Æskan - 01.04.1989, Side 7
Tröllkarlinn sem
vildi veiða fiðrildi
eftir Báru Þórarinsdóttur
(Bára Þórarinsdóttir er húsmóðir á Álftanesi.
Hún hcfur lengi fengist við að semja smásögur
fyrir börn cn ckki boðið þær til birtingar fyrr cn
Æskunni nú í vetur)
Einu sinni bjó afar stór tröllkarl
J^PPÍ í Ásafjöllum. Hann langaði
ressi ósköp til að veiða fiðrildi og
jafnvel fara að safna þeim eins og
Pla fólkið niðri á láglendinu. En
ann hafði svo stórar hendur að
ann vissi ekkert hvernig hann
ftlti að fara að því að hremma
Þau.
Uglan var vitrust allra sem
,nggu þarna í skóginum. Hann
Jjröi að fá hana sér til hjálpar. En
vernig átti hann að finna ugluna?
Jú, hún hlyti að heyra ef hann
allaði á hana. En það var einn
Salli á uglunni. Ef hann kallaði of
att þá móðgaðist hún oftast og fór
^sv° ntikla fýlu að hún talaði ekki
Vl hann svo að dögum skipti.
etta voru ljótu vandræðin. Hann
-r i að aefa sig í því að ná réttum
raddstyrk.
Svo fór hann að æfa sig. Fyrst
’°rnu sterk hljóð frá tröllkarlinum
en á endanum heyrðist aðeins
smátíst. Enda hafði fjöldi smáfugla
safnast saman í kringum hann til
að hlusta. Þeir héldu að
tröllkarlinn væri að halda
hljómleika.
Tröllkarlinn skildi þetta ekki.
Uglan hafði ekki látið sjá sig. Samt
hafði hann kallað í öllum
mögulegum tóntegundum.
„Ég hef víst ekki hitt á rétt
þegar ég var að æfa mig,“ hugsaði
tröllkarlinn.
Og svo byrjuðu stór tár að renna
niður kinnarnar. Og tárin urðu svo
mörg að það myndaðist stór tjörn
þar sem þau féllu. Og
sundfuglarnir voru ekki seinir á
sér að fá sér sundsprett. Þeir héldu
að tröllkarlinn væri bara vél sem
byggi til polla. Enda fannst þeim
hann stór-merkilegur.
Loksins kom uglan.
„Hvað er að sjá þetta,“ sagði
hún, „hefurðu ekki vasaklút? Það
eiga allir að hafa, sérstaklega ef
þeir þurfa að snýta sér.“
Og þegar tröllkarlinn bar upp
erindið sagði uglan að það ætti
enginn að veiða fiðrildi. Það væri
miklu betra að tína ber. Hann gæti
fengið berjatínu lánaða hjá henni,
svo gætu íkornarnir hjálpað honum
við að búa til saft, þeir væru svo
duglegir við það.
Uglan var nokkurs konar
verkstjóri þarna. Hún var svo
dugleg að ráðskast. En hún var
ósköp ágæt inni við beinið.
Tröllkarlinum fannst þetta
prýðis-hugmynd. Hann ætlaði
ekkert að veiða fiðrildi. Þau voru
svo falleg og máttu hans vegna
fljúga um. En hann óskaði þess
um leið að þetta litla mannfólk
þarna niður frá hætti öllum
fiðrildaveiðum líka.
ÆSKAJST 7