Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1976, Blaðsíða 50

Æskan - 01.10.1976, Blaðsíða 50
Hinn heimsfrægi Alfred Hitchcock er ekki dauður úr öllum æðum, þótt orðinn sé 77 ára og eigi við hjarta- veilu að stríða. Hann hefur nýlega sent frá sér nýja mynd, sem er sú 53. í röðinni. Fjallar þessi nýja mynd um rán á erkibiskupi í augsýn safnað- arins. Mynd þessi er sama hrollvekjan og fyrri myndir hans, sem valda sýningar- gestum kvikmyndahúsanna engu minni gæsahúð en myndir hans gerðu fyrir ára- tugum síðan. Orðsending Munlð að setja nafn og heimilisfang ykkar á bréfin þegar þlð skriflð okkur. Það er góð regia að setja nafn sitt aftan á umslagið sem bréfið er sent í, það er trygging fyrir því að bréflð komist til skila. Jafnaldrar í öðrum löndum Þeim unglingum, sem biðja um bréfaviðskipti við jafn- aldra sína í Danmörku, Noregi og Færeyjum, skal bent á að skrifa til eftirtalinna blaða: Norsk Barneblad, Larvik, Norge; Magne, Akersgata 5, Boks 544, Sentrum, Oslo, Norge; Det nye Dansk Familieblad, Rygmestervej 2, Köbenhavn, Danmark og Barnablaðið, pósthólf 202, Tórshavn, Föroyum. ni||AA| nm I R Tex,,: Johannes Farestvelt uJUðul nULLfl ,3 Telkn.: Sotvelg M. Sanden .. . ■_ _____________ ________ 1.1 dag byrjar skólinn og Bjössi er snemma á fótum. Hann læðist inn í herbergið hennar Bjargar, sem steinsefur ennþá og veit ekki neitt, og það gengur vel hjá Bjössa að ná í einn af kjólunum hennar í skápnum, og peysu tekur hann líka. —-2- Þegar þau eru að borða morgunverðinn, rekur mamma hans augun í skóla- töskuna, sem Bjössi er búinn að troða út með fötunum hennar Bjargar og bókum- „Þetta er nú meiri farangurinn, sem þú ert búinn að binda á þig. Er það nu nauðsynlegt svona fyrsta daginn að hafa allar þessar bækur með sér?" Bjössi verður hálfórólegur, en er fljótur að átta sig. „Kennarinn sagði okkur að hafa me okkur hlý föt, því að veðrið getur breyst." — 3. Á leiðinni í skólann hittir hanh Þránd, sem hjálpar honum að skipta um föt, og Þrándur skemmtir sér konungle9a við að horfa á umskiptin. — 4. Krakkarnir eru ekki lengi að uppgötva hver leynist i þessum klæðnaöi og öskra af hlátri. „Haldið ykkur saman,“ segir Þrándur, ..°9 látið ekki á neinu bera, því nú leikum við á jómfrúna." — 5. í því kemur kennarinh og allt dettur ídúnalogn. Hún ersvo góðleg finnst Bjössa, sem hefur komiðsérfyrir á aftasta bekk stelpnamegin. Nú er um að gera að vera kaldur. — 6. Kennarinh ávarpar börnin vingjarnlega og segir því næst: ,,Þá eru það nöfnin. Við byrju aftast. Hvað heitir þú? spyr hún og bendir á Bjössa. ,,Ég heiti Bolla,“ byrjar Bjössl- „Það var undarlegt nafn," tautar kennarinn. ÆSKAN - Þáttur um heimilið. — Matur, baksturog fleira.i

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.