Æskan - 01.03.1969, Side 53
HEIÐA — Framkalássaéa í mynclum.
125. PÉTUR kcmur upp hlíðina og rekur geitahópinn á undan sér. Hann er með smalaprik i
hendinni og flautu í munni. Hann hottar óvenju mikið á geiturnar í dag, því að hann ætlar að
ná tali af Heiðu. „Ætlar þú að koma með mér í dag?“ hrópar hann. „Nei, það get ég ekki,“
svarai^ Heiða. „Gestirnir frá Frankfurt geta komið á hverri stundu, svo að ég verð að vera heima
við.“ — 126. EFTIR veru sína í borginni hafa augu Heiðu opnazt fyrir ýmsu, sem henni var
áður hulið. Það er ekki allt í sömu röð og reglu hjá afa eins og það var í stóra húsinu, en nú
lætur Heiða hendur standa fram úr ermum. Fyrst býr hún um rúmið sitt. Því næst lagat hún
til í stofunni, þurrkar af ryk, sópar og þvær gólfið. Hún þvær upp matarílátin og raðar þeim í
skápa.
127. „ÞAÐ er allt orðið svo fínt og fágað hjá okkur,“ segir afi. Heiðu þykir lofið gott, svo að hún
leggur sig enn meir í framkróka að halda öllu í röð og reglu. í dag skúrar hún borðið. Hún
hreinsar rúðurnar, svo að sólskinið glampar á þeim. Skyndilega hrópar hún: „Afi, afi, þau
eru að koma!“ Svo fer hún í ioftköstum niður hliðina. — 128. „KOMIÐ þér sælir, læknir, mínar
beztu þakkir," segir Heiða og tekur* í höndina á Iækninum. „Fyrir hvað ert þú að þakka?“ spyr
hann. „Fyrir það, að þér senduð mig heim til afa.“ Það færist bros yfir andlit læknisins.
„Ivomdu, Ilelða, við skulum fara upp eftir tii afa,“ segir læknirinn. „En hvar eru Klara og
ainma?“ spyr Heiða. Nú verður læknirinn að skýra henni frá því að Klara hafi verið veik og
orðið að hætta við förina. Heiða vedður hrygg.
SSSSSSSSSSSSSSSSS8S2SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS2SSSSSSSSSSSSSS8SSSSSSS8SSSSSSS8S8882SSSSSS8SSSSSSS8S8SSSSS828SSSSSS8828S888
Ný frímerki.
Þann 28. febrúar gaf íslenzka
póststjórnin út nýtt Norður-
landafrímerki, með mynd af 5
skipum á siglingu. Verðgildi
merkisins er kr. 6,50, rautt, og
kr. 10.00, blátt.
Norðurlandafrímerkið 1969 er
gefið út í tilefni þess, að á
Þessu ári er öld liðin frá því að
samstarf i póstmálum hófst
milli Norðurlandanna og hálf
öld síðan norrænu félögin voru
stofnuð.
Norræn samvinna í póstmál-
em á upphaf sitt að rekja til
ársins 1868, er Danmörk, Nor-
egur og Svíþjóð gerðu með sér
samninga um póstmál. Síðan
bættust Finnland og Island i
hópinn og árið 1934 gerðu þessi
fimm lönd með sér samning um
Póstmál. Samvinnan varð enn
nðnari, er Norræna póstsam-
bandið var stofnað 1946.
Samstarf hinna norrænu
Póststjórna beinist að því að
bæta póstviðskipti milli Norður-
landanna og að koma á hag-
stæðari burðargjöldum og betri
Þjónustu fyrir almenning en
almennt gerist milli landa.
Norðurlandafrímerki hefur
einu sinni áður verið gefið út,
1956.
Rúðan.
Það bar nýlega við í Drottn-
•ngargötu i lvaupmannahöfn,
bolti kom í hcndingskasti
Segnum rúðu í eldliúsglugga.
irúin i húsinu lcit út um
Sluggann, en sá engan. Hálf-
'nna síðar var harið á eldhús-
'lyrnar, og þegar frúin opnaði,
stóð lítill drengur fyrir utan.
Fyrirgefið, frú, sagði
ann. — En nn kemur hann
pabbi minn til jiess að setja
rúðuna í.
— Þú ert góður og ráðvand-
ur drengur, sagði frúin. —
Gerðu svo vel, iiérna er bolt-
inn þinn.
í sömu svifum kom smiður-
inn með rúðuna, og þegar
hann liafði sett hana i, sagði
hann:
— Jæja, þetta verða þá 100
krónur.
— Hvað eigið þér við?
spurði frúin. — Er þetta ekki
sonur yðar?
— Nei, ég held nú síður,
svaraði smiðurinn. — En eruð
þér ekki móðir hans?
Verðmunur frá bóksöluverði á hverri bók blaðsins er um 30%