Æskan - 01.10.1976, Side 10
Guðbförg.
Rögnvaldur.
Kæra Æska!
Ég ætla að senda innilegt þakklæti til Æskunnar og
Flugleiða fyrir ógleymanlega ferð til Stokkhólms 24. til
27. maí. Sérstaklega þakka ég þeim Sveini Sæmunds-
syni, Grími Engilberts og Rögnvaldi Guðmundssyni
skemmtilegar stundir. Einnig þakka ég Dagens Nyheter
og Ólafi fyrir góðar móttökur. Ferðinni mun ég seint
gleyma.
Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir
Hrauntúni 47
Vestmannaeyjum.
Kæra Æska!
Ég þakka kærlega fyrir ferðina til Stokkhólms 24.
s. I. Sérstaklega þakka ég þeim Grími Engilberts og
Sveini Sæmundssyni fyrir góða samveru og fararstjórn-
Dvölin var mjög skemmtileg, veðrið fínt og m. a. s. mat'
urinn góður.
Ég hefði vel getað verið aðeins lengur.
Kærar kveðjur og þakkir til allra sem að þessari ferð
stóðu, einnig til ferðafélaga míns frá Vestrnannaeyjum-
Rögnvaldur Guðmundsson.
ÆSKAN - Fræðsluþættir um
sem Kissinger átti leið um þessa daga, úði og grúði allt af
lögreglumönnum með byssur og hunda og þyrlur
sveimuðu yfir. Hins vegar gátu þau Ósk og Rögnvaldur
farið allra sinna ferða í friði og spekt, notið góða veð-
ursins og þess að sjá og skoöa þessa fornfrægu höfuð-
borg Svíþjóðar. Þau lögðu af stað frá hótelinu í býtið og
fóru fótgangandi. Aldrei getur maður betur notiö þess að
skoða ókunna staði en gangandi og til þess var leikurinn
gerður. Það var ákveðið að þau kæmu á skrifstofu Flug-
félags íslands og Loftleiða og hittu þar Ólaf Friðfinnsson
og starfsfólk hans. Á leiðinni sáu þau Sergils-torgið sem
er eiginlega í hjarta Stokkhólms og þar sem allar opin-
berar athafnir gerast. Þar áttu sér stað miklar bygging-
arframkvæmdir. Gömlu húsin sem áður stóðu við þetta
torg höfðu verið rifin og stórbyggingar risið. Á miðju
ókunn lönd birtast í blaðinu.
torginu er gríðarstór gosbrunnur og í miðju hans súla-
Ósk spurði hvort þetta væri minnismerki en fékk það svar
að súlan væri aðeins til skrauts. Þau gengu niðar
Hamngatan og sáu mörg stór verslunarhús. Þarna voru
líka bankar, því Svíar eru sem kunnugt er rík þjóð °9
stendur ríkidæmiö á gömlum merg. Og börnin frá íslan
horfðu frá sér numin á allar hallirnar sem við blöstu,
fallega turna og skrauthýsi og það var Ijóst að hér hefur
ekki verið byggt af vanefnum. Við Strandvágen sáu ÞaU
mörg skip og báta og enn blöstu við turnar, gamlar hall|r
og slot. Síðan gengu þau inn á skrifstofu flugfélagann3-
Flugfélags l'slands og Loftleiða, þar sem þau hittu fyrS
Katrínu Karlsdóttur og Ólaf Friðfinnsson. Þau fengu ka '
á skrifstofunni en þau Ósk og Rögnvaldur vildu hel
kók, sem þau líka fengu.
Rögnvaldur vlrðlr fyrlr sér bygglngar frá fyrrl tímum.