lausasölu kr. 35,00 elntakið. — Utanáskrift: ÆSKAN, pósthólf 14, Reykjavík. Útgefandi: Stórsfúka íslands. Prentun: Prentsmiðjan ODDI hf. Janúar 1969 Öll íslenzka þjóðin minntist þess 1. desember s. I. að þann dag voru liðin 50 ár síðan fullveldi íslands var viður- kennt. Hinn 1. desember árið 1918 var stór dagur í íslandssögunni. Að baki atburðum hans lá löng og hörð barátta. i þeirri baráttu höfðu margir mikilhæfir synir þjóðarinnar haft gifturíka forustu. En eitt nafn ber þó hæst allra, nafn Jóns Sigurðssonar forseta. Óeigingjarns starfs hans og baráttu mun íslenzk þjóð minnast um allar aldir. Nú að loknu hálfrar aldar fullveldistímabili íslendinga er ný kynslóð tekin til starfa. Þessi unga kynslóð þakkar þeim, sem færðu þjóð hennar fullveldi og frelsi. Nú skiptir það öllu máli að hin unga kynslóð skilji og muni að sjálfstæðlsbarátta fslands er ævarandi. Henni lauk hvorki með full- veldinu 1918 eða stofnun lýðveldisins 17. júní 1944. Frelsið er fjöreggið I hendi allra kynslóða á fslandi og því má enginn fslendingur gleyma. Jón Sisurðsson 50 ára fullveldi Stjórnarráðshúsið í Reykjavík. Kirkjan. □ Strandarkirkja mun nú eiga í vörzlu skrifstofu blskups á milli 6—7 milljóna króna. □ fsiand er eins og kunnugt er eitt biskupsdæmi, vígslu- biskupar eru tveir og prófasts- dæmi eru tuttugu og eitt. Árið 1963 vor 116 prestaköll og 289 sóknir á landinu. □ Nú eru starfandi 112 prest- ar i landinu, æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar, sjúkrahúsprest- ur í Reykjavík og farprestur á vegum þjóðkirkjunnar. Auk þess starfar islenzkur prestur i Kaup- mannahöfn. Biskup landsins er Sigurbjörn Einarsson, og var kostnaður við embætti hans á s.l. ári rúm milljón kr. og er sá kostnaður greiddur úr ríkis- sjóði. □ Heildarútgjöld rikissjóðs vegna kirkjumála s.l. ár námu samtals rúmlega 39 milljónum króna. Þar voru laun til prófasta og sóknarpresta samtals rúml. 24 milljónir króna. Þá greiðlr ríki embættiskostnað présta, síma og póstgjöld, einnig nokk- urn húsaleigustyrk og kostnað við viðhaid prestsseturshúsa á kirkjujörðum í eigu rikisins. Ríkið greiðir einnig laun söng- málstjóra þjóðkirkjunnar, um- sjón með kirkjugörðum, og eft- irlit með prestssetrum og til æskuiýðsstarfsemi þjóðkirkj- unnar. GLEÐILEGT ÁR!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.