Æskan - 01.04.1989, Side 14
Ævintýri Bjössa bollu
TeiKningar: HáKon Aasnes
Texti: Velle Espeland
Litir: Anders Kvále Rue
- Ég held að allt fólk í bænum sé að missa
vitið, segir mamma þegar hún kemur heim úr
búðinni. Það er ekki um annað talað en fljúg-
andi furðuhluti. Það mun meira að segja hafa
sést geimfar bak við hlöðuna hér og dularfull
vera þar við. Ég veit varla hverju ég á að
Krakkar eru sagðir hafa séð undarleg spor
uppi við Bugðu í morgun. Það var eins og
fjöldi geimvera hefði farið þar um. Æ, má ég
biðja um frið og ró um þessi jól. - Kannski
fara forynjur á geysireið um grundir. . . segir
Þrándur stríðnislega.
- Þetta er eintómt rugl, segir pabbi. Ég var
þar upp frá og sá ekki einu sinni spor efur
héra eða rjúpu. En kannski þið vitið eitthva
um þetta, krakkar? - Nei, því er verr og ©ið'
ur, segir Bjössi. Geimverur eru ekki námsef©
í skólanum um þessar mundir. . .
trúa. . .
- Ef ég ætla að verða heimsþekktur töframað-
ur verð ég að kynda undir með auglýsingum,
hugsar Bjössi. Hann fer því um bæinn með
fjölda veggspjalda. Á þeim er auglýsing um að
hinn þekkti töframaður Bjössó Bolloró sýni
töfrabrögð á jólaskemmtuninni.
- En hve hátt á staurinn á ég að festa auglýs-
inguna? Ef það snjóar hressilega getur hún
farið í kaf ef ég set hana of neðarlega. Best er
að klifra upp í topp með aðra. Þá er engin
hætta á að hana fenni í kaf, hve mikil sem
snjókoman verður.
En það er ekki auðvelt að festa auglýsingu a
staurinn og halda sér föstum á meðan. Það er
ekki einu sinni á valdi hins fræga Bjössa B°
loró. Hókus, pókus og hár skellur! Hann hgg
ur flatur í snjóskaflinum. Sem betur 1°
meiddi hann sig ekki.