Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1985, Qupperneq 5

Æskan - 01.02.1985, Qupperneq 5
o Sara Stcfánsdóttir. — Tóku einhverjar vinkonur þín- ar þátt í keppninni? „Já, þessar tvær sem sögðu að ég ætti sigurmöguleika. Þær voru í hóp- keppninni og kölluðu sig Svart og hvítt.“ — Hvað fékkstu í verðlaun? „Ég fékk fataúttekt, tvær hljóm- plötur, bikar og gullpening með nafn- inu mínu.“ — Ætlarðu að taka þátt í næstu keppni sem verður haldin? „Sennilega. Ég og önnur stelpa erum farnar að æfa rneð Svörtu og hvítu og ætlum að keppa í Tónabæ á næstunni.“ - Ætlarðu að verða danskennari í frarr.tíðinni? „Ég veit það ekki. Ég er ekki búin að ákveða það.“ — I hvaða skóla ertu? „5. bekk Melaskóla.“ — Er gott félagslíf þar? „Það er lítið ennþá. Það batnar þegar við förum í 6. bekk. En krakk- arnir í skólanum eru skemmtilegir og það kemur að sumu leyti í staðinn fyrir félagsstarfið.“ — Að lokum. Hvaða hljómsveit helduröu mest upp á? „Duran Duran - alveg tvímæla- laust!“ Mcð Lukku í sjó við Noreg. Scnd.: Victoría Rán Ólafsdóttir, Svanshóli, Strandasýslu. VEISTU—— ■■HHHSVARIÐ? 1. Hvcr íslcnskra skákmanna hlaut fyrstur stórmeistaratitil? 2. Hvað er ein sjómíla löng? 3. í hvaða sýslu er: a) Hvítserkur? b) Dyrhólaey? c) Skrúður? 4. Hve breitt er Eyrarsund þar sem það cr mjóst? 5. Hvaða einkennisstaf hafa bifreiðar frá Bolungarvík? 6. Risakengúra, sem nær sjö feta hæð, er aðeins einn þumlungur þegar hún fæðist. Hvað merkir orðið Kengúra? 7. Hvcr á Islandsmct í kúluvarpi? 8. Hvcr þýddi bókina Margs konar dagar? 9. Hverjir flytja lagið „Þúsund sinnum segðu já“? 10. The Miracle heitir stærsti klcttur hcimsins. Hann vegur 12000 tonn! Hvar stendur hann? 11. Eftir hvern er bókin Himnaríki fauk ekki um koll? 12. Hverjar cru elstu inenjar norrænnar tungu? 13. Hvernig eru blóm lyfjagrassins lit? 14. Hverjir skipa hljómsveitina WHAM!? 15. Hvaða íslenskur knattspyrnumaður hefur ráðið sig til enska liðsins Sheffi- eld Wednesday? 16. Hverjir sungu lagið Ebony and Ivory? 17. í hvaða sýslu er: a) Skálholt? b) Hól- ar í Hjaltadal? c) Þingeyrar? 18. Hver er forsætisráðherra á Indlandi? 19. Hvcr er Þjóðleikhússtjóri? 20. Hver samdi sögurnar um Línu lang- sokk? Smælki — Það er komið auðvitað alveg und- ir því hve lieitt þér elskið hana! Görnul kona kom til hundasala og keypti af honum lítinn kjölturakka. Er hún hafði greitt fyrir hundinn spurði hún til frekara öryggis: „Er hann tryggur, greyið?“ „Hvort hann er! Ég er búinn að selja hann fimm sinnunt og alltaf kemur hann aftur til mín.“ ^ ÆSKAN 5 i

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.