Æskan - 01.04.1989, Síða 4
Verðlaun fyrir barna-
og unglingabækur
Eðvarð Ingólfsson hlaut barna- og
unglingabókaverðlaun Skólamálaráðs
Reykjavíkur 1989 fyrir bók sína Meiri-
háttar stefnumót.
Meiriháttar stefnumót er sjöunda ungl-
ingabók Eðvarðs og hefur Æskan gefið
þær allar út. Hann vakti þegar athygli
1980 með fyrstu bók sinni, Gegnum
bernskumúrinn. Hann samdi þá sögu 19
ára. t>ar var þroskaður unglingur að
skrifa um það sem hann þekkti, veruleik-
ann í lífí unglinga, drauma þeirra og
þrár.
í kjölfarið fylgdi sagan Birgir og Ásdís
(1982) en hún er sjálfstætt framhald
fyrstu bókarinnar. 1984 kom út bókin
Eimmtán ára á föstu. Hún var í fyrstu
prentuð í 2000 eintaka upplagi en það var
ríflega meðal eintakafjöldi. Árin 1982 og
einkum 1983 hafði verulega dregið úr
Eðvarð Ingólfsson rithöfundur
sölu bóka og var því ekki gert ráð fyrir
mikilli sölu. Raunin varð sú að þessi eifl-
tök seldust á skömmum tíma og var þvl
prentað meira. Rétt þótti að fara varlega
og var því látið sitja við 1500 eintök. En
það sama varð uppi á teningnum. Um
leið og prentsmiðjan afhenti þá viðbót
höfðu borist svo margar pantanir frá bók-
sölum að biðja varð um þriðju prentun
— og síðar þá fjórðu. Ekki voru dæmi um
að unglingabækur seldust í slíku upplag1
á þeim árum og því var farið hægum
skrefum.
Af bókinni seldust þau 5700 eintök
sem tókst að prenta fyrir jólin 1984 og
varð hún þriðja í röðinni af þeim bókum
er þá seldust mest (samkvæmt könnun
Kaupþings fyrir Félag íslenskra bókaút-
gefenda) - og mest selda unglingabókin-
Framhald sögunnar, Sextán ára í sambúð
sem út kom 1985, varð metsölubók, sölu-
hæst allra bóka á því hausti. Af henni
seldust 6.800 eintök.
Bækurnar Ástarbréf til Ara (1986),
Pottþéttur vinur (1987) og Meiriháttar
stefnumót (1988) tryggðu enn vinsældir
Eðvarðs sem höfundar unglingabóka.
Eðvarð hefur tekið fyrir í sögum sínum
ýmislegt er aðrir hafa ekki fjallað eins ná-
ið um. Samskiptum unglinga og foreldra
þeirra, en þeim fylgja oft mikil sálarleg
átök, lýsir hann frá mörgum hliðum og 31
raunsæi. Sambúð unglinga, sem ekki er
algeng en þekkist þó, lýsir hann í Sextán
ára í sambúð. Þar er einnig sagt frá fsð-
ingu barns og með það efni fer hann af
þeirri nærfærni og hlýju sem einkennir
skrif hans. Vangaveltur unglinga og ungs
fólks eiga sinn stað í bókunum - og að
sjálfsögðu „skot“, hrifning og ást, sem
mikið snýst um á unglingsárum.
Eðvarð segir frá af einlægni svo að les'
endur eiga auðvelt með að setja sig í sP°r
söguhetja og honum er lagið að byggí3
söguna þannig upp að hann heldur at-
hygli lesenda og vekur með þeim eftir'
4 ÆSKAJV