Æskan - 01.07.1989, Qupperneq 38
Umsjðn: Jens Kr. Guðmundsson
Popphólfl
Ég dál U2 og á allar plöturnar
þelrra. Getlð þið skýrt frá
heimlllsfangl aðdáendaklúbbs
þelrra og hvað á að skrifa. Svo
langar mig að blðja um greln
um U2, veggmynd og límmiða.
Sœvar Ásgeirsson,
Helðarhrauni 47, Grlndavlk
Svar:
Söngvari U2, Paul Hewson, kall-
aður Bono Vox, fæddist 10. maí
1960. Hann á einn bróður, 7 árum
eldri.
f heimalandi U2, írlandi, berjast
stríðandi fylkingar kaþólskra manna
og mótmælenda blóðugri og haturs-
fullri baráttu. Móðir Bonos er mót-
mælandi en faðir hans kaþólskur.
Slíkt hjónaband þykir nánast óhugs-
andi í Norður-írlandi. Kannski má
rekja til ólíkrar trúarafstöðu foreldr-
anna að Bono er skeleggur málsvari
friðar. Hann hefur margoft móðgað
áhangendur beggja fylkinganna með
harðorðri gagnrýni á baráttuaðferðir
þeirra.
Bono var sendur í gagnfræðaskóla
sem var ólíkur öðrum skólum á
Norður-írlandi að því leyti að hann
var ætlaður nemendum sem til-
heyrðu margs konar trúarhópum,
m.a. kaþólskum og mótmælendum.
í skólanum kynntist Bono prestsyn-
inum og trommaranum, Larry Mul-
len, fæddum 31. október 1961. í
kristinni hreyfingu skólans, svoköll-
uðu Bandalagi kristinna, kynntust
Bono og Larry gítarleikaranum The
Edge, fæddum 8. ágúst 1961. For-
eldrar hans voru velskir en vegna
starfs föðurins sem vélstjóra flutti
fjölskyldan til Dyflinnar á írlandi.
Bassaleikarinn Adam Clayton,
fæddur 13. mars 1960, er sá eini
þeirra U2-bræðra sem er áhugalítill
um trúmál. Samt var hann sendur í
sama skóla og hinir. Ástæðan var sú
að foreldrar hans voru enskir en
fluttust til írlands vegna flugstjóra-
starfs föður hans. Foreldrarnir vildu
frekar að Adam færi í þennan skóla
en að honum yrði innrætt hatur
annað hvort á kaþólikkum eða mót-
mælendum í öðrum skólum.
Adam hafði getið sér gott orð sem
bassaleikari hljómsveitarinnar Max
Quad Band áður en hann hitti hina
U2-drengina. Þá vantaði bassaleik-
ara og Adam var frægur um allan
skólann fyrir sérstætt útlit og furðu-
legar venjur á borð við að sleppa
aldrei hendi af kaffiglasi. Ekki einu
sinni í kennslutímum! Þó að Adam
væri enginn trúmaður þá kunni
hann vel við friðarhugsjón Bonos og
félaga. Jafnframt féll músíksmekkur
þeirra fjórmenninga í sama farið.
Þeir hrifust af hráum takt-blúsi
Rolling Stones og síðar af pönk-
rokki og bandarísku þjóðlagapoppi
Woodys Guthries.
Af 8 plötum U2 eru „The Unfor-
gettable Fire“ frá 1984 og „The Jos-
hua Tree“ frá 1987 bestar. Einnig
sýnir U2 kvartettinn snilldartakta 1
laginu „Jesus Christ" á minningar
plötunni um Woody Guthrie, >’
Vision Shared" frá 1988.
Póstáritun U2 er:
U2 World Service, P.O. Box 61,
Liverpool L69 8BB, England-
Það er eðlilegast að spyrja í fyr®ta
bréfi til aðdáendaklúbbs hvert
lagsgjald sé, hverjar séu skylduf
laga og hvaða þjónustu klúbburinn
veiti.
Madonna
Frábœra Popphólf!
Þið mœttuð hafa eins og elna
þýðingu á útlendum textum vinsce
laga í hverjum þœtti. Mig langar ti
að mœla með þýðingu á „Lucky
Star" með Madonnu.
Madonnu-aðdáandi.
Halló Popphólf!
Hœttið að breyta nöfnum erlen
poppara. Pó að aðrar þjóðir þý°'
íslensk nöfn yfir á sína tungu er ek
þar með sagt að þið þurfið að 9e
það líka.
Mér finnst of lítið skrifað um
Madonnu. Hér koma Uþplýsin9ar u
hana: , dd
Madonna Louise Ciccone er t®
17. ágúst 1958 í Michigan í
38 ÆSKAIT