Æskan - 01.01.1969, Síða 55
Skólarnir okkar.
MENNTASKÓLAR
Nú eru starfandi fjórir
menntaskólar, einn á Akureyri,
tveir í Reykjavík og einn á
Laugarvatni. Inntökuskilyrði
eru miðskólapróf (bóknáms-
deildar) með ákveðinni lág-
markseinkunn. Námstími er 4
ár. Fyrsti bekkur skólanna er
óskiptur, en hinir greinast í
2 deildir: máladeild og stærð-
fræðideild. Nokkur munur er á
námi deildanna. Lokapróf
menntaskólanna er stúdents-
próf, það veitir rétt til inn-
göngu í háskóla. Kennaraskóli
íslands og Verzlunarskóli ís-
lands, báðir starfandi i Reykja-
vík, liafa rétt til að brautskrá
stúdenta.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Stúdentspróf veitir rétt til
náms við innlendan og erlenda
háskóla. Háskóli íslands skipt-
ist í (i deildir, sem eru: guð-
fræði-, heimspeki-, lækna-, lög-
fræði-, verkfræði- og viðskipta-
deild. Háskólinn veitir embætt-
ispróf og réttindi til ákveðinna
starfa. Nám við liáskóla tekur
mislangan tíma eða frá þremur
árum og upp i átta ár eða meira,
ef sérfræðinám er tekið. Námi
til B.A.-prófs er unnt að
Ijúka á 3 árum og auk þess
prófi i uppeldis- og kennslu-
fræðum. Þessi próf veita rétt-
indi til kennslu i framhalds-
skólum. Heimspekideild braut-
skráir kennara i islenzkum
fræðum (cand. mag.) eftir 5-6
ára nám. Læknadeild braut-
skráir lækna (cand. mcd) eftir
7 ára nám. Laga- og hagfræði-
deild brautskráir lögfræðinga
(cand. jur.) eftir 6 ára nám,
og viðskiptafræðinga (cand.
oecon.) eftir 4-5 ára nám. Guð-
fræðideild brautskráir guð-
fræðinga (cand. theol.) eftir 4
ára nám. Verkfræðideid veitir
verkfræðinemum kennslu til
fyrrihlutaprófs i verkfræði, en
lokapróf í þeirri grein eru tek-
in erlendis.
Þegar á síðustu áratugum 19.
aldar hófust nokkrar umræður
um stofnun háskóla hér á landi.
Var Benedikt sýslumaður
Sveinsson helzti formælandi
þess, og flutti hann tillögu á
Alþingi 1881 um stofnun þá-
skóla. Prestaskóli hafði tekið
til starfa í Reykjavík haustið
1847, læknaskóli 1876 og síðast
lagaskóli 1908, og voru þar með
fengnir innan lands sérskólar
til embættisnáms. Á Alþingi
1909 voru sett lög um stofnun
háskóla, og var frumvarpið til
þeirra laga boi'ið fram af Hann-
esi Hafstein. En stofnun há-
skólans var frestað til aldar-
afmælis Jóns Sigurðssonar, 17.
júni 1911, og skyldi háskólinn
vera sem minnisvarði yfir þessa
miklu frelsishetju og menning-
arfrömuð þjóðarinnar. Árum
Háskóli íslandw.
saman liafði háskólinn ekki yf-
ir neinum húsakynnum að ráða
öðrum en nokkrum smástofum
á neðstu hæð Alþingishússins,
en með honum var þó reist það
höfuðvígi islenzkra fræða og
islenzkrar fræðimennsku, sem
styrkzt hefur með hverju ári
síðan. Árið 1933 var háskólan-
um veitt einkaleyfi til að reka
happdrætti hér á landi, og hef-
ur hann síðan mjög eflzt að
f jármunum. Árið 1940 var lokið
að reisa handa lionum vegleg
húsakynni, og voru þau vígð
hátíðlega 17. júní það ár.
'+
Villímenn
Georg Iíatlin var frægur mál-
ari í Bandaríkjunum. Hann
málaði myndir af Indiánum,
bæði heima og á veiðum. Er
liann var 34 ára gamall, varð
hann brjóstveikur og fékk
berkla. Þá fór liann til Indi-
ánanna og bjó lijá þeim. Úti-
Hfið hafði þau áhrif, að hann
varð aftur stálhraustur.
Rúm þekktust þar ekki.
Stundum svaf liann i hengirúmi
úti í skógi, og stundum á bát
úti á vatni eða milli buffalo-
húða, sem breiddar voru á
grasið.
Hann vaknaði stundum við
það, að liann var farinn að
hrjóta, og lirökk upp með op-
inn munninn. Þá afréð liann að
taka upp þann sið Indiánanna
að sofa með lokaðan munn.
Hann sá oft Indíánamæður loka
vörum sofandi barna sinna.
Hann minntist þess, hvernig
hvitir menn glápa með opnum
munni, einkum er þeir urðu
forviða. En Indíána sá hann
brosa með lokuðum vörum.
Þessi nýja aðferð virtist hafa
góð áhrif á lungu hans.
Árið 1559 var almenningi
bannað að nota vasaklúta. Að-
alsfólkið hafði þau sérréttindi
og bar þá aðeins til skrauts
eins og heiðursmerki. Þá voru
vasaklútar nýkomnir til sög-
unnar og voru afardýrir, oftast
með knipplinguni og öðru
skrauti.
+
t
ALLT ÆSKUFÓLK þarf að lesa
SAMTfÐINA
heimilisblað allrar fjölskyldunnar.
10 stór blöð á ári fyrir
aðeins 180 kr.,
og nýir áskrifendur fá 3 árganga
fyrir 350 kr.
Póstsendið strax þennan pöntunarseðil:
Ég undirrit...., sem óska að gerast áskrifandi
að SAMTÍÐINNI, sendi hér með 350 kr. fyrir
árgangana 1967, 1968 og 1969. (Vinsamlegast
sendið þetta í ábyrgðarbréfi eða póstávísun).
Nafn ..........................7.............
Heimili .....................................
Utanáskrift okkar er:
SAMTÍÐIN, Pósthólf 472, Reykjavík.
L______________________________________
51