Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1985, Síða 47

Æskan - 01.02.1985, Síða 47
o verið kennt þetta. En verið viss. Þessi rödd gerir vart við sig einn góðan veðurdag. Guðs anda er hægt að flýja um stund en ekki hægt að útrýma honurn. Ef til vill viljið þið helst ekki lesa þetta. En gerið það fyrir mig, lesið það hægt og hugsið - gleypið það ekki eins og þið séuð að taka lýsi eða eitthvað enn þá bragðverra. ÞIÐ ERFIÐ LANDIP Mig langar til að segja ykkur að ég hefi ekki orðið vör við eins nrikið aí glerbrotum á almannafæri núna eins og t. d. í fyrra og árið þar áður. Skyldum við geta náð því marki að ekki sjáist flöskubrot hér og þar á leið okkar eftir eitt ár eða svo? Það væri nú reglulega ánægjulegt og lýsti miklum framförum í umgengni og snyrtimennsku. Vitið þið hvað tóm flaska kostar? Fyrir margar tórnar flöskur er hægt að efla sjóð fyrir gott málefni eins og t. d. „Brauð handa hungruðum heimi". Þá færi röddin í brjósti ykkar að hljóma fegur, verk- urinn að minnka og vellíðan að koma í ljós. Landið okkar á að vera HREINT LAND - GOTT LAND - FAGURT LAND - GJÖFULT LAND. Og þið getið hjálpað til að svo verði. Þið eigið að erfa landið. Hví þá ekki líka að stuðla að því að vernda það og græða? VANDIÐ MÁLIÐ Hvernig lýst ykkur á að við tökum okkur til og förum að vanda og vernda málið okkar. Hættum að segja: „Hæ — bæ — hei - kei — djók“ og fleira í þessum dúr. Það er svo margt afkáralegt sem er að læð- ast inn í móðurmálið okkar fagra og er líklega ekki á annarra færi að laga en ykkar, unga fólk. Þið skuluð ekki fara að segja að nú sé „kellingin orð- in klikkuð, hún ætti ekkert að vera að pæla í því að skrifa í Æskuna“. Sannleikurinn er sá að mér er alvara og ég vil fá ykkur í lið með mér. Það er aðallega þrennt sem ég vil fá ykk- ur til að spreyta ykkur á. Það er að hreinsa hugarfarið - hreinsa landið og hreinsa málið. Og þá á ég við hvernig þið eruð mörg farin að tala. Svo óska ég að okkur gangi vel og að við getum leyst þetta vel af hendi — með heiðri og sóma. Ég er nú að hætta í Kirkjumála- nefndinni og þakka santfylgdina þessi ár sem við höfum átt samleið. Mér er það vel ljóst að mér og mín- um líkum er ekki hægt að líkja við Duran-Duran og álíka „goð“ en við vorum einu sinni ung og höfðum okkar „goð“ sem gufuðu upp á sín- um tíma. Við dönsuðum Charleston svo að þeirra tíma öldunga svimaði og mæðurnar okkar voru hræddar um að við fengjum garnaflækju en sú flækja strandaði nú einhvers staðar á leiðinni. Svona er það með allar dægurflugur, hvort heldur það er dans, föt, söngur, hárgreiðsla og álíka uppákomur. Það líður út í buskann. Þetta er nokkurs konar út- rás æskuaranna en það er bæði til heilbrigð og óheillavænleg útrás og mörg stig þar á milli. Það er aðal- atriðið að komast heill á sál og lík- ama yfir þetta skeið. „Ég er orðinn hundleiður á þessu djammi,“ sagði ungur piltur við ntig fyrir skömmu. Jæja, ég kveð ykkur þá með góð- um óskum í nútíð og framtíð. Hrefna Tynes ÆSKAN 47

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.