Æskan - 01.04.1989, Side 41
Mú skundum við
á skátamót. .
^ ^n er blessað vorið komið og sumar-
a næsta leiti og þá hugsa skátar sér
§°tt til glóðarinnar að þeysa út í náttúr-
na begar snjóum hefur létt.
A vorin athugum við hvernig og hve-
þ.r Sfóðurinn vaknar til lífsins og vex.
pj3. er tækifæri til að gróðursetja trjá-
ntur og blóm, sá matjurtum og
^g)ast með hvenær fuglarnir koma og
ejiær þejr verpa. Síðan koma tjald-
1 egur, fjallgöngur og ferðalög.
v nmt fólk virðist halda að ekkert sé
1 t ferðalag nema farið sé langt og
r rað ttl þess vélknúið farartæki en
ndir skátar vita að þessu er öðruvísi
aj- . Þeir vilja komast leiðar sinnar
ei8tn rammleik og velja sér farartæki
eftir því.
Byrjað er á stuttum göngu- og rann-
sóknarferðum um heimahagana og
maður kemst aldrei í eins nána snert-
ingu við landið og í gönguferðum.
Útilegur og stuttar gönguferðir
ungra skáta eru meðal annars til þess
að þjálfa þá svo að þeir geti síðar lagt í
lengri ferðir um byggðir og óbyggðir
sér til andlegrar og líkamlegar hressing-
ar.
Ferðalög og útilegur skáta geta verið
með ýmsu móti en það er þeim öllum
sameiginlegt að þær eru farnar í
ákveðnum tilgangi, hvort sem ferðin
eða útilegan er löng eða stutt og á
hvaða aldri sem þátttakendurnir kunna
að vera.
Ein ferðin er farin til náttúruskoðun-
ar og söfnunar, önnur til að kynna sér
sögustaði. í einni ferð er unnið að
skógrækt eða sáningu, önnur ferð er
farin til að kynna sér daglegt líf á
bóndabæ eða til að fræðast um sögu
sveitarinnar með viðræðum við aldrað
fólk. Stundum er tilgangur ferðarinnar
margþættur en aldrei má gleyma að
engin ferð nær tilgangi sínum án undir-
búnings hvað snertir ferðaáætlun, út-
búnað og farartæki. Þótt gönguferðir
séu ágætar og eftirsóknarverðar fyrir
hraust fólk þá eru hjólreiðaferðir, báts-
ferðir og bílferðir líka góðar og oft má
flétta gönguferð inn í ferðalag þótt ein-
hver farartæki séu notuð önnur en fæt-
urnir.
Á hverju sumri eru haldin mörg
skátamót um land allt og þá lifnar held-
ur betur yfír starfí skátaflokkanna því
að á skátamóti fáum við tækifæri til að
lifa alvöru tjaldbúðalífí. Við veljum
okkur tjaldbúðasvæði, gröfum sorp-
gryfju, finnum vatnsból og baðstað,
finnum kaldasta staðinn fyrir matar-
geymsluna, veljum okkur varðeldastað
og komum okkur upp ýmsum þægind-
um úr efni sem finnst á staðnum. Slík
útilega með leikjum sínum, ferðalög-
um, frumstæðri matargerð, tjöldum,
byggingum og varðeldum er tækifæri
sem enginn skáti lætur fram hjá sér
fara.
Nú í sumar verða eftirtalin skátamót:
Fjör í flokki - að Hafravatni 2.-4.
júní.
Flokkamót í Vestmannaeyjum 9.-11.
júní
Afmœlismót Skátasambands Reykja-
víkur - að LJlfljótsvatni 29. júní -2.
júlí.
Skátamót Skátafélagsins Klakks á Ak-
ureyri í Leyningshólum 6. -9. júlí.
Vesturlandsmót að Grímsstöðum við
Borgarnes 13. -16. júlí.
Birkibeinamót í Hveradölum í ágúst.
Nánari upplýsingar um öll þessi mót
fást á skrifstofu BÍS í síma (91) 23190.
Til að vera sem best undirbúinn fyrir
ævintýri þessu lík er nauðsynlegt að
æfa sig í matargerð með prímus eða á
hlóðum, læra að tjalda, kynna sér hjálp
í viðlögum og ýmiss konar ferðatækni.
Einnig verður að læra að velja sér út-
búnað til ferðalaga og vita hvernig hon-
um verður best komið fyrir í bakpok-
anum.
-ÆSKMT 41