Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1985, Síða 42

Æskan - 01.02.1985, Síða 42
O BARNALEIKRIT 42 ÆSKAN „Kardemommubærinn er voða lít- ill bær, og er svo langt í burtu, að næstum enginn þekkir hann, nema þú og ég og pabbi og mamma og afi og amma og nokkrir aðrir. Kardemommubær er merkilegur bær og þar gerist ýmislegt, sem ekki gerist annars staðar. Þar ganga til dæmis kameldýr um göturnar og einn og einn fíll kemur hlaupandi við og við.“ Þannig hefst upphaf sögunnar um Kardemommubæinn, leikritsins sem nú er sýnt við miklar vinsældir í Þjóðleikhúsinu. Þetta er í fjórða skiptið sem Þjóðleikhúsið tekur leikritið til sýningar. Það var fyrst sýnt hér 1959—60, þá 1965 og loks 1974—75. Kardemommubærinn hef- ur verið sýndur um allan heim, í Bandaríkjunum, Englandi, já, og í flestum löndum Evrópu, bæði Austur- og Vestur-Evrópu, til dæmis margoft í Rússlandi, í Marokkó, Jap- an og Kína og sjálfsagt víðar. Þjóð- leikhúsið okkar hefur sýnt fleiri leikrit eftir Thorbjörn Egner. Dýrin í Hálsaskógi eru næstum því eins vin- sæl og Kardemommubærinn og fyrir næstum tuttugu árum var leikritið Síglaðir söngvarar leikið hér. Klemens Jónsson hefur stjórnað öllum þessum sýningum enda eru þeir góðir vinir, hann og Egner. Og ekki má gleyma því að Klemens er heiðursborgari í Kardemommubæ og á skrautritað skjal því til staðfest- ingar. Þessar myndir, sem þið sjáið hér í opnunni, eru teknar í Kardemommu- bæ. Þær vekja áreiðanlega sælar minningar hjá þeim börnum sem nú þegar hafa séð leikritið. Soffía frænka: „Ja, fussum svei! Ja, fussum svei!“ Líf og fjör I Karde- mommu bænum

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.