Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1973, Blaðsíða 17

Æskan - 01.11.1973, Blaðsíða 17
INGÓLFUR DAVÍÐSSON: Minnstu fuglar veraldar í sólheitum frumskógaþykknum Mið- og SuSur-Ameríku lifa minnstu fuglar veraldar, kólibrífuglarnir. Þeir skína í öllum regnbogans litum og líkjast helzt stórum fiðrildum. Hinir minnstu vega aðeins 1—Vh g fullvaxnir og eggin Vá g Lengd eins Kúbu-kólibrífugls er aðeins 2 þumlungar frá nefbroddi og aftur á stélenda. Aðrir eru töluvert stærri, og tegundirnar skipta hundruðum. Sumir kólibrífuglar lifa aðal- lega í skugga skóganna og veiða skordýr og kóngulær sér fil matar. En hinir litfegurstu lifa í sólskininu og sjúga hun- ang úr blómum. Halda þeir sér svífandi við blómin með feikna tíðum vængjaburði. Og þeir fylgja hreyfingum blóm- anna, þegar vindurinn sveiflar þeim til, líkt og væru þeir bundnir við þau. Flugfimin er undraverð, enda eru flug- f'öðvarnir sterkir og hjartað öflugt. Geta vængjaslögin orðið allt að 50 á sekúndu. Andardrátturinn er mjög hraður og efnabreytingar örar. I norðlægum löndum eru það skordýrin, sem sjúga hun- ang úr blómum og bera frjóduft á milli þeirra. En kólibrí- fuglarnir gegna sama hlutverki í heimkynnum sínum, og sru blómin og nef kólibrífuglanna dásamlega löguð hvort eftir öðru — báðum í hag. Stuttnefjaðir kólibrifuglar verða að láta sér nægja hunang ' grunnum blómum, likt og trýnisstuttar flugur úti á islandi. En nef sumra kólibrífugla er nærri því eins langt og allur kroppurinn, og þeir ná ríkulega hunangi I djúpum blómum. Sumir hafa bogið nef, lagað fyrir löng, bogin krónurör sér- kennilegra blóma. Tungan er hálfgerð sogdæla og getur Ingólfur Davíðsson. myndað pípu. Fætur eru smáir og ónýtir til gangs. Hreiðrið er haglega gerð karfa úr fínum jurtatrefjum úti á grein, þar sem litið ber á og erfitt er að komast að því. Lengi gekk erfiðlega að halda lífinu í kólibrífuglum í dýragörðum. Loks tókst þýzkum dýrafræðingi að leysa málið og finna hentugan mat handa þeim. Þeir sugu með ánægju hunang í rósum, fúksíum o. fl. blómum, en erfitt var að hafa næg blóm allt árið, svo að reynt var að búa til gervifæðu. Það tókst. Var blandað saman hunangi, mjólk, barnamjöli o. fl. og þetta alltaf haft nýtt. Svo voru líka „ræktaðar" bananaflugur handa kólibrífuglunum, og voru þeir hinir áköfustu við flugnaveiðarnar. Þeir leituðu líka í kóngulóavefjum og átu bæði flugur og kóngulær úr net- unum. Einnig gripu þeir flugur á gluggarúðunum. Hinn tilbúna næringarvökva drukku þeir á tvo vegu, þ. e. stungu nefinu stundum um 1 cm niður í vökvann og drukku kröftuglega eða sleiktu safann með tungubroddinum hægt og gætilega. Oft rifust þeir um matinn. Hver fugl helgaði sér ákveðna uppáhaldsgrein I búrinu og varði hana fyrir hinum. Virtist raunar eins og ósýnileg landamæri lægju um búrið þvert og endilangt, og átti sérhver fugl sína jörð eða ríki. Músarrindillinn Islenzki hefur aldrei þótt stórvaxinn, en þó er hann risi i samanburði við kólibrífuglinn. Hugsum okkur hóp málmglitrandi fugla, þar sem hver og einn er ekki nema fáein grömm að þyngd. Margir þeirra fljúga langar leiðir vor og haust eins og hverjir aðrir farfuglar. Saumakarfa Karfan er búin til úr sterkum pappa °9 er fljótgerð. Fyrst eru teiknaðir með sirkli tveir hringar á pappastykkið. í Öeim innri er geislinn 5 cm, en 9 cm í Öeim ytri. Opnið sirkilinn, svo að hann sPenni yfir lengd geislans og afmarkið slðan með honum á ytra hringinn sex sinnum og skiptið þannig hringnum í sex jafnstóra parta. Tengið svo þessa punkta saman með strikum gegnum mið- depil. Skerið þá fleygmynduð skörð að innri hringnum, eins og myndin sýnir. Næst eru dregnar með reglustiku lín- urnar milli fleygsoddanna (a—b, o. s. frv.), og rispað dálitið ofan i þær með hníf, svo að hægt sé að beygja stykkin upp og líma þau síðan saman með pappírsræmum. Nú er sjálf karfan tilbú- in og eftir að fóðra hana að utan. Sér- staklega má prýða hana með gullpapp- Irsrönd efst. 15

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.