Æskan - 01.01.1969, Page 46
SPURNINGAR OG SVOR
stai’fscmi ætiuð. Fram til ársins 1965 var síldarleit eingöngu
rekin með varðskipinu Ægi og á leiguskipum, sem voru mis-
jafnlega vel útbúin og sum þeirra því óhentug til starfsins, svo
að ekki sé meira sagt. í ársbyrjun 1965 var svo 250 lesta skip,
v. s. Hafþór, afhentur sildarleitinni til fullra umráða. Hann hefur
siðan verið búinn nýjum siglinga- og leitartækjum og liefur
reynzt hið bezta í leitinni, enda var góð reynsla fengin áður af
sams konar skipi, v. s. Pdtri Thorsteinssyni, sem leigður var
til sildarleitar á árunum 1962—1965. Þeim, sem til þekkja, var
þó Ijóst, að auk Hafþórs var mikil nauðsyn á að fá nýtt skip
sérstaklega smíðað til sildarleitar, enda myndi slíkt skip gegna
forystuhlutverki i síidarleitinni og ltoma í stað Ægis.
Nú liefur sá draumur rætzt með tiikomu hins nýja síldarleitar-
skips „Árna Friðrikssonar.“ Hið nýja skip er 450 rúmlestir,
lengd er 41,4 m, breidd 9,7 m. Smíðaverð skipsins er um 40 millj.
kr. Smíði þess bófst síðia sumars 1966, og binn 1. marz s. 1. var
Síldarrannsóknaskipið ,,Árni Friðriksson46. ^
Svar til Helga á Akureyri: Undanfarin ár hefur veiðisvæði
islenzkra síldveiðiskipa aukizt hröðum skrefum. Jafnframt þessu
hefur veiðitímabilið einkum norðanlands og austan tvöfaldazt.
Af þessum sökum hefur þörfin á vel skipulagðri sildarleit vaxið
ár frá ári. Öflugri síldarleit verður þó ekki haldið uppi nema
á góðum og hentugum skipum, sem eingöngu eru til þessarar
það sjósett og gefið nafnið Árni Friðriksson, en hann var fyrsti
forstöðumaður Fiskideildar Atvinnudeildar Háskólans og siðar
fi'amkvæmdastjóri Alþjóðahafrannsóknaráðsins i mörg ár. Mesta
afrek dr. Árna á sviði síldarrannsókna má tvimælalaust telja
kenningar hans um hinar miklu sildargöngur milli íslands og
Noregs. Dr. Árni Friðriksson lézt 1966.
^ Ömar Ragnarsson. ^
Svar til Björns: Ómar Hagn-
arsson er Reykvikingur, fædd-
ur þar i borg þann 16. septem-
ber árið 1940. Hann lxyrjaði
fyrst að leika Jxegar hann var
i Laugai-nesskólanum i jóla-
leikritum skólans, en stxcrsti
Ómar Ragnarsson.
viðburður í lífi hans á þeim ár-
um var þegar hann var 12 ára
gamall og fékk stórt barnahlut-
verk i leikritinu „Vesalingun-
um,“ iijá Leikfélagi Reykjavik-
ur árið 1953. Sína fyrstu sér-
stöku dagskrá flutti hann þegar
hann var í Menntaskóianum
1958, og siðan hefur hann liald-
ið sinar sjálfstæðu skemmtanir
i flestum bæjum og þorpum
landsins, og er talinn einn alira
skemmtilegasti skemmtikraft-
urinn, sem kemur fi'am um
þessar mundir. Ennfremur hef-
ur hann skemmt víða erlendis,
svo sem í Kaupmannahöfn,
London, New York og Helsing-
fors. í tvö ár iék hann við
Þjóðleikhúsið, en kaus heldur
að koma fram með gamanmál
sin sjálfstætt. Aðal áhugamál
hans ei'U frjálsar iþróttir, sem
hann stundaði um tíma, landa-
fræði og flug, og liefur hann
lokið flugprófi, og leigir sér oft
flugvélar er hann er á ferðum
sínum um landið. Ómar hefur
alltaf verið alger bindindismað-
ur á tóbak og áfengi. Hann lauk
stúdentsprófi tvítugur :ið aldri
1960 og er nú laganemi i Há-
skóla íslands, undirleikari lians
Haukur Heiðar Ingólfsson frá
Akureyri, er einnig i háskólan-
um og stundar þar læknanám.
Omar er kvæntur Helgu Jó-
hannsdóttir frá Patreksfirði, og
eiga þau hjón 4 börn, l>að elzta
5 ára.
Hörð
og þurr húð.
Kæra Æska. Getur ]>ú ráðlagt
mér eitthvað við harðri og
þurri húð á fótunum. Ég hef
svo þurra og harða húð á fót-
unum að oft er það svo að þeg-
ar ég er að fara úr sokkum eða
í þá rif ég þá af þessum sökum.
S. H.
Svar: Við svona þui'ri liúð er
ekki annað ráð en nota góða
feiti eða krem og smyrja vel
og nudda ilina og hælinn, og
eins fótleggina, ef húðin er
þurr þar. Einnig höfum við
fyrir satt að fljótandi krem
geti verið gott.
Svar til Jóns: Á þessari öld
hafa vinsældir jazzins aukizt
mikið. Vissa um uppliaf jazzins
er ekki fyrir hendi. Menn hafa
hallazt að þeirri skoðun, að þvi
er virðist, að þessi tónlist sé
samruni afriskrar og evx'ópski'-
ar tónlistar, sem negi'ar hafi
skemmt sér við, þegar þræla-
hald var i algleymingi i Ame-
ríkU' frá átjándu öld fram til
1865.
42