Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1985, Qupperneq 40

Æskan - 01.02.1985, Qupperneq 40
 M IK) sem þorði ekki í skólann eftir Herdísi Egilsdóttur. Já, hvað var eiginlega orðið um Jóa? Pað var þeim Magga og Dóru hreinasta ráðgáta. En við sem lesum söguna vitum vel að Jói hafði laumast með nýju skólatösk- una dinglandi á bakinu að ruslatunnunni sem stóð bak við húsið. Þar hafði hann hringað sig í kút við hliðina á kisu sinni. En hvar var hann núna? Hann virtist vera horfinn, aðeins skólataskan lá eftir við tunnuna. Jói var reyndar ekki langt undan ef vel var leitað því að hann hafði breyst fyrir galdra eins og hann hafði óskað sér og var nú orðinn að stóru og fallegu blómi rétt innan við girðinguna. Mikið var hann ánægður! Þetta var einmitt það sem hann hafði helst viljað vera. Þarna stóð hann blýfastur í moldinni á rótum sem náðu djúpt niður í jörðina. Ha, hló Jói með sjálfum sér! Ha, ha! Nú ætti kennarinn í skólanum rétt að reyna að draga hann þangað! Kenn- arinn myndi aldrei geta bif- að honum. Loksins fannst Jóa hann vera öruggur með að hann yrði ekki með nokkru móti píndur í þenn- an leiðinda-skóla! Það var einhver munur að standa föstum fótum hér í garðin- um og láta blessaða sólina skína á sig. Jói lyfti skrýtna blómahöfðinu sínu í áttina að sólinni, lygndi augunum og andvarpaði af vellíðan. Hann teygði úr handleggj- unum sem voru nú reyndar orðnir að tveim stórum grænum blöðum. Hvað ætli aumingja krakk- arnir séu að gera núna í skólanum? Líklega eru allir skælandi! Já, áreiðanlega heyrist ekki mannsins mál því að allir krakkarnir eru grenjandi af leiðindum og gera ekki annað en að þurrka af sér tárin, sjúga upp í nefið eða snýta sér. Og svo rífst kennarinn og skammast og hristir krakka- greyin! Vesalings Maggi og Dóra, hvað þeim hlýtur að líða illa þarna í skólanum. Jói sár- kenndi í brjósti um þau. Hann var ákveðinn í að reyna að breyta þeim í blóm líka ef hann mögulega gæti. Það var verst að hann mundi alls ekki hvernig hann hafði farið að því að breyta sjálf- um sér. Það hafði gerst eitt- hvað svo einkennilega skyndilega. Ó, nú heyrði hann til þeirra. Þau voru að koma aftur. Þegar þau voru rétt að koma að Jóa heyrði hann að Dóra sagði við Magga. - Við skulum tala við mömmu hans Jóa. Það væri ægilegt ef hann væri alveg týndur í alvörunni. Jói fór að skellihlæja. Ha, ha, ég er hérna, sjáið þið mig ekki? Dóra og Maggi hrukku í kút 40 ÆSKAN

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.