Æskan - 01.04.1989, Page 10
hafa verið tveir eða þrír. Við lærum
mikið á þessum mótum og öðlumst
reynslu þó að oftast sé við ofurefli að
etja.“
- Tekur þú þátt í Norðurlandamóti
á þessu ári?
„Já, það verður í Finnlandi í apríl-
lok.“
- Telur þú þig eiga möguleika á
verðlaunasæti?
„Ég á smámöguleika á góðum degi
- mjög góðum degi! Maður verður að
ná topp-árangri, sínu allra besta, og má
ekki mistakast í neinu ef von á að vera
um verðlaunasæti í slíkum mótum.“
- Þú hefur þá átt góðan dag fyrir
skömmu, á alþjóðlegu móti í Reykja-
vík. . .
, Já, ég fékk gullverðlaun fyrir æfíng-
ar á gólfí og stökk - deildi þeim með
öðrum. Ég komst líka í úrslit í æfing-
um á tvíslá og í hringjum. Sá sem varð
jafn mér í fyrsta sæti varð annar á
sænska meistaramótinu. Þar sem Svíar
eru einna bestir Norðurlandaþjóðanna
tel ég mig eiga smámöguleika á verð-
launum á Norðurlandamótinu. Ef. . .“
- Á þessu Reykjavíkurmóti voru
margir góðir fimleikamenn. . . frá
ýmsum löndum.
„Já, þar voru keppendur frá Búlgar-
íu - þeir voru sterkastir - Belgíu,
Lúxemborg, Skotlandi, Spáni og Sví-
þjóð.“
- í hve mörgum greinum er keppt
innan fimleika?
„Það er keppt í æfingum á gólfi, tví-
slá, svifrá og bogahesti, í hringjum og
stökki af hesti. Á íslandsmótinu er
keppt í bæði skylduæfingum og með
frjálsri aðferð en á Reykjavíkurmótinu
var einungis keppt í frjálsum æfing-
um.“
Mjög gaman
að leiKa golf
Snóker, Keila,
borðtennis og golf
- Þú ert við nám. . .
„Já, ég er á öðrum vetri í Verslunar-
skólanum. Ég sleppti einu ári, 1987-
1988, vann þá og æfði mikið. Ég ætlaði
að reyna að ná góðum árangri á Norð-
urlandamótinu 1988 en það brást vegna
meiðslanna.“
- Hefur þú áhuga á öðru en fimleik-
um?
„Já, ég á ýmis áhugamál. Mér finnst
mjög gaman að leika golf og hef æft þá
íþrótt í tvö sumur, reyndar þrjú en lítið
það fyrsta. Finnur Oddsson hefur verið
með mér í því. Ég hef líka leikið snóker
(billjarð), keilu og borðtennis - annað
veifið.
Ég þjálfa einn af yngstu flokkunum í
fimleikum - við þjálfum flestir eitt-
hvað, strákarnir. Það þarf marga þjálf-
ara fyrir allan fjöldann sem æfir.“
- Hverjir eru eftirlætistónlistarmenn
þínir?
„Ég hlusta mikið á tónlist, hvað sem
er, undanfarið þó meira á þungt rokk
og hrátt popp en annað, U-2 og slíkt.“
- Hefur þú dálæti á einhverjum dýr-
um?
- Leggja þjálfarar ykkur strangar
lífsreglur?
„Þjálfarar leiðbeina við æfingar og
ráðleggja hvað heppilegt sé. Sjálfir
verðum við að gera upp við okkur
hvaða lífshætti við veljum. Þetta er ein-
staklingsíþrótt og sérhver verður að
hugsa um sjálfan sig, meta hvaða
stefnu hann tekur ef hann vill ná góð-
um árangri. Það reykir að sjálfsögðu
enginn sem æfir íþróttir af alvöru - eða
skemmir sig með vímuefnum.
verður að borða mikið af hollum °8
góðum mat, hvílast vel og sinna æfing'
um af kostgæfni.“
- Hefur þú verið ánægður með þjálf"
ara þína?
Meistaraflokkur Ármanns í fimleikum.
Efri röð frá vinstri: Guðjón, Gísli Örn Garðarsson, Örvar Arnarson, Skarphéðinn Halldórsson.
Neðri röð standandi: Skúli Malmquist, Jóhannes N. Sigurðsson, Axel Bragason, Jörgen Telln° 1
„Já, einkum hestum. Ég fór oft á
hestbak í Bifröst og þigg það með
þökkum ef tækifæri gefst.“
- Áttu systkini?
„Ég á þrjár systur. Arnhildur er 19
ára, Edda Margrét 13 ára og Vala Védís
fimm ára.“
- Æfa þær fimleika - eða aðrar
íþróttir?
„Arnhildur var í fimleikum í þrjú ár
og náði ágætum árangri. Edda Margrét
byrjaði ung að æfa, stuttu á eftir mér.
Hún var í fimmta sæti á íslandsmótinu,
er í landsliðinu að heita má. Vala Védís
fór á nokkrar æfingar hjá KR en þótti
hundleiðinlegt og hætti! Hún þolir eig-
inlega ekki fimleika, fæst ekki til að
horfa á keppni!“
„Já. Jónas er ágætur þjálfari og J®r
gen er mjög hæfur. Hann hefur styrl\
Ármann mikið og fimleika hér á lan
almennt.“
- Hefur þú sett þér takmark?
„Já, að komast á verðlaunapafi a
Norðurlandamóti og verða talinn g°°
fimleikamaður - ekki aðeins á íslens
an mælikvarða.“
Ég veit að Guðjón gerir sitt besta
þess. Hann hefur hæfileika, áhuga
atorku. Megi það takast!
til
og
Te»ti: Jg
Myndir: nU
10 ÆSKATT