Æskan - 01.01.1969, Page 36
★ ★★☆★★★★★★★★★'★★★★★★☆★☆★
Hér sést Barbra Streisand í nokkrum hlutverkum.
Dómar leikstjóra í Hollywood eru þeir, að bandariska söng- og
leikkonan BARBRA STREISAND sé einstök í sinni röð, og hafi alla
þá kosti til að bera, sem stór stjarna þarf að hafa. Hún hafi haefi-
leika á borð við Gretu Garbo, Bette Davis og Joan Crawford.
Barbra Streisand er fædd í Brooklyn fyrir 25 árum. Hún er
borin og barnfædd New York-búi og kann hvergi betur við sig
en þar. Fyrir tveim árum var hún fræg fyrir glettni og gáska, gat
fundið upp á hinum furðulegustu hlutum. Nú er hún hins vegar
gjörbreytt, orðin fullþroskuð kona.
Hún breyttist, þegar hún eignaðist fyrsta barn sitt 29. des. 1966.
Það var sveinbarn og var skirt Jason. Barbra er gift leikaranum
Elliott Gould. Sagt er að hjónaband þeirra sé hamingjusamt.
Hinn skjóti frami hennar og gífurlegar vinsældir hafa gert það
að verkum, að hún er meira öfunduð en nokkur önnur stjarna í
Hollywood. Aðeins 25 ára gömul er hún ein af þremur hæst
launuðu stjörnum í víðri veröld. Hinar eru Elizabeth Taylor og
Julie Andrews. En enda þótt Barbra Streisand hafi ekki þurft
að bíða lengi eftir frægðinni, eins og margir aðrir ieikarar, þá
gleymist öfundarmönnum hennar að taka það með í reikninginn,
að ferill hennar markast ekki af heppni og tilviljun. Frægð sina
á hún fyrst og fremst að þakka fráþærum dugnaði, mikilli vinnu
og síðast en ekki sízt: óvenjulegum hæfileikum.
Barbra Streisand hefur sungið inn á 12 LP-plötur, og hafa þær
selzt í milljóna eintökum síðustu mánuðina.
Barbra Streisand
★ ★ ★★★☆★☆★☆★★★★★★★★★★★★★☆★
32