Æskan - 01.10.1976, Síða 23
Errol Flynn, hinn heimsfrægi bandaríski kvikmynda-
leikari, hetjan úr ævintýramyndunum: „Hrói og höttur og
kappar hans“ og „Captain Blood" segir um áfengið: —
Áfengið er mikið verra en öll önnur deyfilyf. Þú getur
keypt áfengi á hverju götuhorni í Bandaríkjunum.
Áfengið eyðileggur heilann, lifrina, mannorðið, starfs-
orkuna, kynorkuna og gerir þig að lötum iðjuleysingja.
þaö er sorglegt, að vínbannið skyldi ekki komast á. Það
var ekki haldið rétt á málunum,, það var farið of geyst af
stað. í staðinn fyrir algert bann heföi átt að skammta það,
9efa út lyfseðil fyrir því. Algert bann hefur alltaf neikvæð
áhrif á menn. Þegar neitað er um valfrelsi, þá er maður í
andstöðu við eitt það dýrmætasta í lífinu. Fjöldinn umber
Það ekki. Áfengið gerir mann heimskan og maður gerir
alls konar axarsköft, sem manni mundi aldrei detta í hug
sð gera allsgáður. Ég vil gera þá játningu, að ég er
áfengissjúklingur og hef neytt eiturlyfja. Áfengið er alls
staöar til sýnis og sölu og við sem erum veikir fyrir —
..veikir á svellinu" — neytum þess, og það verður okkur
sð falli. Það er líka valdhöfunum um að kenna, að leyfa
áfengið hindrunarlaust og að láta það vera alls staöar til
sýnis og sölu án nokkurra hafta. Ég veit hvað ég er að
se9ja, því ég hef drukkið áfengi meira og minna allt mitt
líf.
Errol Flynn varð ekki langlífur, — hann dó 50 ára
gamall.
B.S. þýddi þessa frásögn úr sjáifsævisögu Errols
plynns.
ERROLFLYNN
®ða svona inn í kennslustund hjá
^ár, viltu bara gjöra svo vel að koma
Þér út og það strax.
En Snati, sem var nú kominn inn á
^eðal kettlingana, lét sem hann
Þeyrði ekki þessi orð herra Brands.
^esalings kettlingarnir voru alveg
°fsalega hræddir, þeir gátu varla
hreyft sig, svo Snati gat glefsað í allar
áttir og það var ósköp að sjá sum
kettlingagreyin, svo þetta hefði getað
,ar'ð illa, ef herra Brandur hefði ekki
staöiö upp úr sæti sínu og gengið
hröðum skrefum að kettlingahrúg-
Ur)hi sem reyndi að bítast af bestu
9etu við Snata á gólfinu. Herra
Brandur, sem var ekki lengur hrædd-
Ur heldur reiður, skipaði kettlingunum
að fara frá og þið megið trúa að þeir
v°ru fljótir að hlýða í þetta sinn. Herra
Brandur sneri sér að Snata og sjá
"'átti á Snata að hann varð dálítið
hissa hvaö herra Brandur var hug-
hraustur. Nú Nú! Kattakennarinn tók í
hnakkadrambið á Snata og ætlaði að
draga hann að dyrunum en nú varö
Snati reiður og sneri sig úr loppu
herra Brands og stökk á hann með
mikilli bræði og beit hann í hálsinn.
Herra Brandur hvæsti af sársauka en
réðist síðan til bardaga við þennan
nýja óvin sinn, svo nú upphófst hinn
hræðilegasti bardagi milli Snata og
herra Brands. Vesalings kettlingarnir
lágu í öllum krókum og kimum, í
gluggum, á borðum eða stólum og
allsstaðar, þar sem þeir gátu falið sig.
Barist var enn af mikilli reiði en samt
mátti sjá að þeir voru farnir að þreyt-
ast, kattar- og hundshár lá um alla
kennslustofuna því mikið var klórað
og bitið á báða bóga.
Allt í einu ráku kettlingarnir upp
mikið gleðióp. Herra Brandur og Snati
litu upp. Snati sá sér til mikillar skelf-
ingar, að í dyrunum stóð enginn
annar en Högni hrekkvísi, og köttur-
inn sá lét sig ekki muna mikið um að
reka einn hund á dyr og þótt meira
hefði verið. Frægðarsögur um hann
hafði hvert dýr í öllum bænum heyrt.
Snati leit í kringum sig í skyndi, en
hann sá enga leiö til að komast und-
an, enda kom hetjan Högni hrekkvísi
nú æðandi að honum og þeir urruðu
og hvæstu að hvor öðrum og tókust
svo á. En þessi bardagi endaði meö
sigri Högna, enda var ekki viö öðru að
búast. Aumingja Snati hentist út úr
skólahúsinu og þið megið trúa, að
hann kom aldrei framar svo mikið sem
í götuna sem skólinn var í eftir þetta.
En nú urðu mikil fagnaðarlæti í
skólastofunni og Högni var hér sem
annars staðar hugrakkasta hetja
kattanna.
Sögulok.
Erna Valsdóttir
• ÆSKAN - Bókaskrá blaðsins var send til allra
kaupenda með síðasta blaði.
21