Æskan - 01.02.1985, Síða 16
áo
Það hló ekki nokkur maður...
— Er ekki stundum erfitt að vera
skemmtikraftur?
„Jú. Stundum þarf ég að skemmta
á tveim til þrem stöðum santa kvöld
og þá er mikið atriði að vera vel
upplagður. Aðeins einu sinni hefur
allt farið út um þúfur hjá mér. Þá
vorum við Þorgeir Ástvaldsson að
skemmta á samkomu hjá átthagafé-
lagi Bolvíkinga. Hvernig sem við
reyndum tókst okkur ekki að fá
nokkurn mann til að hlæja eða
, ,AUtetf langað að leika
að treysta á neinn annan og stendur
og fellur með sjálfum sér.“
- Kemurðu alltaf fram í sama
gervinu?
„Nei, þau eru mörg. Ég hef verið í
kvenmannsgervi, einnig sem verka-
maður í vinnugalla með sixpensara,
og svo hef ég komið fram sem Bjössi
bolla en það hefur verið aðallega á
fjölskyldu- og barnaskemmtunum.
Bjössi er einkum ætlaður börnum.“
- Semurðu alit skemmtiefnið
sjálfur?
„Já, meirihlutann. Ég fletti
gömlum blöðum niðri á Landsbóka-
safni í leit að bröndurum, skrifa síð-
an hjá mér ef ég heyri eitthvað fynd-
ið hjá félögunum og legg mér sér-
kennilegt fólk á minni. Ég reyni oft-
ast að aðlaga skemmtiefnið þeim
hópi sem hlýðir á það hverju sinni.
Það vekur mikla kátínu þegar ég
heimfæri brandarana upp á einhverja
sem allir í salnum þekkja. Ég er allt-
af með eitthvað nýtt í hvert sinn sem
ég skemmti því að ég get aldrei vitað
hvort einhver í salnum hefur áður
heyrt efnið hjá mér.
Ég vil bæta við þetta að ég fæ oft
hugmyndir að efni þegar ég fer í
sundlaugarnar. Þá slappar maður svo
vel af og gott er að íhuga ýmislegt.
Ég reyni að komast í sund á hverjum
degi.“
— Hefurðu verið í leiklistarskóla?
„Já, ég var í leiklist hjá Ævari
Kvaran í þrjá vetur og hafði bæði
gagn og gaman af. Ég hóf síðan
prentnám og ætlaði eftir það í
Leiklistarskóla íslands. Ég lauk
prentnáminu en ekkert varð úr frek-
ara leiklistarnámi. Ég trúlofaði mig,
eignaðist barn og tíminn fór allur í að
sjá fyrir mér og mínum.“
- Varstu prakkari í æsku?
„Já, maður var alltaf að vekja á sér
athygli og vildi verða númer eitt. Ég
ólst upp í Laugarneshverfinu og þar
gerðist margt skemmtilegt. Ég var
stundum að skemmta krökkunum
með því að herma eftir kennurunum
og þannig reyndi maður að komast í
álit hjá bekknum. Sennilega var ég
að breiða yfir dálitla feimni í mér. Ég
náði henni svo úr mér hjá Ævari
Kvaran.“
16 ÆSKAN