Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1969, Blaðsíða 53

Æskan - 01.01.1969, Blaðsíða 53
Arngr, Sigurðssonr 29. júlí 1968 kom Douglas DC-6B flugvélin „Eiríkur rauði" til Chile, en þangað höfðu Loft- leiðir selt flugvélina. Mun þetta vera lengsta flug íslenzkrar áhafnar á ísleúzkri flugvél. ^ 25. ágúst s.l. voru liðin 20 ár frá því er Loftleiðir hófu fyrsta áætlunarflug sitt frá íslandi til Bandarikjanna. Flugvélin, sem Innlendur notuð var til ferðarinnar, var af Skymaster-gerð, TF-RVC, Geysir. Flugstjóri var Alfreð Eliasson, núverandi fram- kvæmdastjóri Loftleiða. Síðast i ágúst var hér stödd flugvél á vegum bandaríska flughersins og bandarísku jarð- fræðistofnunarinnar við hita- mælingar úr lofti. Var verkið unnið i samráði við islenzka vísindamenn og fór athugun aðallega fram á jarðliitasvæð- um landsins. “t1 31. ágúst sögðu hlöð frá því, að öryggisnefnd Félags is- lenzkra atvinnuflugmanna hefði sent Flugráði bréf, þar sem far- ið væri fram á, að gerðar yrðu ýmsar umbætur i öryggismál- um Keflavíkurflugvallar. w5| 3. september bilaði annar lireyfill Friendship-flugvélar Flugfélagsins, er liún var á leið frá Egilsstöðum til Reykjavik- ur með 30 farþega. Af öryggis- ástæðum var flogið til Akur- eyrar og ient þar. Þetta er i fyrsta sinn sem mótor bilar i Fokker hér á landi. 6. september ákvað Fær- eyska iandsstjórnin, að Færey- ingar skyldu sjálfir ’taka þátt í % kostnaðarins á flugleiðinni Færeyjar — Iíaupmannahöfn, sem SAS—Flugfélag íslands reka nú í sameiningu. 9. septembcr hófu islenzkar flugvélar m. a. leit að eins- hreyfils flugvél, sem var á leið til íslands frá Grænlandi. Leit- in bar ekki árangur. í september fór Elíeser Jónsson nokkur leiguflug í Pi- per Apache flugvél Flugstöðvar- innar frá Keflavík til Kulusuk við Grænland. /■t1 13. september fór Þórhallur Karisson í flugvél frá Birni Pálssyni í sjúkraflug til Græn- lands. Lent var á eyrum við Jettedal skammt frá Skoresbj'- sundi. Um miðjan september voru i Reykjavik fulltrúar frá brezka flugfélaginu BEA til viðræðna við Flugfélag íslands um flug hingað frá Bretlandseyjum. Hyggst hið brczka félag hefja flugferðirnar 1970 með þotum af gerðunum BAC One-Eleven og Trident. ^ 10. sept. var bjargað af Grænlandsjökli flakinu af flug- vél þeirra Hassels og Cramers, en þeir ætluðu i ágúst og sept. 1928 að fljúga frá Rockford til Stokkhólms með viðkomu á ís- landi. Þeir félagar urðu að nauðlenda nálægt Sykurtoppi á Grænlandi. BRÉFDÚFAN K. G. T. skrifar m. a. svo: „Ég lief mikinn áhuga á flugi og flugvélum. Ég les alltaf flug- þættina þína, en það er eitt orð, sem ég ætla að biðja þig að skýra. Það er orðið flugdrægi.“ Flugdrægi þýðir það hvað flugvél getur flogið langt, án þess að bæta við eldsneytisforða sinn. Þetta var einu sinni kall- að flugþol, en menn voru ekki ánægðir með það og mynduðu orðið flugdrægi. Þegar menn geta hent einhverju langt, er sagt, að þeir dragi langt. Lika er sagt, að kraftmiklar fallbyss- ur dragi langt, séu langdrægar. Eðlilega hugsar þú þér sögnina að draga i merkingunni að draga eitthvað á eftir sér, en hin merkingin, að ná eða kom- ast, er til líka. Þess vegna varð orðið flugdrægi til um þá mestu vegalengd, sem flugvél kemst í einum og sama áfanga. K. G. T. (viljið þið gjöra svo vel að skrifa fullt nafn) biður líka um að birt verði mynd af þyrlu Landhelgisgæzlunnar, og verður það gert siðar. FLUGVÉLAKENNSL BEECH H18 Super 18 Áhöfn: 1. Sætafjöldi: 5—9. Hreyflar og orka: Tveir 450 lia. Pratt & Whitney, 9-strokka loftkældir stjörnuhreyflar. Vænghaf: 15,00 m. Lengd: 10,70 m. Hæð: 2,80 m. Hámarksflugtaksþungi: 4400 kg. Arðfarmur: 950 kg. Farflughraði: 340 ltm/t. LÖGBERG- HEIMSKRINGLA Málgagn Vestur-íslendinga, á erindi inn á hvert íslenzkt heimili. Lögberg-Heimskringla kemur út einu sinni í viku og kostar kr. 450,00 á ári. Skrifið greinilega nafn og heimiiisfang á seðilinn hér að neðan og sendið til afgreiðslunnar merkt: Lögberg-Heimskringla, Lauga- vegi 31, Reykjavík. Ég undirrit. óska hér með eftir að gerast fastur áskrifandi að Lögberg-Heimskringlu, sem kemur út vikulega í Winnipeg. Verð pr. árgang (innifalið burðar- gjald) kr. 450,00. NAFN ................................ HEIMILI ............................. PÓSTSTÖÐ ............................ Hver árgangur greiðist fyrirfram. * 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.