Æskan - 01.10.1976, Side 30
mm
Með á nótunum
Jæja, krakkar, eða á ég að segja: Komið þið sæl, eða „hæ gæ“ eða
sælar „skvísur", þetta er nú ekki allt íslenska, en ég veit um mann sem
endaði þátt sinn alltaf svona: „Verið þið sæl að sinni".
Málfræðingar þelr, sem fræða okkur um hvernig við eigum að tala, eru
nú ekki allir á eltt sáttir hvað er góð íslenska og hvað ekki. Persónulega sé
ég ekkert athugavert við tökuorðið skvísa, en það var á allra vörum eftir að
leikrit Agnars Þórðarsonar, Víxlar með afföllum, var flutt í Htjóðvarpinu.
Ég ætla að notast vlð orðin Hæ þið þarna, mér finnst það alltof alvarlegt
að segja: „Háttvirtu ungu lesendur".
En þlð skuluð hlusta á þættina íslenskt mál í Hljóðvarpinu og Mælt mál,
því það er aldrei að vita nema þeir fari að tala um mig sem „glæpon“ (Þetta
orð er komið inn í málið, en ekki úr íslensku).
Þessi þáttur hefur hlotið nafnið: MEÐ A NÓTUNUM og ég heiti Benedikt
Viggósson og er voðalega vitlaus, því ég skrifa bara á ritvél, en þegar ég
ætla að skrifa með penna þá skil ég ekki upp né niður í því sem ég hef
skrifað og það er svakalega asnalegt.
Það er meiningin að hafa sem mest af íslensku efni í þessum þáttum, en
ég mun láta fróðleiksmola um erlendar hljómsveitir og söngvara fljóta
með.
Verið þið sæl í bili.
Einu sinni var hljómsveit
Rúnar Júlíusson.
Nú vita allir að „Lonlý Blú Bojs" erú t'
þeir sömu og þeir sem sungu inn a
plötu með Hljómum 1974, en það voru ,
þeir:
Gunnar Þórðarson, Engilbert Jen' ,
sen, Rúnar Júlíusson og Björgvin /
Halldórsson. Einu sinni var Björgvin [
svo vinsæll þegar hann söng nieö
hljómsveitinni Ævintýri að aðdáendur
hans brutu sumir uppúr einni fran1
tönninni til aó líkjast honum serT1
mest.
Einu sinni var hljómsveit sem hét
Hljómar; þeir sungu fyrstir allra inn á
,,bítla“-plötu, en þar var Engilbert
Jensen vinsælastur þótt búið væri að
víkja honum úr hljómsveitinni og
trommuleikari að nafni Pétur östlund
kom í staðinn, en lagið sem Engilbert
söng varð ákaflega vinsælt, en það
hét „Bláu augun þín" og er eftir
Gunnar Þóröarson.
Síðan komu tvær stórar plötur eða
„breiðskifur" eins og sumir kalla 12
laga hljómplötur, jafnvel þótt plöt-
urnar væru allt að 14—16 laga, en
næstu stóru plöturnar komu út 1967
og 1968 og útgefandinn var Svavar
Gests, en hann kallar útgáfu sína
SG-hljómplötur.
Platan sem kom út 1968 var einnig
með ungri stúlku sem var vinsæl áður
með hljómsveit sem hét Óðmenn.
Stúlkan heitir Shady Owens og var þá
19 ára gömul, faðir hennar var út-
lendingur, en mamma hennar íslensk,
á báðum þessum hljómplötum söng
og spilaöi á trommur áðurnefndur
Engilbert Jensen, þótt söngur hans
nyti sín á þeim plötum ekki alltaf sem
best, en auðvitað var sungið á
íslensku.
Erllngur.
Engllbert.