Æskan - 01.01.1969, Síða 66
Siglingar eru nauðsyn
Hlutverk Eimskipafélagsins hefur frá upphafi
verlð fyrst og fremst að bæta samgöngur.
Eimskipafélagið er félag allra landsmanna,
hluthafar eru um 11 þúsund.
Vöxtur félagsins og viðgangur er þáttur I
bættum lífskjörum þjóðarinnar.
Um aldamótin kvað Hannes Hafstein:
Sé ég f anda knör og vagna knúða
krafti, sem vannst úr fossa þinna skrúða;
stritandi vélar, starfsmenn glaða og prúða,
stjórnfrjálsa þjóð með verzlun eigin búða.
Hannes Hafstein.
Þjóðdáðin snjalla, íslendinga orkan,
áfram upp hallannl Skin á tindum er.
Áfram, svo mjallhvít, helköld hafísstorkan
hopi að kalla og gljúpni fyrir þér.
Jakob Thorarensen skáld
ísafold, 14. júlí 1915
Sem lútandi gestur á leigðri gnoð
ei lengur vill Frónbúinn standa.
Hann sjálfur vill ráða' yfir súð og voð
og siglingu milli landa.
Og íslenzkur fáni á efstu skal stöng
af íslending dreginn, við frónskan söng,
þá sýna erlendum svæðum
vort sækonungsblóð í æðum.
Hanncs S. Blöndal, skáld
ísafold, 2. apríl 1913
Það er bjart yfir Eimskipafólaginu í dag.
Það er bjart yfir þjóð vorri, því að þetta félag er
runnið af samúð allrar þjóðarinnar. Þjóðin
hefir ekkl aðeins lagt fó f fyrirtækið, hún hefir
lagt það, sem meira er, hún hefir lagt vonlr sínar
í það. Þetta fyrirtæki sýnlr fremur öllu öðru,
hvað vér getum áorkað miklu, er vér stöndum
allir fast saman. Auknar samgöngur eru
lykillinn að framtfð vorri.
Sigurður Eggerz, ráðherra islands,
16. april 1915.
H.F. EIMSKIPAFELAG ISLANDS
Brautryöjandi íslenzkra samgöngumála.