Æskan - 01.02.1985, Page 50
ov
Æskulýðsstarf kirkjunnar:
Skemmtílegt, spenn
Flest ykkar hafa auðvitað kynnst
barnastarfi kirkjunnar ykkar - farið
í barnaguðsþjónustur, hlustað á sög-
ur, beðið bænir og sungið söngva. En
þegar unglingar eru komnir á ferm-
ingaraldur er oft lítið við þeirra hæfi
- finnst þeim oft. Við nokkrar
kirkjur hér á Reykjavíkursvæðinu
eru þó starfrækt æskulýðsfélög og
víða úti á landi. Á höfuðborgarsvæð-
inu eru æskulýðsfélög í Neskirkju,
Bústaðakirkju, Grensáskirkju, í
Garðabæ og í Seljahverfi í Breið-
holti. Þessi æskulýðsfélög starfa sam-
an, fara t. d. í ferðalög saman. En
hvernig skyldi nú svona æskulýðsfé-
lag vera?
Hvað er æskulýðsfélag?
Við heimsóttum eitt þessara
V________________________________
æskulýðsfélaga núna nýlega og
lögðum leið okkar inn í Bústaða-
kirkju. Það var glatt á hjalla þegar
við komum inn, mikið sungið og það
var greinilega mikill vinaandi sem
ríkti meðal krakkanna enda heitir
félagið þeirra „Vinir“. Þau sátu í
hring og þannig virtist strax skapast
traust á milli þeirra. Við spurðum
krakkana, sem eru á aldrinum 13-16
ára, hvað þau gerðu í félaginu.
Fjölbreytt starf
Það er nú svo margt að það væri of
langt mál að rekja það allt. Við sækj-
um fundi einu sinni í viku og er þá
mikið sungið og farið í leiki. Þó er
alltaf eitthvert efni tekið fyrir á fund-
unum — annaðhvort fáum við gesti
eða við erum að undirbúa einhver
verkefni sem okkur eru falin. Til
dæmis þurfum við nú að fara að und-
irbúa hluta af dagskrá fyrir ferðalag
sem æskulýðsfélögin í Reykjavík og
nágrenni munu fara í saman í febrú-
ar. Svo fer að líða að æskulýðsdegin-
um og við undirbúum hann öll. Fyrir
jólin var mikill undirbúningur hjá
okkur vegna Lúsíu-söngva sem við
æfðum. Við fórum víða með Lúsí-
urnar, t. d. á Grensásdeildina og á
Droplaugarstaði. Þar var okkur
mjög vel tekið. Það er svo gaman að
gleðja fólk sem ekki getur verið
heima á jólunum.
Svo skemmtum við aldraða fólk-
inu hér í sókninni á jólasamkomu
þess í safnaðarheimilinu. Einnig
sáum við um jólatréskemmtun fyrir
börnin í sókninni milli jóla og nýárs.
50 ÆSKAN