Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.10.1976, Qupperneq 20

Æskan - 01.10.1976, Qupperneq 20
Það er eitt og annað, sem kemur í hugann, þeg- ar farið er að róta til í ruslakistu minninganna frá liðnum árum. Ég ætla í þetta sinn að segja frá einni ferð minni milli bæja heima. Ég var send með bréf og átti að taka svar til baka. Það var röskur klukkustundar- gangur milli bæjanna. Þetta var um haust og dagar farnir að styttast. Nokkru eftir hádegi lagði ég af stað. Ég sá að hestar voru á leið minni og tók því með mér snæri og ætlaði mér að ná í einhvern þeirra. Það var austan gola og aðfall, en á tveim stöðum flæddi yfir götuna. Sérstaklega þó á öðrum staðnum gat orðið nokkuð djúpt, og féll þá sjórinn upp að stórgrýttri urð, sem kallast Háu kleifar. Ég hljóp inn eftir, þangað, sem hestarnir voru. Það var aldrei fljótlegt að ná hestum að heiman, svo ég náði í hest frá bænum, sem ég var send til með bréfið, batt snærið upp í hann og fór á bak. Hann var viljugur að fara heim á leið, hann óð yfir dýpri ófæruna, sem ekki var orðin dýpri en í hné. Ég reið greitt inn að túngirðingunni og batt hestinn við staur undir bökkunum, þar sem hann sást ekki frá bænum, ég vildi ekki, að neinn sæi, að ég hefði stolið hesti þaðan. Svo fór ég heim að bænum. Ég var svo óheppin, að húsbóndinn var fram í nátt- haga að gera við girðingu, og varð ég að biða nokk- uð lengi eftir honum. Loksins kom hann þó heim, og þegar ég komst af stað aftur, var mikið farið að skyggja. Það hafði hvesst þó nokkuð, svo ég vissi, að nú .ilyti að verða orðið nokkuð djúpt á götunni við urðina. Ég hljóp niður fyrir bakkana, þar sem ég hafði bundið hestinn, ég hafði haft hugsun á að hafa snærið svo langt, að skepnan gæti náð í gras og var hann að naga í kring um sig, þegar ég kom. Ég var ekki lengi að leysa hann og hoppa á bak. Hann brokkaði út yfir minni kleifina og niður í fjöruna. Það var ekki mjög djúpt þarna, en þegar við komum að urðinni, þá óð hann hiklaust út í. Ég lagðist á hnén upp á bakið á honum.og hélt mér með báðum höndum í faxið. Allt gekk vel, og komumst við heilu og höldnu þangað, sem félagar hans voru á beit. Þar stansaði klárinn og ekki var hægt að koma honum úr sporunum. Ég leysti fram úr honum snærið og ætlaði að ná i einhvern hinna hestanna, en þá tók reiðskjóti minn til fótanna upp í hlíð og öll hin hross- in á eftir honum, svo ég varð að ganga alla lei® heim. Ég sá að það var búið að kveikja Ijósin heima- Ég varð að fara veg, sem lá um gamla hvalveiðistöð, sem hafði verið þarna, og vildi ég helst ekki fara Þar um, því þar átti að vera hópur af draugum. Eldri bræður mínir voru ósparir á að segja okkur frá þess- um verum. Ég ákvað því að ganga upp hjalla Þar fyrir ofan og vaða ána, sem rann rétt fram hjá hval- veiðistöðinni. Ég labbaði nú út götuna rétt ofan við fjöruna. Þegar ég var komin nokkurn spöl út með. HROSSAEIGN ÍSLENDINGA Aldrei mun hrossaeign íslendinga hafa verið meiri en nú. Samkvæmt framtalsskýrslum árið 1975 er hrossafjöldi á landinu talinn vera 46.551 og mun þó væntanlega nokkuð vantalinn. — Vél- ar hafa nú að mestu leyst hestinn af hólmi við landbúnaðarstörf og not af hrossum nú nær ein- göngu tengd smalamennsku og fjárgæslu auk þess að vera snar þáttur í tómstundaiðju margra. # ÆSKAN - Fyrir að safnai allt að 30 nýjum kaup- endum fáið þið myndavél.

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.