Æskan - 01.10.1976, Qupperneq 29
I
INGIBJÖRG ÞORBERGS:
tal og tónar
Harpan
HARP/4
Mörgum finnst hin fagra, gullna
harpa vera allt að því fullkomið hljóð-
faeri. Hún er oft nefnd sómi, eða jafn-
vel drottning hljómsveitarinnar.
Harpan er forn að uppruna og til
eru margar stærðir og gerðir af henni.
Stærstu hörpurnar eru notaðar í
Hér sjáið þið mynd af Nicanor Zabaleta, einum þekktasta hörpuleikara heims.
Hann fæddist í San Sebastian á Spáni, hóf tónlistarnám sjö ára gamall, en var
við framhaldsnám í Frakklandi. Ekki væri til eins mikið af tónlist fyrir hörpu frá
okkar tímum ef Zabaleta hefði ekki verið slíkur snillingur, því að mörg tón-
skáld, bæði í Evrópu og Ameríku, hafa sérstaklega samið tónlist fyrir hann.
sinfóníuhljómsveitum. Á þeim eru sjö
„pedalar" (fótstig), og er því hægt að
leika á hana í hvaða tóntegund sem
er.
Hörpuleikarinn grípur í strengina
með fingrunum, og þegar hann rennir
þeim, eöa dregur, yfir strengina nefn-
ist það „glissando". Má þá segja, að
tónarnir streymi fram eins og á, sem
rennur. Með tónaflóði hörpunnar má
ná fram margskonar áhrifum, hvort
sem hún er notuð sem einleikshljóð-
færi, eða eitt af hljóðfærum sinfóníu-
hljómsveitarinnar.
Fom-egypskar hörpur.
Gömul tyrknesk harpa. Hér vantar
súluna framan á hörDuna.
Talnakýrin
Hve marga litra mjólkaði þessi kýr
síðastliðna viku? — Leggðu saman
alla tölustafina í henni og sjáðu til
hvað kemur út. (Tölustafinn 9 vantar
og raunar fleiri).
27