Æskan - 01.11.1973, Blaðsíða 40
Amazonfljot
Hús á stólpum f Iquitos.
Fyrstur Evrópumanna til að kanna Amazonfljótið var
maður að nafni Orollana. Árið 1541 fór hann frá Napo-ánni,
sem er ein af efstu þveránum, er falla I Amazonfljót, rétt
austan við Quito í Ecuador, og hann komst alla leið að
ósum Amazon, þar sem fljótið rennur í Atlantshafið.
Amazonfljótið er kringum 6.300 kílómetrar að lengd
frá upptökum til ósa. Margar stórar og smáar þverár falla
I fljótið. Amazon á upptök sin I Perú, en fellur í gegnum
mörg lönd, svo sem Bólivíu, Ecuador, Columbíu, Venezúela
og Brazilíu til sjávar.
Áin á upptök sín í hrjóstrugu landi, og efri hluti árinnar
fellur með boðaföllum í fossum og flúðum og hávöðum,
þar til hún kemur á meira láglendi, og þar verður fljótið
skipgengt. Aðalhöfn við fljótið í Perú er hafnarborgin Iquit-
os, þar standa mörg hús á stólpum vegna flóðahættu.
Álitíð er, að Amazonfljót hafi fengið nafn sitt vegna mife-
skilnings ferðafélaga Orollana. Þeir héldu, að hinir síð-
Veiðimenn á Amazonfljóti.
hærðu menn, sem bjuggu á bökkum fljótsins væru kven-
hermenn eða valkyrjur og nefndu valkyrjurnar á spönsku
amazonur og fljótið Amazonfljót.
Á þeim tímum, þegar mest er I ánni, er unnt að fara á
stórum gufuskipum yfir 3.700 km upp eftir fljótinu og á
minni skipum 4.500 km. En þegar minnst er i ánni, komast
aðeins lítil skip alla þessa leið. Það er því miklum erfið-
leikum bundið að komast upp til efstu hafnanna.
Flóðs og fjöru gætir um 100 km upp eftir ánni.
Árósarnir eru um 130 km breiðir, svo það er ekkert
smáræðis vatnsmagn, sem streymir út í hafið, enda er áin
iangsamlega vatnsmesta fljót i heimi og sjórinn ósaltur
300 km frá landi.
Margir ættflokkar búa á bökkum fljótsins. Menn þessir
eru á mjög mismunandi menningarstigi. Þetta fólk er harð-
gert, og margir þarna eru miklir veiðimenn og ágætar boga-
skyttur.
Afl hreysti
lífsgleði
□ HEILSURÆKT ATLAS — æfingatími 10—15 mínútur
á dag. Kerfið þarfnast engra áhalda. Þetta er álitin bezta
og fljótvirkasta aðferðin til að fá mikinn vöðvastyrk, góða
heiisu og fagran líkamsvöxt. Árangurinn mun sýna sig eftir
vikutíma þjálfun.
□ LÍKAMSRÆKT JOWETTS — leiðin til alhliða líkams-
þjálfunar, eftir heimsmeistarann í lyftingum og glímu,
George F. Jowett. Jowett er nokkurs konar áframhald af
Atlas. Bækurnar kosta 300 kr. hvor, sendum f póstkröfu
ef óskað er. Setjið kross við þá bók (bækur), sem þið
óskið að fá senda.
□ VASA-LEIKFIMITÆKI — þjálfar allan líkamann á stutt-
um tíma, sérstaklega þjálfar þetta tæki: brjóstið, bakið og
handleggsvöðvana (sjá meðfylgjandi mynd). Tækið er svo
fyrirferðarlítið, að hægt er að hafa það f vasanum. Taekið
ásamt leiðarvísi og myndum kostar kr. 500,00. Sendið
nafn og heimilisfang til: „LlKAMSRÆKT‘,‘ pósthólf 1115-
Reykjavík.
NAFN .................................................
HEIMILISFANG
38