Æskan - 01.01.1969, Side 38
vitið það öll, að sögurnar um
forfeður okkar eru kallaðar ís-
lendingasögur. Þáer segja frá því, þeg-
ar forfeðurnir hurfu frá átthögum
sínum í Noregi og víðar, fluttust til
íslands og námu þar land.
Þeir voru harðfengir menn, aldir
upp við vopnaburð og sjómennsku.
Þeir voru heiðnir og þekktu ekki
kristna trú. Samt voru flestir jreirra
drenglyndir menn og heiðarlegir. En
trú þeirra var að mörgu leyti misk-
unnarlaus og þeir töldu það yfirleitt
skyldu sína að hefna grimmilega fyrir
misgjörðir.
Þó var þeim ekki öllum þannig far-
ið. Og nú skal ég segja ykkur sögu af
einum fornmanni, sem ekki vildi að
sín yrði hefnt.
Maður hét Ingimundur og var kall-
aður hinn gamli. Hann var fæddur í
Noregi og var í bardögum, þegar hann
var ungur. Seinna fluttist hann til ís-
lands og nam land í Vatnsdal í Húna-
vatnssýslu. Það er fallegur dalur, gyrt-
ur tígulegum fjöllum. Bær Ingi-
mundar hét Hof.
Ingimundur var mikill höfðingi,
góður og friðsamur. Synir hans voru
gervilegir menn, en kappsamir.
Fóstbróðir Ingimundar hét Sæ-
mundur og átti heima í Skagafirði.
Bróðursonur Sæmundar hét Hrolleif-
ur hinn mikli. Ljót hét móðir hans.
Þau voru bæði mesta vandræðafólk,
en Sæmundur hélt verndarhendi yfir
Hrolleifi meðan hann sá sér fært, og
gerði hann það vegna írændseminnar,
en fornmenn voru mjög frændræknir.
En svo fór að lokum, að Hrolleifur
kom sér svo illa í Skagafirðinum, að
hann var rekinn úr héraðinu. Sæ-
mundur fór þá til Ingimundar fóst-
bróður síns og bað hann taka við
þeim mæðginum. Ingimundur var
tregur til, en gat þó ekki neitað fóst-
bróður sínum um þetta.
Nú fóru þau að Hofi, en þau komu
sér þar svo illa við heimilisfólkið,
sérstaklega syni Ingimundar, að hann
neyddist til að vísa þeim burt og setti
þau niður á næsta bæ.
Þeir Hrolleifur og synir Ingimund-
ar stunduðu hvorir tveggja laxveiðar
í Vatnsdalsá. Hrolleifur vildi aldrei
þoka fyrir þeim úr ánni, og þótti
þeim það illt.
Eitt sinn komu húskarlar Ingi-
mundar til árinnar og báðu Hrolleif
að rýma fyrir þeim. Hrolleifur svaraði
illu til. Þeir sögðu liann gera illa, eins
vel og Ingimundur hefði reynzt hon-
um. Þá varð Hrolleifur reiður og
kastaði steini í einn þeirra, svo að
hann féll í rot.
Húskarlarnir komu heim að Hofi,
þegar aðrir menn sátu að máltíð. Ingi-
mundur spurði, livers vegna þeir færu
svo óðslega. Þeir sögðust vera reknir
úr ánni með meiðingum og illum orð-
um af Hrolleiíi. Jökull Ingimundar-
son var stórlyndur og bráður, enda
varð hann bálreiður við þessa frétt.
Ingimundur reyndi að stilla hann, en
Jökull'hljóp út í skyndi og til árinn-
ar. Ingimundur bað Þorstein, elzta
son sinn, að fara með bræðrum sín-
um, Jm að hann treysti honum bezt
að stilla til friðar.
Þeir Jökull og Hrolleifur skiptust
fyrst á stóryrðum og skömmum og
börðust síðan, og börðust bræður Jök-
ids með honum.
Nú kom maður heim til Hofs
hlaupandi og sagði Ingimundi, að í
óefni væri komið, og þeir berðust um
ána þvera.
Ingimundur bað að leggja á hest
sinn og kvaðst mundu ríða að ánni.
Hann var J>á gamall og nær blindur.
Drengur var látinn fylgja honurn.
Ingimundur var í blárri kápu. Dreng-
urinn teymdi hestinn undir honum,
og J^egar þeir koma á árbakkann, þá
sjá synir hans hann.
Þorsteinn bað bræður sína, eink-
um Jökul, að láta undan síga, því að
föður þeirra mu-ndi geðjast illa að
bardaganum.
Ingimundur reið fram í á og mælti:
„Gakk úr ánni Hrolleifur, og hygg
að livað þér hæfir.“
Og er Hrolleil'ur sá hann, skaut
hann til hans með spjóti, sem kom á
hann miðjan.
Þegar Ingimundur fékk spjótslagið,
reið hánn aftur að bakkanum og
mælti: „Þú, sveinn, fylgdu mér heim!“
Hann hitti ekki sonu sína, og er
Jieir komu heim var mjög liðið á
kvöldið.
Og Jnegar Ingimundur ætlaði af
baki, þá mælti hann:
34