Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1976, Síða 6

Æskan - 01.10.1976, Síða 6
ráðanlega fiska á leið sinni, en einnig étur hann lindýr, skrápdýr, orma og krabbadýr alls konar. Algeng stærð þorskins er um 60—100 cm en 165 cm langur þorskur hefur mælst. Yfirleitt er ýsan minni en þorskurinn, en lifir að mestu á sömu miðum, en þó er ýsan ekki algeng við Grænland, og er meiri grunnsævisfiskur en þorskurinn. Ýsan er ekki eins matgráðug og þorskurinn. Ýsan er botnfiskur og lifir mikið á alls konar ormum, skeldýrum og skrápdýrum, og ennfremur á alls konar smáfiski eins og loðnu, sandsíli og svo á smáseiðum ýmissa fiska. Ýsan þykir góður matfiskur hérlendis sem er- lendis. Hrygning ýsunnarferfram í apríl til júní á um 50 til 150 metra dýpi aðallega við suð-vesturströndina. í Sædýrasafninu er yfirleitt ýsa til sýnis, en annars er hún meðal þeirra fiska, sem mjög erfitt er að halda lifandi í fiskasöfnum, því hún þolir illa hvers konar hnjask og hitasveiflur. Síldin er til víða á norðurhveli jarðar, en af henni eru til nokkur mismunandi kyn eða stofnar. Venju- leg lengd er 30—38 cm. Hrygningarsvæði íslensku stofnanna er við suðurlandið frá Hornafirði og allt til Breiðafjarðar. Síldin syndir um í stórum torfum í ætisleit, en kjörfæðan eru lítil krabbadýr, sem nefnd eru rauðáta. Síld er afar erfitt að halda lifandi í fiskasöfnum, og er síld aðeins til í fáum söfnum í heiminum- í Sædýrasafninu hefur öðru hverju verið til sýnis síld og hefur hún lifað allt að því 2 ár. Má þakka það aðallega hve hitastigið er stöðugt, en miklar og örar hitasveiflur eiga illa við síldina. Ennfremur verður að fara mjög varlega með síldina, svo hún ekk| missi hreistrið, en þá á hún sér venjulega ekki margra lífdaga auðið. í Sædýrasafninu er síldin fóðruð á loðnu- hrognum, marflóm og lítillega á laxafóðri. Síldin er Ijúffeng fæða og eftirsótt meðal margra þjóða, þó við íslendingar höfum ekki komist upp a lag með að vera miklir síldarneytendur. Hins vegar hefur síldin verið ein helsta útflutningsvaran, fryst eða söltuð, þó nú sé svo komið að friða hefur orði íslensku síldarstofnana vegna ofveiði. lengd- Sandkolinn getur orðið 30—40 cm á Sandkolinn er botnfiskur eins og aðrir flatfiska^ Hann er grunnsævisfiskur og lifir frá fjöruborði 0 niður á um 120 metra dýpi. Við ísland er sandkolia ^ algengur, en annars eru heimkynni hans ausia° vert Norður-Atlantshafið. Sandkolinn hefur löngu verið algengur í íslenskum höfnum og vinS strákagaman þykir að veiða sandkola á færi. ^ Fæða sandkolans er alls konar smádýr, eins ormar og lindýr. í Sædýrasafninu er að iaina margt sandkola og eru þeir aldir á niðurbrytJu fiskmeti. ÆSKAN - Margar skemmtilegar myndasögur í hverju blaði- 4

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.