Æskan - 01.02.1985, Qupperneq 6
oo
Barnaútuarp
Ein milljón barna og
fullorðinna hlustar
á þau
Þau Tanja, 13 ára, og Jesper, 14 ára,
eru þulir í Barnaútvarpinu á rás 3 í
danska ríkisútvarpinu. Barnaútvarp-
ið hefur verið á dagskrá í rúmt ár.
Það er sent út fjórum sinnum í viku á
einum besta útsendingartímanum frá
kl. 16—17. Hlustendakönnun, sem
gerð hefur verið, sýnir að rúmlega
ein milljón barna og fullorðinna
hlustar á þáttinn.
Barnaútvarpið býður upp á bland-
aða dagskrá: tónlist, viðtöl, stutt
innskot um ýmis efni og fréttir. Dag-
skráin er undirbúin af fullorðnum og
textinn saminn af þeim en börnin
lesa hann.
Tanja hefur verið þulur síðan í maí
í fyrra. Hún segir: „Bekkjarsystir
mín skrifaði til útvarpsins og sótti um
að fá að verða þulur. Henni var boð-
ið að koma í „prufuupptöku“ og ég
fór með henni. En svo vildu þeir líka
prófa mig - og þó að ég flissaði
mikið í upptökunni var ég ráðin.“
Jesper hefur verið þulur í Barna-
útvarpinu frá því að það tók til
starfa. Hann hefur hugsað sér að
taka sér hvíld á næstunni. „Það er
æðislega gaman að vera þulur,“ segir
hann „en það er aldrei frí.“
Þulirnir lesa allan texta, eins og
áður hefur komið fram, en einnig
velja þeir lög sem leikin eru. Helm-
ingur þáttarins fer í tónlist. „Það er
eiginlega nóg fyrir okkur að velja
tónlistina. Stjórnendurnir semja
lagakynningar en ef okkur finnst þeir
skrifa eitthvert rugl breytum við text-
anum eins og við viljum hafa hann,“
segja þau Tanja og Jesper. „Auk
þess tökum við viðtal við þriðju-
dagsgestinn svokallaða. Við stjórn-
um viðtalinu en það er alltaf einhver
illlil;
llii
ó/ESKAN