Æskan - 01.02.1985, Page 39
Pési litli var kominn í fótboltaliðið eftir
stranga baráttu. Fyrir fyrsta leikinn var
hann óeðlilega taugaóstyrkur og þjálfar-
inn spurði hvort svo væri.
— Já, svaraði Pési. Ég er hræddur um
að hinir vinni.
— Sannir íþróttamenn eru aldrei
hræddir, svaraði þjálfarinn. Þeir eiga að
vera öruggir.
- Já, svaraði Pési. Ég er öruggur um
að hinir vinna.
Um daginn lagði ég nokkur samlagn-
ingardæmi fyrir litlu systur mína.
Þegar ég fór yfir dæmin reyndust
svörin öll röng. Dæmin höfðu greini-
lega verið heldur erfið fyrir hana. Ég
merkti x við öll svörin og beið þess
að hún hefði hátt og segði ljótt þegar
hún sæi það.
Ég varð ekki lítið undrandi þegar
hún kom brosandi út að eyrum og
faðmaði mig að sér.
— Eru allir þessir kossar fyrir
mig? spurði hún yfir sig ánægð.
. . . Þessir krakkar . . .
Jói
Ég var afar ánægð þegar vinkona
mín sagði mér að platan senr ég gaf
henni í afmælisgjöf hefði verið besta
gjöfin sem hún fékk.
- Já, var hún ekki frábær? spurði
ég-
— Alveg einstök, sagði vinkona
mín. - Mamma segist skulu gefa
mér fimm hundruð krónur á viku
fyrir að spila hana ekki!
Beta
nlSEGC
...eru
stærðarflokkuð
og gæðaskoðuð egg.
þú getur
valið um 3 stærðir.
ÍSEGG
ÆSKAN 39