Æskan - 01.07.1989, Side 41
Dweezil hefur tekið föður sinn
1 fyrirmyndar hvað varðar af-
stöðu til vímuefna. „Rokk gegn
vítnuefnum" herferðin hófst í
jölfar ritdeilu sem Dweezil lenti
' eftir að hafa ráðist harkalega á
~r'c Clapton, Ringo Starr og Phil
^ollins fyrir að auglýsa áfengis-
tegundir.
Annað fyrirbæri sem er að
verða æ meira áberandi á rokk-
Vettvangnum engilsaxneska er
reyfingin „Straight Edge“ sem
getum kallað „Vímulausa
®sku“. Það fyrirbæri er rakið til
andarískrar
M:
pönkrokksveitar,
'nor Treat. Sú hljómsveit boð-
aoi í textum sínum vímulaust líf-
®rni 0g bindindi á tóbak í upp-
au þessa áratugar. Áhangenda-
ópur Minor Treat tók upp
®etningar úr söngtextum sveitar-
'onar 0g málaði þær á föt sín,
ósveggi o.fl. Þetta hlóð utan á
s'g- Aðrar hljómsveitir komu til
sógunnar og fluttu sama boð-
KaP. Vígorð gegn vímuefnum og
oaki urðu æ algengari á hús-
Veggjum, barmnælum og víðar.
"ó hefur baráttan tekið á sig
eiri alvörublæ. Flugritum er
re'ft á hljómleikum, jafnvel all-
sórum bæklingum og blöðum.
^igjendur „Vímulausrar æsku“
föðkenna sig á hljómleikum og
unr mannamótum með því að
^_aia stórt X á handarbakið á
r; Þannig auglýsa þeir að þeir
J1 ekki versla við fíkniefnasala
að þeim þyki eftirsóknarvert
> ^áta aðra vita að þeir kjósi
heilbrigt líferni.
6r 0 að það hljómi undarlega þá
r '.Vímulaus æska“ í Bandaríkj-
j111 Norður-Ameríku og í Bret-
^di einkum bundin við pönk-
. • Það háir hreyfingunni að
tj0rilcrokkið er ekki lengur sú
kubylgja sem það var á fyrstu
Ufa nýrokksins. Engin þeirra
Jófösveita, sem tilheyra
j’ ltnulausri æsku“, hefur náð
11 á vinsældalista. Þó geta
p On orðið varir við nöfn eins og
rv ^orn Not Pills frá Banda-
g1 JUnum og Wide Awake frá
. nglandi ef fylgst er með eng-
SaXneska pönkrokkmarkaðn-
uin.
^ íslandi dettur fáum í hug
pönkrokk þegar minnst er á
„Vímulausa æsku“. Eða hvað?
Svanur Jónsson hljómborðsleik-
ari veit meira um það mál:
„Vímulaus æska er nafn á ís-
lenskri hljómsveit sem var stofn-
uð í fyrra upp úr hljómsveitun-
um Genusi og Létt og laggott.
Við erum fjórir í hljómsveitinni.
Ólafur Rafnsson syngur og leik-
ur á trommur. Þór Sigurðsson
spilar á hljómborð eins og ég. Og
bassaleikarinn heitir Siggeir. Sá
yngsti okkar er 16 ára en sá elsti
18.“
- Hvernig stendur á þessu
nafni, Vímulaus æska?
„Faðir minn, Jón Guðbergsson,
var að kynna ákveðið verkefni
fyrir Læons-hreyfinguna og
fleiri. Verkefnið hét „Vímulaus
æska“. Hann fékk okkur til að
koma fram sem skemmtiatriði á
þessum kynningum. Við nefnd-
um hljómsveitina því í höfuðið á
verkefninu. Við erum allir bind-
indismenn og viljum hvetja til
bindindis."
- Hljómsveitin skemmti ný-
verið á einu fjölinennasta úti-
móti sumarsins, þ.e. á Bindindis-
mótinu í Galtalækjarskógi. Þar
lék hljómsveitin aðeins lög ann-
arra, s.s. Bítlanna og Greifanna.
Hvað með áróður gegn vímuefn-
um?
- Við teljum að nafnið Vímu-
laus æska hafi heilmikið áróð-
ursgildi þó að ekki væri annað.
Segir það ekki töluvert að hljóm-
sveitin Vímulaus æska skemmti
á bindindismóti? Þetta nafn þarf
ákveðinn aðlögunartíma. Hljóm-
sveitin þarf að kynna sig vel áð-
ur en farið verður út í flutning á
beinum áróðurslögum gegn
vímuefnum. Eftir að hafa komið
fram á jafnfjölmennri skemmtun
og Bindindismótinu í Galtalækj-
arskógi má segja að komið sé að
slíkum lögum. Við erum einmitt
að vinna í áróðurslögunum núna.
Við getum þess vegna auglýst
það í þessu viðtali ef félagasam-
tök eða skemmtanahaldarar
vilja leggja baráttunni gegn
vímuefnum lið með aðstoð okkar
að við erum til í slaginn. Hringið
bara í mig. Síminn er 74355.“
Vegabréfsskráning
Sálarinnar hans Jóns míns.
Umsókn send unnendum léttpoppaðrar
sálarmúsíkur („soul“ popp)
Stofnfélagar:
Rafn Jónsson trymbill
Haraldur Þorsteinsson bassaleikari
Guðmundur Jónsson gítarleikari
Stefán Hilmarsson söngvari
Jón Ólafsson hljómborðsleikari
Fyrri afrek stofnenda:
Rafn var í Grafík frá ísafirði (ásamt Helga Björnssyni, núverandi
söngvara Síðan skein sól). Haraldur var á áttunda áratugnum í
merkri djassrokksveit, Eik (ásamt Þorsteini Magnússyni gítarleikara
og Lárusi Grímssyni hljómborðsleikara og gerðu garðinn frægan
með MX-21-sveit Bubba Morthens fyrir nokkrum árum).
Guðmundur var í Kikk, Stefán í Sniglabandinu. Jón var í
Possibillís.
Stofnár: 1988.
Tildrög stofnunar:
I árslok 1987 fékk Þorsteinn J. Vilhjálmsson, núverandi starfsmaður
Rásar 2, þá Jón, Stefán og Guðmund til að flytja sönglög úr
kvikmyndinni „Blús-bræður“ á skemmtunum í Sigtúni. Fleiri
hljóðfæraleikarar voru með í leiknum. En þessir þrír mynduðu klíku
sem þróaðist úr blús-slögurum yfir í sálarpopp.
Núverandi liðsmenn:
Magnús Stefánsson trymbill og fyrrverandi byltingarráðherra í
rokkbyltingunni ’80-’83 (var í Utangarðsmönnum og Egói). Friðrik
Sturluson bassaleikari. Astvaldur Traustason hljómborðsleikari.
Áðurnefndir Stefán og Guðmundur.
Hljómplötur með skrásettum leik og söng
hljómsveitarinnar:
1. „Bongoblíða“, 1988
2. „Syngjandi sveittir“, 1988
3. „Frostlög", 1988
4. „Bandalög“, 1989
Framtíðaráform:
Stefnt er að 10 laga plötu á jólamarkaðinn.
Póstáritun:
Steinar h.f., b/t Sálarinnar hans Jóns míns,
Nýbýlavegi 4, 200 Kópavogi.
ÆSKAJST 41