Æskan - 01.02.1985, Síða 44
ov
HLJOMSVEITAKYNNING:
DURAN - DURAN
ömsjón:
Bryndís, Fanney og Helga
Hæ, krakkar.
Við heitum Bryndís Svavarsdóttir,
Fanney Vigfúsdóttir og Helga Þor-
gilsdóttir og ætlum að sjá um kynn-
ingu á hljómsveitinni Duran Duran.
Við erum 14 ára og erum í 8. bekk
Garðaskóla, Garðabæ. Við erum
æstir aðdáendur hljómsveitarinnar.
í þessum fyrsta þætti segjum við í
stuttu máli sögu Duran Duran og telj-
um upp lögin sem náð hafa mestum
vinsældum. í næstu þáttum verður
svo sagt ýtarlega frá hverjum ein-
staklingi.
Við vonum að þið hafið gaman af
kynningunni og verðið um leið öllu
fróðari um þessa heimsfrægu hljóm-
sveit.
^ Bryndís, Fanney og Helga
44ÆSKÁN
Saga Duran Duran
Árið 1978 ákváðu John Taylor og Nick
Rhodes að stofna hljómsveit. Fyrst var
hljómsveitin skipuð þeim Nick Rhodes
(hljómborð), John Taylor (gítar), Steve
Dussy (söngur og bassi) og Simon Colley
á klarinettu. RogerTaylor (trommur)
gekk til liðs við hljómsveitina 1978 og
Andy Taylor (gítar) árið 1980. Þegar
Andy gekk í hljómsveitina skipti John
yfir á bassagítar. Simon le Bon kom til
sögunnar litlu á eftir þeim. Þegar þeir
Andy, Roger og Simon gengu í hljóm-
sveitina hættu klarinettuleikarinn og
söngvarinn.
Haustið 1980 fór Duran Duran í
hljómleikaferð sem upphitunarhljóm-
sveit fyrir Hazel O'Connor. Árið 1981
gáfu þeir út fyrstu plötuna sem hét ein-
faldlega Duran Duran. Eftirtalin lög af
þeirri plötu gáfu þeir út á litlum plötum:
Planet Earth, Careless Memories og
Girls On Film. Auk þess gáfu þeir út
myndbönd með áðurnefndum lögum.
Næsta breiðskífa þeirra kom út 1982 og
hét Rio. Þrjú lög af þeirri plötu komu út
á litlum plötum. Það voru lögin Hungry
Like The Wolf, Save A Prayer og Rio.
Þau voru einnig tekin upp á myndbönd
og var það gert bæði í Sri Lanka og
Antigua. Árið 1983 gáfu þeir út lagið Is
There Something I Should Know sem
seldist í 600 þúsund eintaka. í mars sama
ár gáfu þeir út myndband með 11 lögum.
í júní þetta ár fór Duran Duran til
Monserrat til að hljóðrita þriðju plötuna
sína, Seven And The Ragged Tiger.
Fjórða platan kom svo út í fyrra og
nefndist Arena. Auk þessara platna hef-
ur hljómsveitin gefið út fjöldan allan af
öðrum plötum, m. a. 13:12“ plötur og
13:7“ plötur.
Vinsælustu lögin
Tvö lög með Duran Duran hafa komist
í fyrsta sæti vinsældalista: Is There Som-
thing I Should Know og The Reflex.
Annað sæti hrepptu Save A Prayer og
Wild Boys. Union of Snake náði þriðja