Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1985, Page 34

Æskan - 01.02.1985, Page 34
Horfirðu oft á myndbönd (videó)? Sigrún Inga Hrólfsdóttir 11 ára: Nei, ekki oft. Við eigum ekki mynd- bandstæki en stundum sé ég efni hjá vinkonum mínum, eins og t. d. Skonrokk og áramótaskaupið. Við getum horft á Skonrokkið aftur og aftur. Við vinkonurnar höfum nokkrum sinnum leigt spólu og horft á hana heima hjá þeim. Þá kaupum við kannski kók og poppkorn til að hafa með. Ólafur Schram 11 ára: Það er ekki myndbandstæki heima en ég sé stundum myndir heima hjá vinum mínum. Það hafa þá verið bíó- myndir og annað skemmtilegt efni. Nei, ég hef aldrei leigt spólur með þeim. Sumir vina minna eru mjög spenntir fyrir myndbandinu. Ég veit um einn sem horfir á tvær til þrjár spólur á dag. Hann horfir tvisvar á sumar myndanna. Þær eru flestar úr sjónvarpinu. Bjarki Már Magnússon 12 ára: Já, það er til myndbandstæki heima. Ætli ég horfi ekki svona á tvær myndir í viku. Ég tek alltaf Skon- rokkið upp og horfi á það nokkrum sinnum. Annars þykja mér gaman- myndir bestar. Mamma og pabbi leigja sjaldan spólur. Pabbi er oft að vinna á kvöldin og lætur þá taka upp fyrir sig fréttirnar og fleira efni. Ég held að það sé best að horfa á mynd- bönd í hófi. Bryndís Guðmundsdóttir 10 ára: Já, ég horfi á nokkrar myndir á viku. Það er myndbandstæki heima. Helst horfi ég á framhaldsmyndaþætti eins og t. d. Falcon Crest. Einnig tökum við mikið upp úr sjónvarpinu, eins og Skonrokk og bíómyndir. Stund- um get ég horft tvisvar til þrisvar á sömu spóluna. Ég leigi aldrei myndir sjálf. Jón Ögmundsson 11 ára: Nei, aðeins örsjaldan og þá heima hjá vinum mínum. Við leigjum okk- ur hryllingsmyndir sem eru bannaðar fyrir yngri en sextán ára og skemmtum okkur vel. Nei, ég verð aldrei hræddur og sofna eins og ekk- ert sé nóttina á eftir. Mér finnst nóg að horfa á tvær myndir á mánuði því að tómstundirnar fara flestar í að leika mér með tölvuna mína. Heiða Lára Heiðarsdóttir 10 ára: Já, ætli ég horfi ekki á þrjár myndir á viku. Stundum leigjum við vinkona mín saman mynd og svo horfi ég alltaf á Dynasty-þættina. Mér finnst skemmtilegast að horfa á fjölskyldu- myndir. Við vinkona mín höfum nokkrum sinnum leigt okkur myndir sem bannaðar hafa verið börnum innan 16 ára aldurs. Þær voru ekkert sérstakar. Afgreiðslumaðurinn í myndbandaleigunni spurði okkur ekki um nafnskírteini. Heima hjá mér er oft tekið upp efni úr sjónvarp- inu, eins og t. d. Skonrokk.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.