Æskan - 01.02.1985, Síða 11
//
o
Eiríksson, og áttu þau 5 börn, 2 dæt-
ur og 3 syni. Árið 1948 fluttu þau í
Mosfellssveitina og áttu heima þar í 9
ár. Þá fluttu þau aftur til Reykjavík-
ur, í lítið hús á Starhaganum.
Amma og afi unnu bæði úti á þess-
um árum. Amma vann t. d. í versl-
un, á hinum og þessum hótelum við
kaffiveitingar o. fl., í samsölunni og
bakaríum. Afi var hins vegar verk-
stjóri hjá Hitaveitu Reyjavíkur á
jarðborum.
Amma er nú ekkja og á enn heima
í Reykjavík. Hún hefur ferðast mikið
um landið okkar. Árið 1977 fór önn-
ur okkar systranna með henni, afa og
frænda okkar í hringferð kringum
landið og var hún bæði skemmtileg
og mjög minnisstæð.
Að lokum spurðum við svo ömmu:
Er þér ekki eitthvað alveg sérstak-
lega minnisstætt frá bernskuárum
þínum?
„Jú. Frostaveturinn mikli 1918. Þá
bjó ég á Akureyri í pósthúsinu sem
jafnframt var leikhús bæjarins og var
númer 66 við Hafnarstræti, og var nú
ekkert allt of hlýtt í því húsi frekar en
öðrum. Og þá lagði allan Eyjafjörð
og ísinn \,ir svo þykkur að mörg
skipanna frusu föst og meðal þeirra
var gamli. góði Gullfoss. Það var
gengið á ísnum um borð í skipin og í
land.“ .
1 næsta blaði birtist viðtal við
föðurömmu stelpnanna.
Til þátttakenda í
Gagnvegaverkefninu
Við þökkum ykkur kærlega fyrir
góðar undirtektir og skemmtileg við-
töl. Þau hafa öll sérstakt gildi - eink-
um fyrir það að enginn segir ævisögu
aðalpersónunnar eins vel og hún sjálf
gerir. Viðtölin eru valin af handahófi
til birtingar hverju sinni. Enn eiga
mörg þeirra eftir að birtast. Biðin
getur því orðið dálítið löng fyrir þá
sem verða síðastir í röðinni. Vonum
við að þeir sýni þolinmæði.
Við endurtökum þakkir okkar og
vonum að birting viðtalanna veiti
ykkur ánægju og ykkur verði sómi
af.
Gagnveganefnd.
Nafn: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Fæðingardagur og ár: 16. 6. 1973
Stjörnumerki: Tvíburi
Skóli: 5. ÁV Árbæjarskóla
Bestu vinir: Aníta og Berta
Áhugamál: Fimleikar
EFTIRLÆTIS:
-íþróttamaður: Enginn sérstakur
-popptónlistarmaður: George
Michael
-leikari: Sigurður Sigurjónsson
-rithöfundur: Andrés Indriðason
-sjónvarpsþáttur: Dýrasta djásnið
-útvarpsþáttur: Frístund á rás 2
-matur: Kjúklingapottréttur.
-eftirmatur: Is
-dýr: Hamstur
-bílategund: Range Rover
-liturinn: Grár
-námsgrein í skólanum: Reikningur
Leiðinlegasta námsgreinin: Danska
Besti dagur vikunnar: Þriðjudagur
Leiðinlegasti dagurinn: Fimmtu-
dagur
Bestu kostir vina: Skilningsríkir og
geta tekið gríni
Leiðinlegast í fari vina: Þegar þeir
geta ekki tekið gríni
Háttatími: Milli kl. 10—11. Vakna
kl. 7 á morgnana
Það land sem mig langar mest til að
heimsækja: Bandaríkin
Það sem mig langar að verða: Lýta-
læknir
Draumamaðurinn: Hann á að vera
ljóshærður með blá augu og auð-
vitað skemmtilegur.
Nafn: Júlíus Atlason
Fæðingardagur og ár: 18. 12. 1975
Stjörnumerki: Bogmaður
Skóli: 3. KÞ Árbæjarskóla
Bestu vinir: Vilhjálmur, Lárus og
Daníel
Áhugamál: Fótbolti, handbolti og
skíði
EFTIRLÆTIS:
-íþróttamaður: Ásgeir Sigurvinsson
og Kristján Arason
-popptónlistarmaður: Michael
Jackson
-leikari: Þórhallur Sigurðssn (Laddi)
-rithöfundur: Enid Blyton
-sjónvarpsþáttur: Skonrokk
-útvarpsþáttur: Morgunþátturinn á
rás 2
-matur: Nautasteik
-eftirmatur: ís
-dýr: Páfagaukur
-bílategund: Porche
-liturinn: Blár
-námsgrein í skólanum: Leikfimi
Leiðinlegasta námsgreinin: Ritæfing-
ar
Besti dagur vikunnar: Sunnudagur
Leiðinlegasti dagurinn: Fimmtudagur
Bestu kostir vina: Hressir og
skemmtilegir
Leiðinlegast í fari vina: Þegar þeir
eru með læti, eru að slást og svo-
leiðis
Háttatími: Kl. 10. Ég vakna kl. 9
Það land sem mig langar mest til að
heimsækja: Bandaríkin
Það sem mig langar mest til að verða:
Flugmaður
Draumakonan: Ég get ekki lýst
henni. Það verður bara að skýrast
síðar.
___________________________________J
ÆSKAN 11