Æskan - 01.10.1976, Síða 33
^9úst Ásgeirsson, félagi í
■ var einn af okkar
róttamönnum, sem tóku
í síðustu Ólympíuleikum.
la9úst er 24 ára gamall og
j a Þessu ári prófi í landa-
r^ði ,rá háskóla í Englandi.
Vrstu afskipti hans af
r°ttum voru þegar hann tók
' fyrsta Hljómskála-
auPinu og varð þá anna.r í
' hlaupi. Hann hafði ekkert
^ ■ en þetta varð til þess að
^ nn byrjaði að æfa og
sj Pf)a- Hann hefur síðan
s^rað ' öllum þeim Hljóm-
aahlaupum, sem hann
Ur tei<ir5 Þátt í. Ágúst sneri
hla^ að 800 m °9 1500 m
S(öUpi' en náði engum sér-
Fyr Uni árar>gri fyrstu árin.
jn Sta metið hans var ungl-
jn arpet i 1000 m hlaupi
Saanhúss 1970 2:45,4 mín.
Ia a ár var hann valinn í
g6 Slið unglinga í keppni
v6r n Dör|um og Vestur-Þjóð-
|< iU,T1 ' Danmörku. Árið 1971
st hann í A-landsliðið í
ksi
'ePPni
síö
Qegn jrum í Dublin,
maön ilefur hann verið fastui
bg^Ur ' 'slenska landsliðinu
liðn;ar ekk' fyrr en á síðast-
3ÖS SUmri að honum tóksl
etia fyrsta metiö utanhúss
^SKAN - Þáttui
í 3000 m hindrunarhlaupi
8:17,6. Mánuði seinna setti
hann met í 2 enskum mílum
9:05,0 mín og 10 dögum
seinna setti hann svo
[slandsmet í 1500 m hlaupi
3:45,8 mín. Á Ólympíu-
leikunum náði hann þessum
árangri: j 1500 m hlaupi varð
hann 35. af 42 keppendum á
3:45.47 mín, í 3000 m hlaupi
varð hann 34. í rööinni af 35
keppendum á nýju fslands-
meti 8:53.93 mín. Nú stefnir
Ágúst að næstu Ólympíu-
leikufn árið 1980.
Lilja Guðmundsdóttir var
einn af keppendum l’slend-
inga á leikunum í Montreal á
síðastliðnu sumri. Lilja er nú
21 árs gömul og er úr Reykja-
vík. Fyrsta þátttaka hennar í
íþróttum mun hafa verið árið
1968, þegar hún tók þátt í
Hljómskálahlaupinu. Ekki fór
hún svo að æfa neitt að ráði
fyrr en 1971 og keppti þá fyrst
í spretthlaupi, og árið 1972
hljóp hún 100 m á 13,2 sek og
200 m á 27,4. Þá fór hún einn-
ig að hlaupa 800 m og setti
sitt fyrsta (slandsmet í þeirri
grein, 2:20,2 mín. Árið eftir
setti hún svo (slandsmet í 400
m 59,3 sek., og þetta sumar
var hún valin í landslið
fslendinga, sem keppti um
Norðurlandabikarinn í Dan-
mörku, þar hljóp hún á 60,9
sek. Fyrsta fslandsmetið í
1500 m, 4:41,0 mín, setti hún
1975. Á þessum tíma var hún
bæði við æfingar í handbolta
og körfubolta og komst þar
fljótt í meistaraflokk. En árið
1974 varð sú breyting á
högum hennar að hún flutti til
Svíþjóðar og hefur verið þar
síðan. Þar hefur hún stundað
æfingar og oftlega tekið
þátt í íþróttamótum. Nokkr-
um sinnum hefur hún komiö
hingað heim og tekið þátt í
mótum, til dæmis meistara-
mótinu og í bikarmótinu
1975, og sama ár keppti hún
með íslenska landsliðinu í
Noregi; sigraði þar bæöi í 800
m 2:14,7 mín og í 1500 m
4:44,4 mín. Árið 1975 setti
Lilja fslandsmet á móti í
Svíþjóð í 800 m, 2:08,5 mín,
og á síöastliðnu sumri í 1500
m 4:26,2 mín. Næsta takmark
Lilju er að taka þátt í Evrópu-
meistaramótinu, sem fram fer
í Prag 1978 og- síðan í
Ólympíuleikunum í Moskvu
1980. Síðastliðinn vetur æfði
hún með því að hlaupa um 85
km á hverri viku, en segist
ætla nú í vetur að lengja þetta
upp í 100 km. Á Ólympíu-
leikunum hljóp Lilja 800 m á
2:07,26 mín, sem var nýtt
íslenskt met, og 1500 m á
4:20.27 mín, sem var einnig
nýtt íslenskt met.
Yngsti keppandinn í
íslenska Ólympíuliðinu í Mon-
treal á síðastliðnu sumri var
Þórdís Gísladóttir, sem keppti
í hástökki á leikunum. Hún
um frægustu málara, sem uppi hafa
felldi byrjunarhæðina, 1.70
metra, og var þar með úr leik.
Þórdís Gísladóttir er nú
aðeins 15 ára gömul og var
síðastliðinn vetur nemandi í
Hlíðarskóla í Reykjavík, en í
vetur mun hún stunda nám
við Vörðuskóla. Þórdís byrj-
aði í íþróttum árið 1972. Fyrst
tók hún þátt í þríþrautar-
keppni á vegum Frjálsíþrótta-
sambands íslands og Æsk-
unnar. f þeirri keppni komst
hún í úrslit og fór til keppni að
Laugarvatni og varð þar
þriðja í 11 ára aldursflokki. í
þríþrautinni var keppt í bolta-
kasti, 60 m hlaupi og hástökki
og stökk hún 1,35 m. Sumarið
1975 fór hún á Kalottkeppn-
ina í Noregi og náði þar öðru
sæti í hástökki, 1,62 m. Sama
haust keppti hún á Andrésar
Andar-leikunum einnig í
Noregi, og varð þar í 3. sæti,
stökk 1.63 m. Síðastliðinn
vetur náði hún 1,65 m stökki
og var það þá met. Besta
árangri sínum í hástökki náði
hún í Finnlandi í júní á síðast-
liðnu sumri, 1,73 m. sem var
þá nýtt fslandsmet, fyrra
metið átti Lára Sveinsdóttir,
og var það 1,72 m.
verið í heiminum.
31