Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1985, Side 26

Æskan - 01.02.1985, Side 26
óo BLAEYGÐIR STRAKAR OG SKEMMTILEGAR STELPUR Á þessari síðu birtum við síðustu bréfin sem komið hafa með lýsingum á draumaprinsum og -prinsessum. Við getum ekki tekið við fieiri bréfum að sinni en hver veit nema við gerum það síðar. Þá látum við ykkur vita. Við þökkum þeim sem þegar hafa skrifað okkur. Stelpurnar segja: Draumaprinsinn minn á að vera svarthærður, bláeygður, meðalhár, ekki feitur, góður og skiiningsríkur, hreinskilinn og ekki merkilegur með sig. Tina. Prinsinn okkar á að vera með hrafnsvart hár og gul augu. Hann á að vera góður í bridds og þykja gul- rætur góðar. Hann á að vera ríkur bóndi. Tvær hressar á Akureyri. Mig langar til að lýsa draumaprins- inum mínum. Hann er Ijóshærður, bláeygður, hjartahlýr, frekar vel efn- um búinn, stundar íþróttir og hjálpar mér við heimilisstörfin. Hann er herðabreiður og frekar sterkur. 11 ára stelpa á Akureyri. Minn prins er dökkhærður með blá augu, skemmtilegur, skilningsrík- ur og hjálpar mér við húsverkin. Hann er ekki með stæla. 7662-0393. Prinsinn okkar er með ljóst hár, blá augu og vel vaxinn. Hann er skilningsríkur og milljónamæringur. Hann vinnur ekki mikið úti. Guðbjörg Sigríður Guðbrands- dóttir, Judith Amalía Guðmunds- dóttir, Búðardal. Draumaprinsinn minn er Ijóshærð- ur og með blá augu, skapgóður og snyrtilegur. Ekki sakar að hann sé prentari. Hjördís 9 ára. Prinsinn minn er bláeygður, fín- gerður, helst ekki fótalangur, grann- ur, vel menntaður og í góðri vinnu. Hann er ekki loðinn á bringunni og má ekki fá skalla fljótt eða grátt hár. Hann reykir hvorki né drekkur og á svolítið af peningum, þó ekki of mik- ið. Prinsinn hjálpar mér við heim- ilisstörfin og gerir flest af því sem ég biö hann um. Draumurinn er að við búum í einbýlishúsi og eigunt góðan bíl. Dísa. Prinsinn minn á að vera sætur, góður, skilningsríkur og mátulega efnaður. Hann á að vera með blá augu, svarthærður eða Ijóshærður og duglegur að vinna. 10 ára janúarstelpa úr Húnavatnssýslu. Strákarnir segja: Ég er með prinsessuna mína á hreinu. Hún er dökkhærð með brún augu og vel vaxin. Hún er kurteis og blaðrar ekki mikið. Óli Sveinn, 8 ára. Draumaprinsessan mín á að vera lagleg, ljóshærð, bláeygð og skemmtileg. Hún á helst að vera dá- lítið yngri en ég. Bless, bless, Kiddi. Draumadísin mín er í sama bekk og ég. Ég þori ekki að segja hvað hún heitir. Hún er ofsalega falleg, dökkhærð með grænblá augu, falleg- ar hvítar tennur, dugleg að læra, stundar fimleika og er mjög eftirsótt af strákum. Ég vona að hún verði konan mín þegar við eldumst. Ég vil enga aðra. 11 ára strákur í Reykjavík. 26 ÆSKAN

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.