Æskan - 01.02.1985, Síða 9
o
þann leik. Og þeir telja okkur auö-
sigraða andstæðinga. Einhver í okk-
ar liði heyrði einn þeirra segja að
leikurinn við okkur væri bara forms-
atriði. En ekki erum við á sama máli
og engan veginn er þetta áreynslu-
laust formsatriði.
Eg finn þegar líða tekur að úrslita-
Ieiknum að ég er orðinn býsna
þreyttur. Fæturnir eru að verða hálf-
þungir og ég hugsa með mér að þetta
verði erfiður leikur. En hann verðum
við að vinna.
Við byrjum með boltann og hefj-
um ieikinn rólega. Þjálfarinn hafði
sagt að við ættum að vera varkárir í
byrjun og halda boltanum. En reyna
svo snöggar sóknir. Þetta kallast að
„svæfa“ andstæðingana segir hann.
En það tekst ekki alltof vel.
Snemma í leiknum er ég með
knöttinn nálægt miðju og ætla að
senda á einn félaga minn. En þá er
einn Valsmaðurinn allt í einu kom-
inn með boltann. Eg lengst til vinstri
en hann nálægt miðju. Og leið hans
að markinu er greið. Þeir skora. Og
ekki líst mér á blikuna. Var þetta
mér að kenna? Var þetta mér að
kenna? Þessi spurning gerist mjög
áleitin. Líklega hef ég verið fullkæru-
laus og ekki vandað mig nægilega.
Við byrjum aftur með boltann og
Svenni er með hann og ætlar að
senda aftur á mig. Ég tek boltann og
sendi hann rakleiðis aftur á Svenna
sem reynir að leika á einn Valsmann-
inn. En það er ekki jafnauðvelt og
hann álítur. Hann missir boltann og
ég er einn á móti Valsmanni sem
sólar mig og skorar aftur. Og
skömmu síðar er kominn hálfleikur.
Og staðan 0:2.
„Þú ert ljóti sauðurinn, Bjössi,“
segir Svenni. „Fyrst gefur þú þeim
boltann og svo læturðu sóla þig upp
úr skónum. Ertu alveg búinn,
drengur?“
„Nei,“ svara ég ævareiður. „En þú
hefðir alveg getað sleppt þessari sýn-
ingu áðan.“
Eftir þessi orðaskipti grípur þjálf-
arinn fram í fyrir okkur Svenna.
„Við skulum bara leggja okkur alla
fram í seinni hálfleik. Þá getum við
kannski unnið.“
Við göngum inn á völlinn ákveðnir
í að leggja okkur alla fram. Á leið-
inni út á gólfið verður mér litið í
áttina að áhorfendum. Og þar sé ég
mann sem ég þekki. Það er pabbi.
Pabbi er kominn og þá verðum við
að sigra, hugsa ég með mér. Það
hleypur í mig mikill fítonskraftur.
Við verðum að vinna.
Þegar leikurinn er nýbyrjaður aft-
ur er einn andstæðinganna með bolt-
ann nálægt okkar vítateig. Ég ákveð
að ráðast að honum og reyna að ná í
boltann. Og ég nálgast hann og hon-
um fipast og ég veit ekki fyrr en ég er
kominn á fulla ferð upp völlinn og
kemst einn í gegn og skora. Við þurf-
um bara að skora eitt enn og þá er
jafnt.
Valsmenn byrja og reyna að kom-
ast í gegnum vörnina hjá okkur.
Svenni er alltaf að reyna að trufla þá
og allt í einu uppgötva ég að hann
hefur náð boltanum. Ég hleyp af stað
á fullri ferð og allt í einu sé ég bolt-
ann rétt fyrir framan fæturna á mér
og allir Valsmennirnir fyrir aftan
mig. Góð sending þetta hjá Svenna
og við búnir að jafna.
Enn byrja Valsmennirnir með
boltann. Þeir hafa aldrei verið
ákveðnari í að vinna okkur en núna.
Þeir leika vel á vörn okkar og eiga
gott skot að marki, en boltinn lendir
í stönginni og hrekkur til mín. Þá sé
ég að Svenni er kominn á fulla ferð
og ég sendi háa sendingu fram völl-
inn. Og viti menn! Svenni skorar.
Staðan er 3—2. Við getum unnið þá,
hugsa ég með mér og um leið verður
mér hugsað til pabba. Ég verð að
vinna fyrir pabba. Ég einbeiti mér að
því. Og það tekst. Þrátt fyrir
ákveðnar tilraunir andstæðinganna
til að leika á okkur tekst það ekki.
Við vinnum 3-2. Við erum meistar-
ar. Og það hafðist þegar við Svenni
hættum að rífast og fórum að ein-
beita okkur að því að vinna saman.
Og kannski líka af því að ég vildi
vinna fyrir pabba.
Sveinn S. Helgason
Marie Karlsson, N. Ádalsvágen 33,
881 00 Sollefteá, Sverige. Aldur 12—
20 ára. Er sjálf 14 ára. Áhugamál:
Fótbolti, tónlist og dýr. Skrifar
ensku og sænsku.
Helena Forstand, Fallbrátsg. 7,
65469 Karlstad, Sverige. 12—13 ára.
Johanna Ellström, Vintjárn P. L
4294, 79023 Svárdsjó, Sverige. 11
ára. Áhugamál: Dýr, sund og lestur.
Eftirlætis-tónlistarmenn: Alphaville,
Michael Jackson og Twist sisters.
Freddie Petersson, Ramels Vág 131,
213 69 Malmö, Sverige. 8 ára.
Áhugamál: Frímerki og bréfaskipti.
Maria Bergstond, Eddavágen 13B,
63353 Eskilstuna, Sverige. 13—16
ára.
Maria Alsen, Nybyggarv. 6, 86400
Matfors, Sverige. 15 ára. Áhugamál:
Dans, sund og tónlist. Vill skrifa
stelpum og strákum.
Anna Hedin, Överlotsv. 7, S-955 00
Ráneá, Sverige. 14 ára strákar og
stelpur. Áhugamál: Bréfaskipti,
teiknun, dýr og tónlist. Skrifar á
ensku og sænsku.
Ása Svensson, Körsbársvágen 13B,
510 45 Sparsör, Sverige. Strákar og
stelpur 10-14 ára.
Sara Fredriksson, Spinnare v. 26,
240 17 S. Sandby, Sverige. 7—10 ára.
Er sjálf 10 ára.
Maria Holm, PL 6151,42700 Billdal,
Sverige. 13 ára.
Cecilia Wallin, Trollbáksv. 5, 740 22
Bálinge, Sverige. 14-16ára. Ersjálf
14 ára.
Jessica Panke, Tángrevsvágen 13A,
30239 Halmstad, Sverige. 12 ára.
Anna Theliu, Drottninggatan 246,
252 33 Helsingborg, Sverige. 13—15
ára. Áhugamál: Tennis, dans, tón-
list, strákar og hestar (á einn).
Fredrik Melin, Storgatan 91, 33100
Várnamo, Sverige. 10 ára.
Lotta Westberg, Vaktelgatan 13, S-
431 33 Mölndal, Sverige. Er 14 ára.
Aldur pennavina skiptir engu máli.
Skrifar á ensku og sænsku. Áhuga-
mál: Tónlist, fótbolti og lestur bóka.
Elisabeth Carlsson, PL. 4298 Nybyv,
S-94200 Álvsbyn, Sverige. 13—18
ára. Er sjálf 14 ára.
ÆSKAN 9
L