Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1985, Síða 30

Æskan - 01.02.1985, Síða 30
 Umsjón: Þór Jakobsson Sums staðar erlendis eru svonefnd vís- indasöfn. Þau eru geysivinsæl og mikið sótt af fólki á öllum aldri, ekki síst ungu fólki. Söfnin eru mjög fjölbreytileg en tilgangur þeirra er að kynna vísindin, einkum náttúruvísindin, á skemmtilegan og fróðlegan hátt. Ef við hugsuðum okkur að við værum að heimsækja eitt slíkt safn mundum við fá við innganginn dálítið kort yfir salina í byggingunni. í hverjum sal eru sýningar á ýmsum hlutum í náttúrunni, grösum, steinum og dýrum. Þar eru fagurlituð veggspjöld og margvíslegar upplýsingar um allt milli himins og jarðar. f einum salnum eru sýndar fræðslumyndir, í öðr- um flytja fróðir menn erindi um fugla, fiska, ský, stjörnur eða annað forvitni- legt. En mest er aðsóknin að tækjaherbergj- unum þar sem sýningargestir mega koma við hlutina, ýta á takka og koma ýmsu á hreyfingu sér til fróðleiks og skemmtunar í senn. Þar eru vogarstangir, stórar klukkur, kynning á fjarskiptatækjum, leysigeislum, tölvum og enn gætum við Iengi talið. Þarna er líf og fjör og þeir sem verða þreyttir á löngum göngum um marga sali geta tyllt sér á stól í fallegum kaffisal og fengið sér kók eða kaffi. Auk þessa sem sýnt er innan dyra má njóta náttúrunnar utan húss. Umhverfis slík vísindasöfn eru oft gróðursælir garð- ar með ýmsum trjátegundum, grösum og jafnvel dýrum þótt þau séu reyndar hvorki höfð jafn-mörg né fjölbreytileg og í dýragörðum. N áttúruf ræ ðisaf n í Reykjavík Einu sinni var allstórt náttúrugripasafn í Reykjavík, sem strákum og stelpum fannst mjög gaman að skreppa til og skoða. Því miður lognaðist safnið út af að mestu en þó er lítill hluti þess til sýnis í húsi við Hlemmtorg í Reykjavík. Safnið tilheyrir Náttúrufræðistofnuninni, sem þar er til húsa, og var í rauninni upphaf- lega hið eiginlega Náttúrugripasafn. En hver veit nema rætist úr safnskort- inum á ný - eftir nokkur ár? í vetur hefur starfað dálítill hópur manna að hugmyndinni um að reisa vísindasafn sem líklega yrði kallað Náttúrufræðisafn en ekki vísindasafn. Orðið „vísindi" er nefnilega mjög víðtækt orð og á ekki bara við „náttúruvísindi“ heldur líka margs kyns fræðigreinar aðrar, svo sem málvísindi, sagnfræði og sálfræði. Náttúru- fræði- safn sett á fót? Náttúrufræðisafnið yrði eins konar framhald á gamla Náttúrugripasafninu en miklu stærra og fjölbreytilegra. Eitt er víst: þangað verður gaman að koma og margt að sjá og heyra. Tegundabækur Eins og þið kannski vitið geta áhuga- menn um fugla, steina, skeljar, grös og annað í náttúrunni flett upp í bókum um viðfangsefni sitt þar sem lesa má um tegundirnar, þ. e. a. s. margar tegundir fugla, steina o. s. frv. Tilgreindur er litur, önnur gerð og sérkenni tegund- anna. Ef um dýr er að ræða er lítillega sagt frá hegðun þeirra. Þannig verður stundum auðvelt að finna nafn á jurt eða fugli ef menn hafa slíka bók undir höndum. Ég ætla nú að nefna tvær slíkar bækur. Önnur er um fugla en hin um skeljar. Fuglabók Bókin um fugla kallast Fuglar íslands og Evrópu. Það var Finnur Guðmunds- son fuglafræðingur sem íslenskaði bókina og bætti við efni um fugla á íslandi. í bókinni eru fallegar litmyndir af fuglun- um. Fremst í henni er sagt frá greiningu fugla, þ. e. a. s. aðferðum til að þekkja fugla í sundur. Farið er eftir stærð fugl- anna, vaxtarlagi, hátterni, fluglagi og lit. Þá er vitanlega hægt að styðjast við kvak og söng. Einnig má dæma eftir því lands- lagi eða umhverfi þar sem menn verða helst varir við fuglinn. Uppáhaldsstaður fugls kallast kjörlendi hans. Þar kann hann best við sig og þar kemst hann best af í lífsbaráttunni. Framvegis hér í þáttunum munum við líta betur á einn og einn fugl, fletta upp í Fuglabókinni og leggja á minnið auð- kenni hans. Þið gætuð þá skimað í kring- um ykkur næst þegar þið eigið leið um kjörlendi fuglsins og reynt að sjá hann- og heyra. Skeljabók Hin bókin, sem við ættum líka að fletta upp í öðru hverju, heitir Skeldýrafána íslands og er eftir Ingimar Óskarsson dýrafræðing. „Fána“ er skrýtið orð og þýðir það sama og „fauna“ á erlendum málum. Orðið er notað um safn dýra á afmörkuðum svæðum eða á tilteknu tímabili. Skeldýr eru furðu fjölbreytileg og í bókinni er t. d. lýsing á tæplega 100 íslenskum sæskeljum. Sæskeljar nefnast einnig samlokur, en auk lýsingar á samlokum er greint í bók- inni frá sœsniglum með skel. Skelkápan, sem sæsniglarnir sveipa um sig sér til hlífðar, eru einmitt kuðungurinn sem gerir dýrir svo sérkennilegt. Og það eru til margar tegundir af kuðungum eins og sjá má á teiknimyndum í fyrrnefndri bók. En látum þetta nægja í bili. Kannski munuð þið fyrir næsta þátt uppgötva fugl eða skel sem þið hafið ekki veitt eftirtekt fyrr. Reynið! 30 ÆSKAN

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.