Æskan - 01.10.1976, Síða 28
„Það er allt of algengt að börn allt
niður I 5 ára séu á reiðhjólum, en við
teljum að börn eigi alls ekki að fá hjól
fyrr en 7 ára og helst ekki fyrr en 10
ára. Það er glapræði að ætlast til að
unglingar geti bjargað sér í umferð-
inni á reiðhjóli," sagði Sigurður
Ágústsson hjá umferðarráðinu í
Reykjavík nýlega við eitt dagblaðið, er
það ræddi við hann um reiðhjól og
umferðina.
Samkvæmt lögum mega ekki yngri
en 7 ára börn vera á ferð á hjóli á ,
almannafæri, það er á akbrautum.
Ennfremur sagði Sigurður: „Það er
líka full ástæða til þess að brýna fyrir
foreldrum að fylgjast vel með reið-
hjólum barnanna. Viö höfum reynt að
kenna börnum á hjólum að varast
hætturnar í umferðinni, einkum í
umferðarskólanum, og í vetur fór ég á
Álfarnir urðu mjög glaðir, þegar
þeir sáu nýju fötin og skóna. Þeir fóru
strax í fötin og settu upp skóna og
fóru svo að dansa af gleði og þeir
dönsuðu langa lengi á vinnuborði
skósmiðsins. Svo heyrðu hjónin, að
álfarnir sögðu hvor við annan: „Nú
erum við orðnir allt of fínir til að
sauma skó. Við vinnum ekki svona
lengur."
Síðan stukku þeir út um gluggann
og sáust aldrei síðan. En það gerði
skósmiðnum og konu hans ekkert til,
því þau áttu nóg fyrir sig að leggja og
voru hamingjusöm alla ævi.
Þorvarður Magnússon þýddi.
REIÐHJÓLIÐ
milli skólanna og skoðaði reiðhjólin
sem börnin fór á í skólana. Því miður
var stór hluti af þessum hjólum hreint
rusl og algerlega ólögleg. Þetta er
alvarlegt, þar sem megnið af slysum á
reiðhjólum verður hjá börnum á
þessum aldri og oft eru þetta alvarleg
slys."
Hvað snertir hinar ýmsu tegundir af
reiðhjólum, sem nú eru á mark-
aðinum, sagði Sigurður að nauð-
synlegt væri fyrir foreldra að huga vel
að öryggisútbúnaði reiðhjólsins, áður
en fest væru kaup á því. Sagði hann
að litlu hjálparhjólin væru ágæt og
hjálpa þau barninu mjög við að halda
jafnvægi, en hjól með mjög háu stýri
og litlu framhjóli, eins og nú eru í
tísku, geta verið mjög völt. Best er að
börnin haldi sig eingöngu á stígum og
göngugötum með hjólin og fari alls
ekki út á akbrautir fyrr en þau eru
orðin vel aö sér í umferðarreglum og
örugg á hjólinu. Sæti hjólsins verður
að vera í réttri hæð, og hin löngu og
mjóu sæti bjóða oft hættunni heim,
þegar börn fara að reiða hvert annað
á þeim, en slíkt er mjög hættulegt. Þa
er mjög hættulegt ef börnin fara að
breyta hjólunum.
Hvað skyldi kosta að kaupa sér nýtt
reiðhjól í Reykjavík í dag? Það munu
vera aöallega tvær verslanir í Reykja-
vík, sem selja mest af reiðhjólum. Hér
fáum við svarið. Reiðhjól fyrir ungl-
inga kostar allt frá 15 þúsundum upp í
70 þúsund, en alls eru milli 30 og 40
tegundir af reiðhjólum í verslunum.
Ennfremur eru á markaðinum svo-
kölluð fjölskylduhjól, sem eru ekki
með stöng og ætluð fyrir bæði kynin-
Kosta þau frá 25 þúsund krónum og
er jafnvel hægt að fá þau þannig að
þau megi brjóta saman. Hjólin eru frá
Póllandi, Englandi og Noregi og eru
norsku hjólin almennt talin fdH'
komnust, enda dýrust.
Twiggy, er var þekktasta
fyrirsæta heimsins á sjöunda
áratugnum, hefur nú ákveðið
að giftast leikaranum Micha-
el Whitney. Twiggy kvað vera
í sjöunda himni um þessar
mundir að vera loksins iaus
úr gamla „Twiggygervinu“,
því nú getur hún borðað allt
sem hana langar í.
26
• ÆSKAN - Hundruð heimilisfanga vegna bréfa-
skipta hér á landi og víða um heim.